Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
Bandaríska jaðarkántrísveitin
Lambchop lýkur tónleikaferð sinni
um Evrópu með tónleikum í Iðnó 7.
júlí nk. og mun tónlistarkonan Lay
Low einnig koma þar fram. Lamb-
chop er frá Nashville og var stofn-
uð fyrir 20 árum. Sveitin mun vera
þekkt af því að fara ótroðnar slóðir
í tónlistarsköpun sinni og -flutningi
þó ræturnar séu í þjóðlaga- og
sveitatónlist Tennessee-ríkis. Um
tónleika Lambchop, eða „Lamba-
kótelettu“, segir í tilkynningu að
þeir séu mikil upplifun en áhuga-
samir geta kynnt sér hljómsveitina
á www.lambchop.net.
Lambakóteletta Hljómsveitin Lambchop leikur á Íslandi í júlí.
Jaðarkántrísveitin Lambchop í Iðnó
Átta viðburðir verða á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík
2013 á lokahelgi hátíðarinnar, en hátíðinni lýkur á morg-
un. Í dag verður boðið upp á málþing til heiðurs Guð-
bergi Bergssyni á hátíðarsal Háskóla Íslands milli kl. 10-
17. Þrjú leikrit verða flutt í jafnmörgum bókasöfnum
borgarinnar í dag. Þar er um að ræða Gestabókina eftir
Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar sem flutt
verður í Sólheimasafni kl. 16.00, Blinda konan og þjónn-
inn eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhann-
esdóttur verður flutt í Kringlusafni kl. 17.30 og Slysa-
gildran eftir Steinunni Sigurðardóttur í leikstjórn Hlínar
Agnarsdóttur í Gerðubergssafni kl. 19.00.
Á lokadegi Listahátíðar í Reykjavík 2013 á morgun
verða fjórir viðburðir á boðstólum. Þriðju og síðustu tón-
leikarnir með ástarsöngvum Roberts Schumann fara
fram í Fríkirkjunni á morgun kl. 11, en flytjendur eru
Ágúst Ólafsson barítón og Gerrit Schuil píanóleikari.
Allir fimmtán strengjakvartettar Dmitris Shostako-
vitsj verða fluttir í réttri númeraröð í Norðurljósasal
Hörpu á morgun á sjö tónleikum sem standa frá klukkan
tíu að morgni til tíu að kvöldi. Flytjendur eru tónlist-
armennirnir Alexey Naumenko, Anton Ilyunin, Dmitry
Pitulko og Anna Gorelova sem skipa Atrium String
Quartet. Margir kvartettanna eru afar sjaldan fluttir á
opinberum vettvangi og því gefst hér einstakt tækifæri
til að heyra verkin. Samkvæmt upplýsingum frá Listahá-
tíð munu verkin aldrei fyrr hafa verið flutt í heild sinni á
einum degi.
Óperustjarnan Diana Damrau kemur fram ásamt
franska hörpuleikaranum Xavier de Maistre í Eldborg-
arsal Hörpu annað kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru ljóð
eftir Schubert, Tárrega og Strauss en einnig valdar perl-
ur franskra ljóðatónbókmennta.
Lokaverk Listahátíðar í ár er CAT 192 eftir Ilan Vol-
kov og Hlyn Aðils Vilmarsson, en verkið sömdu þeir sér-
staklega fyrir hátíðina. Það er fyrsti kaflinn í röð verka
sem bera heitið Acoustic Series. Höfundarnir byggja á
einstöku hljómburðarkerfi Eldborgar, sem er hannað
fyrir þann sveigjanleika sem nútímatónleikasalir krefj-
ast. Verkið er flutt með hljómskildi yfir sviði salarins,
ómrýmum til hliðar við sviðið og teppum inni í salnum og
í ómrýmum. Flutningur verksins hefst annað kvöld kl.
22.30.
Verkið CAT 192
frumflutt í Hörpu
Leikið á hljómburð Eldborgar í lokaverki Listahátíðar
Óperustjarna Diana Damrau kemur fram á hátíðinni.
Hljómsveitin Sign vinnur nú að
nýrri plötu og er stefnt að útgáfu
hennar seinna á árinu. Ragnar Sól-
berg og Arnar Grétarsson, for-
sprakkar hljómsveitarinnar, hafa
dvalið í Noregi við lagasmíðar og
Daniel Bergstrand, í hljóðverinu
Dugout í Uppsölum, mun stýra upp-
tökum. Bergstrand hefur stýrt upp-
tökum á plötum hljómsveita sem
munu vera í miklu uppáhaldi hjá
Sign-urum, m.a. Meshuggah, In
Flames, Devin Townsend og
Strapping Young Lad. Liðsskipan
Sign á tónleikum verður breytileg á
næstu misserum, allt eftir því hverj-
ir komast, skv. tölvupósti og segir
þar að líklega muni trommuleikari
Pain of Salvation koma fram með
hljómsveitinni. Sign er ein þeirra
sveita sem leika á Keflavík Music
Festival, fimmtudaginn 6. júní .
Öflugir Ragnar Sólberg og félagar í Sign kalla ekki allt ömmu sína.
Sign tekur upp plötu í Uppsölum
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
HANGOVER3 KL.1:30-3:40-5:50-8-10:20-10:50
HANGOVER3VIP KL.1:30-3:40-5:50-8-10:20
EPIC ÍSLTAL3D KL.1:30-3:40-5:50
EPIC ÍSLTAL2D KL.1:30-2-3:40-5:50
FAST&FURIOUS6 KL.5:20-8-10:40
THEGREATGATSBY2D KL.5:10-8
STARTREKINTODARKNESS 3D KL. 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 8
IRON MAN 3 2D KL. 2 - 8
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 10:50
KRINGLUNNI
HANGOVER - PART 3 KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20
THE GREAT GATSBY 2D KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 3 KL. 2D:2:50 3D:5:20 - 8 - 10:40
ÓFEIGUR GENGUR AFTUR KL. 3:20
HANGOVER 3 KL. 1 - 3:10 - 5:50 - 8 - 10:10
FAST & FURIOUS 6 KL. 1 - 5:20 - 8 - 10:40
EPIC ÍSLTAL3D KL. 1 - 3:30 - 5:40
EPIC ÍSLTAL2D KL. 1 - 3:10 - 5:20
THE GREAT GATSBY 2D KL. 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS 3D KL. 8 - 10:50
IRON MAN 3 2D KL. 3:10
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
HANGOVER-PART3 KL.5:50-8-10:20
FAST&FURIOUS6 KL.8-10:40
EPIC ÍSLTAL KL.2D:1:30 3D:1:30-3:40
EPIC ENSTAL KL. 5:50
THECROODS ÍSLTAL2D KL.3:40
AKUREYRI
HANGOVER - PART 3 KL. 3:40 - 5:40 - 8 - 10:20
THE GREAT GATSBY 2D KL. 5:10 - 8
STAR TREK INTO DARKNESS 3D KL. 10:50
IRON MAN 3 2D KL. 2:40
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
STÓRFENGLEG
EXHILARATING
ALDEILIS RÚSSÍBANI, ÞESSI MYND.
SJÁÐU HANA!
FRÁBÆR
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS
H.K. - MONITOR
TOPPAR ALLA FORVERA SÍNA Í STÆRÐ,
BRJÁLÆÐI OG HRAÐA.
T.V. - BÍÓVEFURINN
VINSÆLASTI GRÍNÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
FRÁBÆR GRÍNMYND
BRADLEY COOPER, ZACH GALIFIANAKIS & ED HELMS
ERU STÓRKOSTLEGIR Í NÝJUSTU MYND TODD PHILIPS
NEW YORK DAILY NEWS
3D 2DÍSL TAL
Í TILEFNI AF 75 ÁRA AFMÆLI SJÓMANNADAGSRÁÐS BJÓÐA SJÓMANNADAGSRÁÐ,
LAUGARÁSBÍÓ OG LATIBÆR FRÍTT Í BÍÓ LAUGARDAGINN 1. JÚNÍ OG SUNNUDAGINN
2. JÚNÍ KLUKKAN 12:00 Á HÁDEGI.