Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 64
Kanadíska rokksveitin Rush hélt
hljómleika í Glasgow á fimmtudaginn
Stundum kölluð „stærsta költsveit“
heims Morgunblaðið var á staðnum
Einhvern tíma upp úr 1990,þegar plötusöfnun mín var íallra hæstu hæðum, keypti
ég mér þrefalda safnplötu (á vínyl
nottulega) með hljómsveit sem kall-
aðist Rush. Ég kannaðist lítillega
við hana, aðallega í gegnum mynd-
band sem var mikið spilað á æskuár-
um mínum (Myndbandið við „Red
Sector A“ af Grace Under Pressure
svo við höfum þetta nú nákvæmt).
Aðallega fannst mér þó nafn hljóm-
sveitarinnar flott. Og platan líka.
Nafn hennar, Chronicles, gaf fyrir
það fyrsta til kynna að hér væri eitt-
hvað mikilvægt á ferðinni og hönn-
unin undirstrikaði það, með sínum
mikilúðlega dökkbrúna lit og stál-
gylltum stöfum.
Ég féll síðan umsvifalaust fyrir
bandinu og hef verið eitilharður
aðdáandi síðan. Ást mín er skilyrð-
islaus og það merkilega er, ég er síst
einn um það. Það þykir reyndar í
meira lagi undarlegt að þessi kan-
Sýndu mér,
ekki segja mér...
Ljósmynd/www.rush.com.
Næturflug Alex Lifeson og Geddy Lee á fullri ferð. Myndin var tekin í Glasgow núna á fimmtudaginn.
adíska sveit, sem á rætur í proggi og
er lítt spiluð á útvarpsstöðvum ( í
dag a.m.k.) á sér her fylgismanna
um allan heim. Hún hefur vegna
þessa verið kölluð „stærsta költ-
sveit“ heims, sveit sem enginn veit
hver er en selur á sama tíma plötur í
milljónatali og fyllir íþrótta-
leikvanga í öllum helstu stór-
borgum. Að vísu hefur hún aðeins
komið að meginstraumi mála að
undanförnu; vel heppnuð heimild-
armynd var gerð um hana fyrir ekki
svo löngu síðan (Rush: Beyond The
Lighted Stage), hún var innlimuð í
frægðarhöll rokksins í síðasta mán-
uði (af sjálfum Dave Grohl) og hefur
poppað upp í myndum og þáttum
Judd Apatow (m.a. í I Love You
Man með þeim Paul Rudd og Jason
Segel sem einn af lærisveinum Apa-
tow, John Hamburg leikstýrir).
Vélvirki englanna
En nóg um það! Ég fór semsagt á
tónleika með Rush á fimmtudaginn
og þegar ég skrifa þetta, í lestinni á
leiðinni aftur heim til Edinborgar
(tónleikarnir voru í Glasgow) eru lið-
lega 45 mínútur síðan þeir félagar
slógu lokatóninn.
Tónleikaferðalagið er vegna nýj-
ustu hljóðversplötu sveitarinnar,
Clockwork Angels, sem út kom í
fyrra. Tónleikahöllin, S.E.C.C.
(Scottish Exhibition and Conference
Centre) er hin burðugasta og fór at-
ið fram í einum salnum þar, sal sem
er svona eins og rúm Laugardals-
höll. Sitjandi tónleikar voru þetta (!)
sem mér þótti einkennilegt, átti
a.m.k von á því að gólfið yrði stand-
andi fyrir þá sem ætluðu að hrista á
sér skankana. Þetta fyrirkomulag
sagði kannski dálítið um markhóp-
inn, upp til hópa hvítir, nett nörda-
legir karlmenn á fimmtugsaldri með
björgunarhring og í Rush-bol sem
þeir báru stoltir. Hausaskak var
ekki mikið, en nóg af hæglæt-
islegum hökustrokum og augum
sem lygndust aftur á mikilvægum
augnablikum.
Fyrsta lagið var „Subdivisions“ af
Signals, skemmtileg tilviljun þar
sem það er uppáhalds Rush-lagið
mitt! Þið getið því rétt ímyndað ykk-
ur tilfinningarnar sem heltóku
greinarhöfund. Það er gaman þegar
maður finnur gæsahúðina streyma
um gervallan líkamann, fremur en
bara framhandleggina eins og vant
er. Ég var kominn til himna og bara
nokkrar sekúndur búnar. Næst var
það „Big Money“ og „Force Ten“.
Ég fæ aldrei nóg af þessum þessum
klingjandi yfirtónasólóum Alex Lif-
eson og einhverjir ættu að geta
tengt við þann unað að lifa sig inn í
lög þar sem maður kann hverja ein-
ustu gítarlykkju, hvert og eitt trom-
muslag og sérhvert bassaplokk aft-
ur á bak og áfram. Og þarna voru
þeir! Gítarguðinn Lifeson, Geddy
Lee, bassaleikari og söngvari og
prófessorinn sjálfur, trymbillinn og
textasmiðurinn Neil Peart. Það var
eitthvað óraunverulegt að hafa þá
þarna fyrir framan sig í rauntíma,
svei mér þá...
Hjartagrennd
Rush hefur nánast frá degi eitt
verið það sem kallast leikvanga-
rokkshljómsveit. Tónlistin er fyrir
það fyrsta „stór“ og epísk og síðar
urðu vinsældir sveitarinnar til þess
að sá vettvangur er þeirra heima-
svæði. Og liðsmenn Rush, fagmenn-
irnir sem þeir eru, fór með þá hug-
myndafræði alla leið. Sprengingar,
ljósadýrð, myndbönd á bak við svið-
ið og risaskjáir. Ekkert af þessu var
yfirdrifið, í þessu samhengi bara
eðlilegt.
Stutt hlé var gert eftir tíu lög
(m.a. var „Limelight“ og „The Ana-
log Kid“ spilað. Ég bendi grúsk-
urum líka á þessa stórfínu síðu:
www.setlist.fm) og svo sneri sveitin
aftur til að leika lög af Clockwork
Angels ásamt strengjasveit. Það var
virkilega gaman að fylgjast með
strengjunum, það var mikið rokk í
liðsmönnum þar sem þeir voru
íklæddir skítugum bolum og feyktu
flösu eins og enginn væri morg-
undagurinn. En það er merkilegt,
innst inni vill maður bara heyra það
sem maður þekkir á svona tón-
leikum. Eftir ca fjórða skammtinn af
nýmetinu var ég farinn að geispa.
Ekki þó að ég sé að gera lítið úr efn-
inu; Clockwork Angels er stórbrotið
og proggað verk; þungt bæði og
hart og vitnisburður um að Rush er
enn leitandi.
Undir endann fengum við svo það
sem við vildum og settið var leitt til
lykta með „The Spirit of Radio“.
„Tom Sawyer“ og syrpa úr 2112
voru uppklappið. Skrambinn. Ég
hefði gefið mikið fyrir „Red Barc-
hetta“ og „Closer to the Heart“. Og
„The Weapon“. Og, og og...
Eftir tónleika fann ég mig síðan í
strætó sem var yfirfullur af fyrr-
nefndum Rush-aðdáendum. Það var
fjör í mínum mönnum skiljanlega.
„And the men who hold high
places...“
» Sprengingar, ljósa-dýrð, myndbönd á
bak við sviðið og risa-
skjáir. Ekkert af þessu
var yfirdrifið, í þessu
samhengi bara eðlilegt.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS!
VINSÆLASTI GRÍNÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
New York Daily News
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
12
12
THE HANGOVER PART 3 Sýnd kl. 2 - 4:30 - 8 - 10:10
EPIC 3D Sýnd kl. 2 - 4:30
EPIC 2D Sýnd kl. 2 - 4 - 6
FAST AND FURIOUS 6 Sýnd kl. 7 - 8 - 10 - 10:40
„Toppar alla forvera sína í
stærð, brjálæði og hraða.”
- T.V., Bíóvefurinn
HHH
H.K.
-Monitor
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is