Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 21

Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 21
E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 5 8 0 Þriðja árið í röð bárum við sigur úr býtum í átakinu Hjólað í vinnuna í flokknum 800+ starfsmenn. Vilborg Arna pólfari kom til liðs við okkur og kenndi okkur og viðskiptavinum markmiðasetningu með fyrirlestraröðinni „Það er svalt að setja sér markmið“. VÍB og Kauphöllin stóðu að verkefninu Raddir atvinnulífsins, við héldum námskeið í notkun á Meniga og settum upp fasteignamælaborð á vefnum okkar í samvinnu við DataMarket. Við efndum til funda og fræðslu umWarren Buffet, Steve Jobs, tækifæri á norðurslóðum, skráningu VÍS og TM, húsnæðismál, efnahagsmál, séreignarsparnað og margt fleira. Við buðum hjálparhönd og gáfum starfsfólki tækifæri til að verja vinnudegi í sjálfboðavinnu í þágu góðs málefnis.Við veittum Hvatningarverðlaun í ferðaþjónustu, stóðum að Frumkvöðlakeppni kvenna ásamt FKA og Opna háskólanum í Reykjavík,veittum styrki úr Frumkvöðlasjóði til verkefna á sviði orku- og sjávarútvegs og styrkjum barna- og unglingastarf Golfsambands Íslands. Já, og svo þeystum við rúmlega 30.000 kílómetra í Hjólað í vinnuna og tókum okkar flokk með trompi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.