Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar
henta mér afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig
líkamanum í góðu formi þrátt fyrir gigt og fleira sem
fylgir mínum aldri. Eftir skurðaðgerð nýlega fór ég í
6 vikna geislameðferð og meðan á meðferðinni stóð
stundaði ég líkamsræktina 4x í viku. Félagsska-
purinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra starfs-
fólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst
aldrei úr tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt
þegar mér hentar.
Tilboð júní og júlí
9.900 kr.
Gildir 1. júní-31. júlí
Tilboð trimform
7.500 kr.
5 skipti og gildir í 2 vikur
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins
30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
Bjóðum einnig
upp á trimform
Inga Hildur Yngvadóttir - 48 ára snyrti- og
fótaaðgerðafræðingur.
Ég er búin að vera í Curves í 7 ár og líkar mjög vel ég
mæti alltaf 3 í viku. Mér finnst gott að ráða hvenær ég
kem og hversu oft . Mér finnst mikill kostur að þurfa
ekki að stilla tækin og að ég sé að taka á öllum helstu
vöðvahópum. Mér líður mjög vel á eftir og ekki er
verra að halda kílóunum í skefjum og vera styrkari og
liprari. Frábær stöð sem er bara fyrir konur og þarna er
skemmtilegt starfsfólk og mjög góður andi.
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
FASTEIGNASALA
FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN
Vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá
.... Hafðu samband
Til sölu 24,2 fm eldra sumarhús á 1.752 fm eignarlóð við Hvannalund 10,
í landi Miðfells Bláskógabyggð. Verð 4,5 millj. Tilv: 131236
Nánari upplýsingar á vef fasteignamiðstöðvarinnar, fasteignamidstodin.is
HRINGIÐ Í SÍMA 865-6020 ÞÓR HANN OPNAR HLIÐIÐ INN Á SVÆÐIÐ.
Opið hús sunnudag 2. júní kl. 12-14
Op
ið
hú
s
Sumarhús Hvannalundur 10
Einar Benediktsson
var alvörumaður.
Hann var maður hinna
stóru verka, maður
sem þorði. Einar var
ekki bara skáld, held-
ur frumkvöðull, og
hvatti landann til dáða
til sjávar og sveita. Í
þá tíð var ein þjóð í
þessu landi og barðist
hetjulegri baráttu fyr-
ir lífinu. Nú búa tvær þjóðir í land-
inu, ólíkar að hugsun og innra eðli.
Önnur þjóðin er gefendur, hin
þiggjendur. Ég hef búið með báð-
um þessum þjóðum, þótt ég telji
mig eindregið með þeim sem búa á
landsbyggðinni. Eftir kynni mín af
þessu fólki er það heiðarlegra,
hreinskiptnara og vingjarnlegra.
Ég hef búið helminginn af starfs-
ævi minni á höfuðborgarsvæðinu og
hinn helminginn á landsbyggðinni, í
Neskaupstað og á Bíldudal. Segja
má að ég hafi kynnst hinum sanna
Íslendingi, sjómönnum, bændum og
vinnandi fólki sem býr á lands-
byggðinni, ég kynntist Norðfjarð-
arkommunum, sem voru heið-
ursmenn. Hugsun þessa fólks er að
halda landinu í byggð og vinna
gagn fyrir land og þjóð. Svo hef ég
líka kynnst sjálfhverfa snobbinu og
mennta- og menningarvitunum á
höfuðborgarsvæðinu
sem halda að allt eigi
að snúast í kring um
naflann á þeim. Fyrir
þetta fólk er til dæmis
Sinfóníuhljómsveitin
gerð út, fyrir morð
fjár, Harpa var byggð
fyrir þetta lið og óper-
an starfrækt, svo
dæmi sé tekið. Það
dapurlega er að
snobbið vill fá allt
frítt. Aðgangseyrir á
þessa viðburði er stór-
lega niðurgreiddur og mér sýnist
að þeir sem kaupa sig inn borgi
10% af því sem miðinn ætti að
kosta. Hverjir borga fyrir menning-
arvitana? Það er jú landsbyggð-
arfólkið. Þannig að þegar þetta
dæmi er gert upp er þetta hrein og
klár ómenning.
Í hallarglaumi var hjarta mitt fátt.
Hreysið ég kaus með rjáfrið lága,
geðið ber ugg þegar gengi er hátt,
gleðin er dýpst við það smáa.
(EB)
Úti á landsbyggðinni er lífið mun
gjöfulla, þar er maður manns gam-
an, allir búa í sátt og samlyndi og
enginn keyrir um á Range Rover-
skuldahala. Þegar ég hugsa til
snobbsinns man ég eftir kerlingu
sem fór að sjá Aidu. Í kaffitím-
anum í vinnunni þurfti hún að láta
ljós sitt skína og sagði á innsoginu:
„Guð þetta er svo frábært stykki,
hann var algjört séní hann Beetho-
ven. Svo voru söngvararnir æð-
islegir.“ Fólk getur alveg reynt að
telja mér trú um að það sé gaman
að fara á sinfóníuna, ég veit betur
eftir að hafa farið tvisvar. Það þarf
stórskrítið fólk til að hafa gaman af
þessum hávaða. Ég held nefnilega
að snobbið fari á sinfóníuna til að
segja frá því á kaffistofunni hvað
það er menningarlegt. „Ég fór á
sinfóníuna í gærkvöld, ó gvöð hvað
það var gaman.“ Það ætti líka að
geta þess að þjóðin bauð því af því
það tímdi ekki að borga kostn-
aðarverð fyrir miðann. Nei, má ég
freka biðja um félagsskap lands-
byggðarfólksins. Hér á Bíldudal
ríkir friður og sátt, vinátta og
bræðralag. Hvað getur maður beð-
ið um meir? Svo setur maður
Frjáls eins og fuglinn á fóninn og
lygnir aftur augunum.
Með augun á hisminu
blind við hvern kjarna
Eftir Ómar
Sigurðsson » „Í hallarglaumi var
hjarta mitt fátt.
Hreysið ég kaus með
rjáfrið lága, geðið ber
ugg þegar gengi er hátt,
gleðin er dýpst við það
smáa.“ (EB)
Ómar Sigurðsson
Höfundur er skipstjóri.
Vertíðarlok í Gullsmáranum
Spilað var á 15 borðum í Gull-
smára, fimmtudaginn 30. maí.
Úrslit í N/S:
Þórður Jörundsson - Jörundur Þórðarson 54
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonsson 320
Örn Einarsson - Jens Karlsson 307
Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 289
Gunnar Sigurbj.- Sigurður Gunnlaugss. 284
A/V
Ásgr. Aðalsteinss. - Viðar Valdimarss. 333
Bergur Þorleifss. - Rósmundur Jónss. 331
Haukur Guðmss. - Stefán Ólafsson 330
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 317
Birgir Ísleifss. - Jóhann Ólafsson 305
Boðið var upp á kaffi og meðlæti í
tilefni þess að þetta var síðasti
spiladagur fyrir sumarfrí.
Stigahæstu spilarar félagsins (í
spilamennsku til vors) urðu:
Katarínus Jónsson ,Jón Bjarnar
Sigvaldason, Jón Jóhannsson og Við-
ar Valdimarsson.
Við þökkum samstarfið og minn-
um á að spilamennska hefst að nýju
12. ágúst.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Fimmtudaginn 30. maí var spilað-
ur tvímenningur hjá Bridsdeild Fé-
lags eldri borgara í Stangarhyl 4,
Reykjavík. Keppt var á 14 borðum.
Meðalskor var 312. Efstir í N - S
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 376
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 376
Ægir Ferdinandss. - Helgi Hallgrss. 353
Helgi Samúelss. - Sigurjón Helgason 337
A - V
Guðjón Eyjólfsson - Sigurður Tómasson388
Jón Þ. Karlsson - Björgvin Kjartanss. 286
Axel Lárusson - Bergur Ingimundars. 361
Oddur Jónsson - Kristján Guðmss. 351
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Líklega eigum við
það öll sameiginlegt
að þrá að fá að njóta
lífsins og þess sem
ávextir lífsins anda
geta fært okkur. En
þeir eru: Kærleikur
og gleði, friður og
frelsi, gæska og gjaf-
mildi, góðvild, lang-
lyndi og trúmennska,
hógværð, áreiðanleiki
og æðruleysi. Að
ógleymdu hugarfari fyrirgefningar
og þakklætis.
En gleymum ekki
kjarnanum, uppsprettunni
Við eigum það líka flest einnig
sameiginlegt að hætta til að
gleyma kjarnanum, uppsprettunni.
Honum sem kveikti lífið og full-
komnaði það með anda sínum. Með
því að gerast maður af holdi og
blóði, deyja í okkar stað, rísa upp
frá dauðum og tileinka okkur sigur
lífsins. Fara síðan til þess að búa
okkur stað í himinhæðum þar sem
sárin verða grædd og allt mun
verða nýtt.
Með því að gleyma kjarnanum,
skilja hann frá, henda honum eða
vilja ekki kannast við hann þynn-
ast ávextirnir með tímanum. Við
tökum að útfæra kærleikann út frá
þröngsýnum þörfum sérhagsmuna
og eigingirni svo hann skilyrðist og
snýst að lokum upp í andhverfu
sína. Þá tekur friðurinn að fyrnast
og frelsið að frjósa. Gleðin fölnar
og glatast svo smátt og smátt.
Góðvildin umhverfist, langlyndið
styttist og hógværðin verður að
hræsnisfullum hroka svo við ber-
um ekki þann ávöxt sem okkur var
ætlað að gera.
Til þess að ávextirnir þynnist
ekki er svo mikilvægt að gleyma
ekki uppruna sínum, kjarna lífsins
og gildunum dýrmætu sem höf-
undur lífsins vill færa okkur svo
við fáum prýtt tilveruna og gert
heiminn að betri stað.
Svo við getum hald-
ið áfram að njóta
ávaxta andans þarf að
neyta kjarnans svo við
berum þann ávöxt
sem við innst inni
þráum að bera og
okkur var ætlað að
gera. Ávöxt sem varir
til eilífs lífs.
Því þurfum við að
vera í stöðugri endur-
skoðun og standa vörð
um okkur sjálf. Njóta þess að
þiggja það meðvitað að láta lífsins
anda um okkur leika svo við fáum
notið í botn þeirra ávaxta sem
hann býður okkur upp á dag
hvern.
Gleymum bara ekki kjarnanum,
uppsprettunni!
Allir vilja njóta
ávaxtanna
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson » Til þess að ávext-
irnir þynnist ekki
er mikilvægt að gleyma
ekki kjarnanum, upp-
sprettunni svo við
áfram fáum notið
ávaxtanna sem lengst
og best.
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur.