Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 24
ÚR BÆJARLÍFINU
Borgarfjörður
Birna Guðrún Konráðsdóttir
Um tíma héldu Borgfirðingar að
vorið væri komið. Gróðrarskúrir
dundu á og allur gróður tók kipp.
Meira að segja mátti finna ilm í
lofti af ösp og birki. En vorið virt-
ist ekki vera ákveðið. Næsta dag
var allt með öðrum brag. Þræs-
ingur og kuldi. Á sumum stöðum
varla stætt. Þótt fólk á þessu
landshorni geti vart kvartað í sam-
anburði við Norðlendinga þá er
ekki hægt að neita því að vorið hef-
ur verið kalt það sem af er. Tún
grænka þó en úthaginn er enn
grár. Menn og málleysingar binda
nú vonir við að vorið hafi ákveðið
að mæta og sumarblíðan sé á
næstu grösum.
Borgfirðingar búa svo vel að
eiga margar náttúruperlur sem
marga fýsir að sjá. Grábrók er einn
þessara staða. Þar eru m.a. stígar
til að komast upp á gíginn. En fari
menn utan meginslóðans blasir
annað við. Þar hefur fólk séð
ástæðu til að ganga örna sinna og
skreyta afurðirnar með pappír
þeim er flestir brúka við slík tæki-
færi. Er heldur hvimleitt að ganga
með botnlokuafurðir annarra á
skóm sínum er niður kemur.
Heimamenn segja að við svo búið
megi ekki standa. Íslendingar verði
að hætta þessari minnimáttarkennd
og hefja gjaldtöku fyrir heimsóknir
á ferðamannastaði. Lítil uppbygg-
ing á aðstöðu verður við nátt-
úruperlur landsins ef ekki má
rukka fyrir skoðun þeirra. Koma
þarf upp salernisaðstöðu, merk-
ingum og viðvörunarskiltum. Til að
slíkt sé gerlegt þarf að rukka gest-
inn. Landanum finnst sjálfsagt að
greiða skoðunargjöld erlendis, hér
þarf að gera slíkt hið sama.
IsNord-tónlistarhátíðin í
Borgarfirði verður nú haldin í ní-
unda sinn. Hátíðin hefur farið fram
víða á svæðinu og tónlistarflutn-
ingur oft á óvenjulegum stöðum.
Má þar nefna Surtshelli, í Grábrók-
argíg og niður við sjó á bænum
Álftanesi. Þetta árið verða tónleika-
staðirnir hefðbundnari, ef svo má
segja. Einir tónleikar verða í
Hjálmakletti í Borgarnesi, aðrir í
Reykholtskirkju. Síðan verða úti-
tónleikar í Englendingavík við
Edduveröld í Borgarnesi en botn-
inn verður sleginn með heimsókn
hjá listamönnum er bjóða til stofu-
tónleika á heimilum sínum. List-
rænn stjórnandi hátíðarinnar frá
upphafi hefur verið Jónína Erna
Arnardóttir píanóleikari og henni
til fulltingis, Margrét Guðjóns-
dóttir.
Grunnskólabörn í Varma-
landsskóla kláruðu skólann í gær.
Mikið var um dýrðir, ekki síst hjá
yngstu nemendunum þar sem boðið
var upp á óhefðbundinn skóladag.
Sem dæmi mátti fara í gönguferðir
um skóginn, leika sér í sundlaug-
inni, vinna handavinnu og fleira.
Nú flögrar ungviðið út í vorið, sem
vonandi er á næsta leiti, og kemur
svo reynslunni ríkari til baka í
haust.
Morgunblaðið/BGK
Náttúruperlur Rukka þarf fyrir skoðun á fjölförnum ferðamannastöðum eins og Grábrók í Borgarfirði.
Ungviðið í Borgarfirði
flögrar út í tvístígandi vorið
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF)
mótmæla ákvörðun borgaryfirvalda
um fyrirhugaðan flutning innan-
landsflugvallar úr Vatnsmýrinni.
Í tilkynningu frá samtökunum lýsa
þau furðu sinni á ákvörðun meirihluta
borgarstjórnar Reykjavíkur að setja í
drög að aðalskipulagi borgarinnar
ákvörðun um að leggja af norður/suð-
ur-brautina árið 2016 en flugrekend-
ur, flugmálastjóri og aðrir þeir sem
best þekkja til líti svo á að þar með sé
flugvöllurinn ónothæfur. Á sama tíma
stendur til að byggja flugstöð sem
mun trúlega opna um svipað leyti og
flugvöllurinn hrekst í burtu.
Vísa í stjórnarsáttmálann
Samtökin vísa til stjórnarsáttmála
nýrrar ríkisstjórnar þar sem lögð er
áhersla á að flugvöllurinn verði í ná-
lægð stjórnsýslunnar. Samtökin
skora á borgaryfirvöld að endurskoða
afstöðu sína með tilliti til afleiðinga
þess ef starfsemin verður flutt til
Keflavíkur.
Bent er á að í skoðanakönnun sem
gerð var af Capacent Gallup meðal fé-
lagsmanna Samtaka ferðaþjónust-
unnar í september síðastliðnum komi
fram að 71% þeirra félagsmanna sem
tóku afstöðu vilji hafa höfuðstöðvar
innanlandsflugsins í Reykjavík frek-
ar en í Keflavík, segir í tilkynning-
unni.
Samtökin segja ljóst að þörfin á öfl-
ugu innanlandsflugi sé mikil, enda
þjóðhagslega hagkvæmur ferðamáti.
Þess vegna er mikilvægt að sú um-
gjörð sem innanlandsfluginu er sköp-
uð, s.s. staðsetning, ógni ekki þessu
hlutverki.
Mótmæla flutn-
ingi flugvallar
Gagnrýna meirihluta borgarstjórnar
Deilur SAF gagnrýna meirihluta í
borgarstjórn vegna áforma um flutning.