Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
Í Landsbankanum þarfnast um 30
þúsund lán skoðunar í kjölfar dóms
Hæstaréttar í fyrradag. Hann varð-
aði uppgjör vegna endurreiknings
vaxta og afborgana af erlendu láni
sem tekið var hjá SP-Fjármögnun á
sínum tíma en Landsbankinn tók við.
Skv. dómnum var Landsbankanum
óheimilt að reikna seðlabankavexti
afturvirkt á gengistryggð bílalán og
kaupleigusamninga.
„Lýsing er að kynna sér dóminn
og sýnist Hæstiréttur leggja þarna
til aðrar leiðir en gert hefur verið áð-
ur,“ segir Þór Jónsson, upplýsinga-
fulltrúi Lýsingar, spurður um áhrif
dómsins. Að mati Lýsingar kallar
niðurstaða Hæstaréttar á lögfræði-
lega yfirlegu áður en hægt verði að
lýsa afstöðu fyrirtækisins.
Landsbankinn ætlar
að skoða 30 þúsund lán
Landsbankinn hefur beðið eftir
þessum dómi og lýsir ánægju með að
niðurstaða hefur fengist í málinu,
segir í fréttatilkynningu frá bankan-
um. „Það er fagnaðarefni að dóm-
urinn eyðir tiltekinni óvissu sem ríkt
hefur um endurreikning bílálána.
Landsbankinn hefur nú þegar hafið
vinnu við að yfirfara endurreikning
allra sambærilegra bílalána hjá
bankanum. Þar sem við á mun end-
urreikningurinn verða leiðréttur
þannig að hann verði í samræmi við
niðurstöðu dómsins.
Þau lán sem þarfnast skoðunar í
Landsbankanum vegna dómsins eru
um það bil 30.000 talsins. Því er ljóst
að hér er um afar umfangsmikið
verkefni að ræða. Vinnunni verður
hraðað eins og auðið er og er gert er
ráð fyrir að fyrstu bílalánin verði
leiðrétt í byrjun júlí næstkomandi,“
segir í frétt bankans.
Telur dóminn fordæmisgefandi
Umboðsmaður skuldara telur að
dómurinn taki til tugþúsunda lána
sem þurfi að endurreikna. Dómurinn
sé líka fordæmisgefandi fyrir lán hjá
Lýsingu, að sögn Svanborgar Sig-
marsdóttur, upplýsingafulltrúa um-
boðsmanns skuldara. ,,Við fögnum
þessum dómi. Hann leysir úr ágrein-
ingi varðandi bílalánin,“ segir hún.
Íslandsbanki hefur nú þegar
endurreiknað 7.200 bílalán og kaup-
leigusamninga í samræmi við dóma
Hæstaréttar sem féllu á síðasta ári,
svonefnda kvittanadóma.
Í tilkynningu frá bankanum í gær
er bent á að bankarnir hafi í fyrra
með samþykki Samkeppniseftirlits-
ins, valið 11 dómsmál til að svara
þeim álitamálum sem enn stóðu eftir
dóm sem féll í febrúar 2012. Dómur
sem féll í október skýrði svo betur
hvernig lán sem hafa verið í skilum
skyldu endurreiknuð. „Í kjölfarið tók
Íslandsbanki af skarið og féll frá
dómsmálum til að flýta endur-
útreikningi. Mat bankinn það svo að
dómarnir tækju einnig til skamm-
tímalána, svo sem bílasamninga, og
ákvað því að bíða ekki eftir frekari
dómum. Ergo, fjármögnunarþjón-
usta Íslandsbanka, hóf strax endur-
útreikning og hefur í dag endur-
reiknað 7.200 bílalán og
kaupleigusamninga. Íslandsbanki er
því vel á veg kominn með endur-
útreikning þessara samningsforma í
samræmi við kvittanadóma Hæsta-
réttar.“
Gæti náð til tuga þúsunda
Landsbankinn gerir ráð fyrir að fyrstu bílalánin verði leiðrétt í byrjun júlí
Lýsing segir Hæstarétt leggja til aðrar leiðir en áður í dómi um gengislán
„Þetta var gúmmímotta sem gaf sig undan þunga af
lausu bergi og hefur lagst rólega út af,“ segir Svavar
Valtýsson hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, en sylla í
bergi gaf sig í Oddskarðsgöngum í gær. „Það eru
einhverjir fáeinir steinar í þessu en aðallega sandur
og möl. Þetta er smá sylla – ég myndi giska á tæp-
lega hálfur vörubíll sem fór á annan kantinn. Það var
nú ekki meira en það,“ segir hann.
Göngin eru opin og ekki urðu miklar tafir á
umferð.
Ljósmynd/Níels Þóroddsson
Hrundi úr syllu í Oddskarðsgöngum
Tvær rótgrónar útgerðir í Vest-
mannaeyjum hafa gengið inn í
kauptilboð bæjarins á dragnóta-
skipinu Portlandi VE 97. Útgerð-
irnar eru Dala Rafn ehf., og Út-
gerðarfélagið Glófaxi og eignast
fyrirtækin skip, búnað og tilheyr-
andi aflahlutdeild.
Í frétt frá bæjarfélaginu kemur
fram að Vestmannaeyjabær hafi
ákveðið að neyta þess forkaups-
réttar sem sveitarfélögum sé
áskilinn í lögum og ganga inn í
fyrirhugaða sölu á dragnótaskip-
inu Portland. Í framhaldinu hafi
bærinn framselt kauptilboðið til
fyrrnefndra fjölskylduútgerða í
Vestmannaeyjum eftir viðræður.
Aðkomu bæjarins að málinu er
þar með lokið.
Forgangsverkefni
ríkisstjórnar
„Vestmannaeyjabær fagnar því
að með þessu samkomulagi er
tryggt að umræddar aflaheimildir
fari ekki frá Vestmannaeyjum
með tilheyrandi skaða fyrir sam-
félagið,“ segir í fréttatilkynningu.
„Vestmannaeyjabær gerir sér
ljósa grein fyrir því að þessar rót-
grónu fjölskylduútgerðir hafa
tekið þessa ákvörðun í trausti
þess að hin nýja ríkisstjórn standi
við þær yfirlýsingar sem gefnar
hafa verið um að treysta rekstr-
argrunn sjávarútvegsfyrirtækja
með endurskoðun á veiðileyfa-
gjaldi og fl.
Slíkt verður að vera forgangs-
verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
Sjávarbyggðir, útgerðarmenn og
íbúar bíða því eftir efndum
stjórnarflokkanna á þeim lof-
orðum sem eru grundvöllurinn að
velgengni sjávarútvegsins og
sjávarsamfélaga.“
Rótgrónar
útgerðir
kaupa Port-
land VE
Leikur Sjómannadagur í Eyjum.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Skil ársreikninga fyrirtækja og félaga
hafa batnað upp á síðkastið en enn er
ástandið verra hér en í löndunum í
kringum okkur. Eftir að farið var að
beita sektarákvæðum hafa skilin
batnað. Í fyrra voru t.d. 1.417 félög
sektuð vegna vanskila á ársreikningi
ársins 2010.
Þessar upplýsingar koma fram í
grein Ólafs Magna Sverrissonar við-
skiptafræðings í Tíund, fréttablaði
ríkisskattstjóra. Lokaskiladagur árs-
reikninga á hverju ári er 31. ágúst og
er lítill hluti ársreikninga kominn inn
á þeim tíma. Í fyrra var 33.081 félag
skilaskylt vegna ársreiknings 2011
sem bar að skila inn til ársreikninga-
skrár ekki seinna en 31. ágúst 2012.
Þá hafði einungis 22,1% skilaskyldra
félaga skilað ársreikningi á réttum
tíma.
Úrræði að afskrá félög?
Þróunin er þó í rétta átt að mati
Ólafs. Árið 2009 var hlutfallið 18,2%.
Ólafur bendir á að ársreikningar ber-
ast nú fyrr en árin þar á undan. „Þann
31. desember 2012 voru heildarskil á
ársreikningum 2011 komin í 76,2% en
voru 74,3% árið áður vegna ársreikn-
inga 2010, og þar áður einungis 66,4%
vegna ársreikninga 2009,“ segir í
greininni.
Ólafur Magni segir hugsanleg úr-
ræði til að bæta enn frekar skilin gætu
m.a. falist í afskráningu á félögum sem
skila hvorki ársreikningum né skatt-
framtölum. Einnig gæti þurft að skoða
breytingar á núgildandi frestum til
skila á annars vegar ársreikningi með
framtali og hins vegar á ársreikningi.
Standa sig betur í skilum
1.417 félög sektuð í fyrra vegna vanskila á ársreikningi
Morgunblaðið/Golli
Fjöldi 33.080 félögum og fyrirtækjum
bar að skila ársreikningum í fyrra.
Fagráði kaþólsku kirkjunnar hafa
borist um 20 erindi frá því það tók
til starfa í desember á síðasta ári.
Meirihluti þeirra erinda sem hafa
borist felur í sér kvartanir vegna
ofbeldis eða harðræðis að sögn
Eiríks Elísar Þorlákssonar, for-
manns fagráðsins. Einnig hafa bor-
ist kvartanir vegna kynferðisbrota.
Hlutverk fagráðsins er m.a. að
veita biskupi kirkjunnar álit á því
hvort kynferðisbrot eða önnur of-
beldisbrot hafi átt sér stað innan
kirkjunnar. Í desember var gefið
út að fagráðið myndi skila áliti sínu
1. júní. Nú liggur fyrir að svo verð-
ur ekki. „Við vildum bara gefa okk-
ur aðeins betri tíma til að skila
sem vandaðastri vinnu,“ segir
Eiríkur um ástæður tafanna. Hann
segir vinnuna mjög langt komna og
álitinu verði skilað í allra síðasta
lagi 1. september nk.
heimirs@mbl.is
Um 20 er-
indi borist
fagráði
Meirihlutinn
snýr að ofbeldi
eða harðræði
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Blómapottar Mikið úrval afblómapottum í
öllum stærðum
og gerðum
SUMAR
TILBOÐ
30%
afsláttur