Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Gunnar Baldvinsson, formaður
Landssamtaka lífeyrissjóða, greindi frá
því á aðalfundi samtakanna í fyrradag,
að raunávöxtun lífeyrissjóða á árinu
2012 hefði verið 7,3% að meðaltali og
að heildareignir lífeyrissjóða í mars
2013 hefðu numið 143% af vergri
landsframleiðslu, eða sem nemur
2.440 milljörðum króna. Í máli Gunnars
kom jafnframt fram að af heildar-
eignum lífeyrissjóða hefði hlutfall er-
lendra eigna í mars 2013 verið um 23%,
eða sem nemur liðlega 560 milljörðum
króna.
Gunnar sagði að í almannatrygg-
ingakerfinu væru tekjutengingar sem
væru óásættanlegar og græfu undan
stoðum lífeyrissjóðakerfisins.
„Veikleiki íslenska lífeyrisskerfisins er
almannatryggingakerfið sem greiðir
tekjutengdar lífeyrisgreiðslur sem falla
niður þegar aðrar tekjur fara yfir ákveð-
in mörk,“ sagði Gunnar.
Erlendar eignir lífeyr-
issjóðanna 560 ma.
● Vöruskiptin við útlönd voru hagstæð
um 30,5 milljarða króna á fyrstu fjórum
mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra
voru vöruskiptin hagstæð um 27,7 millj-
arða króna.
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur
fyrir 51,5 milljarða króna og inn fyrir
tæpa 46,7 milljarða króna fob (50,5
milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl,
reiknuð á fob-verðmæti, voru því hag-
stæð um 4,9 milljarða króna. Í apríl
2012 voru vöruskiptin hagstæð um 9,2
milljarða króna. Vöruútflutningur á
fyrsta ársfjórðungi jókst um 2,1% frá
fyrra ári á gengi hvors árs og innflutn-
ingur um 6,3%. Stærstu viðskiptalönd
voru Holland í vöruútflutningi og Nor-
egur í vöruinnflutningi og var EES þýð-
ingarmesta markaðssvæðið.
Vöruskipti við útlönd
hagstæð um 30,5 ma.
17% frá fyrsta ársfjórðungi í fyrra.
Arðsemi eigin fjár var 19,9% en
6,2% janúar til mars í fyrra. Eigið
fé TM var í lok fjórðungsins 10,7
milljarðar og eiginfjárhlutfall í lok
fyrsta ársfjórðungsins 33%.
Haft er eftir Sigurði Viðarssyni,
forstjóra TM, í tilkynningu, að
samkeppni á tryggingamarkaði sé
mjög hörð og afkomubatinn sé ekki
tilkominn vegna hækkunar ið-
gjalda heldur vegna lægri tjóna-
kostnaðar. Hann sé ánægður með
uppgörið en segir afkomuna geta
sveiflast mikið. Afkoman af vá-
tryggingastarfsemi á fyrsta árs-
fjórðungnum hafi verið betri en
áætlanir gerðu ráð fyrir.
„Það hefur verið yfirlýst mark-
mið okkar um árabil að bæta af-
komu vátryggingastarfsemi TM
þannig að hún standist samanburð
við sambærileg norræn vátrygg-
ingarfélög. Rekstrarniðurstöður
fyrsta ársfjórðungs, og raunar síð-
ustu missera einnig, staðfesta að
við erum komin vel á veg með þetta
markmið okkar,“ segir hann.
Hagnaður Tryggingamiðstöðvar-
innar (TM) nam 522 milljónum
króna á fyrsta ársfjórðungi, en á
sama tímabili í fyrra var hagnaður
félagsins 191 milljón króna.
Í árshlutauppgjöri TM kemur
fram að hagnaður fyrir skatta nam
603 milljónum króna en í fyrra var
hagnaður fyrir skatta 242 milljónir
króna. Framlegð af vátrygginga-
starfsemi var 223 milljónir króna,
fjárfestingartekjur námu 509 millj-
ónum króna, eigin iðgjöld hækkuðu
um 6% og eigin tjón lækkuðu um
Morgunblaðið/Eggert
TM Tryggingamiðstöðin stórjók
hagnað sinn á fyrsta fjórðungi.
Góður hagnaður hjá TM
TM jók hagnað sinn á fyrsta ársfjórðungi um 331 milljón
króna Skýrist af lægri tjónakostnaði hjá félaginu
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Eign spænskra banka á ríkisskulda-
bréfum spænska ríkisins jókst um
meira en 10% á fyrstu þremur mán-
uðum ársins. Þessi mikla aukning er
talin ein helsta ástæða þess að lán-
tökukostnaður spænska ríksisins
hefur lækkað á undanförnum mán-
uðum þrátt fyrir að samtímis hafi
ríkt mikil óvissa á evrusvæðinu
vegna pólitískrar pattstöðu á Ítalíu
og bankakreppu á Kýpur. Ávöxtun-
arkrafan á tíu ára ríkisbréf lækkaði
úr 5% í 4% frá febrúar til maí.
Frá því er greint í Financial Times
að ríkisskuldabréfaeign spænskra
banka hafi numið 225 milljörðum
evra í lok mars á þessu ári. Samtals
eiga spænskir bankar um 40% af öll-
um útistandandi skuldum ríkisins.
Sókn spænskra banka í ríkis-
skuldabréf landsins hefur verið nán-
ast samfelld frá því að Evrópski
seðlabankinn tók þá ákvörðun í árs-
byrjun 2012 að lána fjármálastofn-
unum á evrusvæðinu meira en þús-
und milljarða evra til þriggja ára á
1% vöxtum. Spænskir bankar sóttu
sér fjármagn fyrir meira en 230
milljarða evra og var stór hluti þess-
ara lána nýttur til að kaupa spænsk
ríkisskuldabréf. Sumir greinendur
hafa talið að bankarnir hafi verið
undir þrýstingi frá þarlendum ráða-
mönnum um að nýta lánin til að fjár-
magna viðvarandi halla ríkisins.
Financial Times hefur hins vegar
eftir Justin Knight, greinanda hjá
svissneska bankanum UBS, að kaup
bankanna á spænskum ríkisskulda-
bréfum á undanförnum mánuðum
séu líkast til ekki vegna þrýstings
ráðamanna í Madrid. Færa megi rök
fyrir því að slík kaup séu ábatasöm
vaxtamunarviðskipti.
Margir hagfræðingar vara þó við
þessari þróun og benda á að það
verði að óbreyttu enn erfiðara að
koma auga á hvar bankinn byrjar og
ríkið endar þegar horft er til efna-
hagskreppunnar á Spáni. Ekki sé
víst að jafn umfangsmikil fjárfesting
í spænskum ríkisskuldabréfum sé
eins áhættulaus og stundum sé
gengið út frá.
Gríðarleg óvissa ríkir um raun-
verulega stöðu spænska bankakerf-
isins. Fjármálastofnanir hafa verið
mjög tregar í taumi að ráðast í af-
skriftir á lánum heimila og fyrir-
tækja sem standa frammi fyrir veru-
legum greiðsluerfiðleikum. Er það
mat flestra greinenda að spænskir
bankar muni að endingu þurfa að
niðurskrifa lán að andivirði um 200
milljarða evra. Hátt í helmingur
þessara lána er hins vegar enn færð-
ur til bókar hjá spænskum lánastofn-
unum eins og þau séu í fullum skil-
um. Þannig hefur bönkum tekist að
fresta því að bókfæra varúðarniður-
færslu vegna óhjákvæmilegra út-
lánatapa í framtíðinni.
Spænskir bankar annast
fjármögnun spænska ríkisins
Eign þeirra í ríkisskuldabréfum Spánar jókst um 10% á fyrsta fjórðungi
Mótmæli Spænska bankakerfið stendur mjög höllum fæti.
Fjármagna ríkið
» Spænskir bankar juku eign
sína í skuldabréfum spænska
ríkisins um 10% á fyrstu þrem-
ur mánuðum ársins.
» Samtals eiga þeir um 40%
af öllum útistandandi skuldum
spænska ríkisins.
» Aukin sókn spænskra banka
í ríkisskuldabréf hefur orðið til
að lækka verulega lántöku-
kostnað ríkissjóðs Spánar.
» Greinendur telja að banka-
kerfið þurfi að lokum að af-
skrifa um 200 milljarða evra af
útlánum sínum.
Icelandic Water
Holding, sem flyt-
ur út íslenskt
vatn undir merkj-
um Icelandic
Glacial, hefur
samið við taí-
lenska dreifing-
arfyrirtækið
Brewberry um að
dreifa vatninu í
Taílandi. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá Icelandic Glacial.
Jón Ólafsson stofnaði fyrirtækið
árið 2005 ásamt Kristjáni syni sín-
um. Jón er stjórnarformaður fyr-
irtækisins.
Bandaríska fyrirtækið Anheuser-
Busch dreifir vatninu í Bandaríkj-
unum og keypti 20% hlut í átöpp-
unarverksmiðjunni árið 2007.
Selja til
Taílands
Jón
Ólafsson
Jón Ólafsson flyt-
ur út íslenskt vatn
!"# $% " &'( )* '$*
+,,-./
+01-+,
++0-,2
,+-33
,4-03/
+0-5+
+,0-,3
+-,+11
+03-.
+52-4.
+,,-/1
+01-5/
++0-1.
,+-32,
,4-020
+0-51.
+,0-52
+-,,4,
+03-25
+52-.0
,+1-351,
+,3-45
+0/-4,
++0-22
,+-.5.
,4-252
+0-1+0
+,0-25
+-,,30
+0.-5
+52-2,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing