Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 21
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
5
8
0
Þriðja árið í röð bárum
við sigur úr býtum í átakinu
Hjólað í vinnuna í flokknum
800+ starfsmenn.
Vilborg Arna pólfari kom til liðs við okkur og kenndi okkur
og viðskiptavinum markmiðasetningu með fyrirlestraröðinni „Það er svalt að
setja sér markmið“. VÍB og Kauphöllin stóðu að verkefninu Raddir
atvinnulífsins, við héldum námskeið í notkun á Meniga
og settum upp fasteignamælaborð á vefnum okkar í samvinnu við
DataMarket. Við efndum til funda og fræðslu umWarren Buffet,
Steve Jobs, tækifæri á norðurslóðum, skráningu VÍS og TM, húsnæðismál,
efnahagsmál, séreignarsparnað og margt fleira.
Við buðum hjálparhönd og gáfum starfsfólki tækifæri til
að verja vinnudegi í sjálfboðavinnu í þágu góðs málefnis.Við veittum
Hvatningarverðlaun í ferðaþjónustu, stóðum að
Frumkvöðlakeppni kvenna ásamt FKA og Opna háskólanum í
Reykjavík,veittum styrki úr Frumkvöðlasjóði til verkefna á
sviði orku- og sjávarútvegs og styrkjum barna- og unglingastarf
Golfsambands Íslands.
Já, og svo þeystum við rúmlega 30.000 kílómetra í
Hjólað í vinnuna og tókum okkar flokk með trompi.