Morgunblaðið - 01.06.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 01.06.2013, Síða 31
FRÉTTIR 31Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is Að sögn Magna R. Magnússonar, safnara og fyrrverandi kaupmanns, verður mikið um sjaldgæf söfn og verðmæti á Nordia-sýningunni. „Ég hef sjálfur safnað í yfir 60 ár. Ætli það sé ekki einhver söfn- unarþörf í manninum,“ segir Magni, spurður um ástæðu þess að menn fari að safna frímerkjum. Þegar hann byrjaði söfnunina, í kringum 1948, var ekkert til sem hét sjón- varp, bara útvarpið og blöðin. Strák- ar hittust í bíóinu klukkan þrjú á daginn til að skiptast á hasar- eða Andrésar andar blöðum. „Allir söfn- uðu einhverju,“ segir Magni sem telur iðjuna hafa dalað mikið vegna tilkomu annarra kosta við afþrey- ingu. „Þegar ég byrjaði var maður að læra og kynnast öðrum löndum í gegnum frímerkin. Þau sögðu sögu landanna, þjóða og sögu ein- staklinga. Fróðleikur kom þar fram og ég man að margir voru mjög góð- ir í landafræði vegna frímerkjanna, þeir vildu vita nánar um löndin sem þau komu frá.“ Gat ekki keppt við eigin kúnna Magni segir að í upphafi viðskipta sinna með frímerki hafi hann þurft að taka tillit til viðskiptavinanna. „Þegar ég byrjaði að versla með frímerki gat ég ekki safnað eins miklu, því þá hefði ég verið að keppa við mína eigin kúnna. Ef ég segði við einhvern: „Sjáðu hvað ég var að fá, þetta færð þú ekki, hefði ég lík- lega misst viðskiptin.““ Hann segir öll frímerkin í uppáhaldi. „Reyndar eru í einu þeirra viss tengsl sem eru afar skemmtileg. Einu sinni, löngu fyrir stríð, hafði tengdafaðir minn verið að kaupa vörur frá Búlgaríu. Þá fékk hann sendan pakka til landsins, með fylgibréfi og öðru og kvittaði fyrir því. Svo fór það út aft- ur. Síðar rakst ég á þetta sama fylgibréf í Svíþjóð, áratugum seinna. Þannig var sagan komin hringinn. Það er svo ótrúlega mikil saga á bak við þessa hluti.“ Magni segir menn í krefjandi störfum mikið hafa safnað. „Þeir sögðu við mig, að þegar þeir kæmu heim eftir erfiðan dag, þreyttir og með áhyggjur, þá leyfðu þeir sér að dunda í frímerkjunum og gleymdu þannig vandræðunum.“ Claes Arnrup til landsins Meðal þeirra sem von er á til landsins vegna sýningarinnar er Claes Arnrup, stofnandi sænsku frí- merkjauppboðssíðunnar Postil- jonen, sem er sú stærsta sinnar teg- undar á Norðurlöndum. Arnrup stofnaði Postiljonen aðeins tvítugur að aldri og hefur fyrirtækið verið starfandi í yfir 40 ár. „Sjálfur byrj- aði ég að safna sem ungur drengur, en ætli þetta hafi ekki orðið að skipulegri söfnun við 15 ára aldur. Fyrsta frímerkið var gefið út árið 1840 í Englandi og ég safna öllum frímerkjum sem gefin voru út frá því ári og til ársins 1860. Á þessum tíma voru þau gefin út í 83 löndum og í dag eru þetta um 900 frímerki í safninu hjá mér,“ segir Arnrup og bætir við að eftirlætis frímerkið hans sé fyrsta frímerk- ið er gefið var út í Sví- þjóð, hið svokallaða þriggja skildinga merki frá árinu 1855. „Safnaraeðlið býr í manninum“  Magni R. Magnússon bíður í ofvæni eftir norrænu frímerkjasýningunni  Segir mikinn fróðleik um sögu þjóða að finna í frímerkjum  Stofnandi stærstu uppboðssíðu Norðurlanda væntanlegur Morgunblaðið/Árni Sæberg Frímerkjasafnari Magni rak verslunina Hjá Magna á Laugaveginum í áratugi þar sem hann seldi myntir, frímerki og spil. Sjálfur hefur hann safnað frímerkjum í um 60 ár og heillast af sögunni sem býr að baki þeim. Landssamband íslenskra frí- merkjasafnara efnir til nor- rænnar frímerkjasýningar í íþróttahúsinu Ásgarði í Garða- bæ dagana 7. til 9. júní nk. Sigurður R. Pétursson, for- maður Landssambands frí- merkjasafnara og sýningar- nefndar, segir að helstu flokkar sýningarinnar séu; póstsögu- legur hefðbundinn flokkur, póstkortaflokkur, dómara- flokkur, flug- og skipapóstur, motive-flokkur, þar sem lögð er áhersla á sögu merkisins, auk bókmenntaflokks. Hápunktur sýningarinnar er heiðursflokk- urinn, en þar er að finna af- burðaflott söfn sem hlotið hafa mörg verðlaun. „Við höfum aldrei verið með jafnflott efni í Íslandsdeild, þar er t.d. safn Indriða Pálssonar, sem talið er vera eitt besta íslenska safn sem til er, ásamt mjög flottu efni frá Þjóðskjalasafninu. Þá verða einnig til sýnis frí- merkjateikningar, sem börn í grunnskólum Garðabæjar gerðu,“ segir Sigurður. Falleg íslensk frímerki NORDIA 2013 Sumarsýning Myndlistarsafns Tryggva Ólafssonar (Tryggvasafns) er í Safnahúsinu í Neskaupstað Sýningin opnar á sjómannadaginn, sunnudaginn 2. júní nk. klukkan 13.00. Sýningin verður opin frá klukkan 13.00 til 17.00 alla daga í sumar. Yfirskrift sýningarinnar í ár er FÓLK enda allar myndir sýningarinnar tengdar fólki og mannslíkamanum. Myndirnar eru frá mismunandi tímum á ferli listamannsins og hafa sumar ekki verið sýndar fyrr. Sumarsýningin FÓLK Margvísleg myndskreytt póstkort Listaverkabók um Tryggva Ólafsson Grafíkmyndir Til sölu: Ljóðabók eftir Þorstein frá Hamri, myndskreytt af Tryggva

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.