Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
„Já, ókei og hvernig klæðist
manneskja sem langar í samband
versus manneskju sem langar
ekki í samband?“
„Ekki þessi týpa er óendanlega skemmtileg lesning.
Björg er þvílíkur húmoristi og fangar heim ungra
íslenskra kvenna af svo mikilli snilld að maður skellir upp
úr hvað eftir annað!“ U N N U R E G G E R T S , S Ö N G - O G L E I K K O N A
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
GAMLI ÍSINN
- ÞESSI ÍSKALDI
Skalli • Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 - 23
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Ég minnist þess að það hafi verið
rigning þegar ég útskrifaðist, líkt
og nú,“ segir Sigfríður Niel-
johniusdóttir en hún fagnar 75 ára
stúdentsafmæli frá Mennta-
skólanum í Reykjavík. Hún útskrif-
aðist árið 1938 og var viðstödd
brautskráningu stúdentanna við
skólann í gær.
Það má með sanni segja að há-
tíðarhöldin hafi breyst nokkuð á
þessum 75 árum en Sigfríður á auð-
velt með að rifja upp hvernig út-
skriftum var fagnað hér áður fyrr.
„Við útskrifuðumst uppi á hátíð-
arsal í gamla skóla. Kennararnir
voru allir viðstaddir, auk Pálma
rektors. Þar sungum við skólasöng
sem Magnús Kjartansson orti auk
annarra stúdentasöngva en Sigfús
Einarsson tónskáld stjórnaði söng,“
segir hún.
Ljóst er að söngur einkenndi
útskriftirnar í meiri mæli á fyrri
helmingi síðustu aldar. Fáir gestir
voru viðstaddir útskriftina og ekki
voru haldnar stúdentsveislur hjá
hverjum nemanda. Þess í stað
skemmtu nýstúdentarnir sér allir
saman og ekki skorti fjörið.
„Þá hittumst við öll á Gamla-
Garði, sem þá var reyndar nýr, sett-
um upp hvítu kollana og gerðum
okkur glaðan dag.“ Á þeim tíma
þóttu húfurnar tilkomumiklar enda
kostuðu þær heilar 15 krónur. „Það
voru miklir peningar á þessum
tíma, enda ekta kreppa í samfélag-
inu þá.“
Áfram fjör á Þingvöllum
Þar með var þó ekki hátíðar-
höldunum lokið. 17. og 18. júní var
haldið landsmót stúdenta í Valhöll á
Þingvöllum. Þar komu saman stúd-
entar frá landinu öllu til þess að
skemmta sér saman og var þar mik-
ið sungið. Á landsmótinu voru einn-
ig fundarsköp, ræðuhöld og sam-
þykkt ályktun til stjórnvalda.
Kvöldið 18. júní var svo haldið loka-
hóf landsmótsins á Hótel Borg í
Reykjavík. Hvítu kollarnir fengu að
vera á húfunum allt sumarið en
þegar tók að hausta voru kollarnir
teknir af og húfurnar notaðar sem
höfuðfat allan veturinn, enda um
vandaðar húfur að ræða. Í bekknum
hennar Sigfríðar voru 20 stúlkur og
sex strákar en hún var nemandi við
máladeild skólans. Á þeim tíma
voru engar stúlkur í stærðfræði-
deild. „Þá var álitið að stúlkur gætu
ekki lært stærðfræði, en það hefur
nú sýnt sig annað!“ segir Sigfríður.
Menntaskólaárin minnisstæð
„Ég man dimission-daginn okk-
ar, en þá hafði einni stúlkunni verið
gefinn manhattan-kokteill í pela.
Það fór nú ekki betur en svo að um
leið og hún bragðaði á drykknum
fékk hún aðsvif. Svo um kvöldið
þegar við vorum að skemmta okkur
vorum við saman allar tuttugu
stúlkurnar með eina litla sérrí-
flösku, svona voru nú fagnaðarlætin
þá,“ segir hún en hin mörgu skóla-
ferðalög líða henni seint úr minni.
„Minnisstæðust eru ferðalögin
út á land. Þau voru ævintýrum lík-
ust,“ segir hin lífsreynda Sigfríður
að lokum.
Fagnaðarlætin stóðu
yfir í marga daga
Morgunblaðið/Rósa Braga
Stúdentsafmæli Sigfríður á 75 ára stúdentsafmæli í ár og var viðstödd brautskráningu nýstúdenta í gær.
Fagnar 75 ára stúdentsafmæli Útskrifaðist árið 1938
Útskrift í MR
» Skólinn á rætur að rekja
til biskupsstólsins í Skálholti
sem stofnaður var 1056.
» Skólinn hefur verið í nú-
verandi húsnæði frá árinu
1846.
» Árið 1937 var heiti skól-
ans breytt í núverandi nafn,
Menntaskólann í Reykjavík.
» 234 stúdentar braut-
skráðust frá skólanum í gær.
Hagsmunasamtök heimilanna segja
að máli gegn Íbúðalánasjóði, sem
Hæstiréttur vísaði frá dómi í síð-
asta mánuði, sé hvergi nærri lokið
og að tekin hafi verið ákvörðun um
að leggja fram nýja stefnu í Héraðs-
dómi Reykjavíkur sem allra fyrst.
Í málinu sem um ræðir höfðuðu
hjón mál gegn Íbúðalánasjóði
vegna verðtryggingar á láni þeirra.
Þau gerðu þá kröfu að viðurkennt
væri að Íbúðalánasjóði væri ekki
heimilt að krefjast greiðslu á nein-
um hluta heildarlántökukostnaðar í
merkingu tiltekins ákvæðis laga um
neytendalán af húsnæðisláni
þeirra. Íbúðalánasjóður krafðist
þess að málinu yrði vísað frá. Hér-
aðsdómur komst að þeirri nið-
urstöðu að vísa dómnum frá og
staðfesti Hæstiréttur þá nið-
urstöðu.
Málinu hvergi nærri lokið