Morgunblaðið - 01.06.2013, Side 34

Morgunblaðið - 01.06.2013, Side 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 Mega senda vopn til Sýrlands  Stjórn Assads fær rússnesk flugskeyti líklega ekki afhent fyrr en á næsta ári Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Evrópusambandið staðfesti formlega í gær að að- ildarríkjum þess væri heimilt að selja uppreisn- armönnum í Sýrlandi ákveðin vopn. Sambandið endurskoðaði refsiaðgerðir sínar gegn Sýrlands- stjórn og meðlimum hennar í gær og framlengdi þær til 1. júní á næsta ári. Þeirra á meðal er bann við innflutningi á olíu frá Sýrlandi og takmarkanir á fjárfestingum þar. Ákvæði um bann við vopna- sölu þangað hefur hins vegar verið fjarlægt. Rússneskir fjölmiðlar greindu einnig frá því í gær að sýrlenski herinn fengi ekki rússnesk S-300 flugskeyti, sem stjórnvöld í Moskvu hafa selt rík- isstjórn Bashar al-Assads, fyrr en á miðju næsta ári. Samkvæmt heimildum dagblaðsins Kommers- ant á ekki að afhenda flugskeytin fyrr en næsta vor og þá þurfi sýrlenski herinn um hálft ár til að læra að nota þau. Þetta stangast á við yfirlýsingar Assads sem hélt því fram á fimmtudag að vopnin væru á leið- inni. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki viljað stað- festa hvenær flugskeytin verða send til Sýrlands. Sýrlenskir aðgerðarsinnar halda því fram að stjórnarhermenn, studdir líbönskum Hezbollah- skæruliðum, hafi ráðist á bílalest sem var að flytja særða frá bænum Quasair í miðhluta landsins í gær, nærri landamærunum að Líbanon. Samtökin Syrian Observatory for Human Rights, sem stað- sett eru í Bretlandi, segja að sjö hafi fallið og tugir særst í árásinni. Vesturlandabúar sagðir liggja í valnum Sýrlenski stjórnarherinn fullyrti að breskur ríkisborgari og að minnsta kosti tveir aðrir útlend- ingar, þar á meðal bandarísk kona, hefðu fallið í átökum í Idlib-héraði í norðurhluta landsins. Sýr- lenska ríkissjónvarpið sýndi myndir af vegabréfi mannsins sem virtist benda til þess að hann væri 22 ára gamall Breti. Breska utanríkisráðuneytið gat ekki staðfest þær fréttir í gær. Bandaríska konan var einnig nafngreind og sögð vera 33 ára gömul frá Michigan-ríki. Fjöl- skylda hennar sagði að hún virtist hafa fallið í átökum við hlið uppreisnarmanna gegn stjórnar- hernum. Samkvæmt upplýsingum Syrian Ob- servatory for Human Rights er ekki vitað hvort útlendingarnir þrír hafa tengst hógværari her- sveitum uppreisnarmanna eða öfgasinnaðri hóp- um íslamista með tengsl við Al-Qaeda. AFP Háð Mótmælendur hæðast að Assad með skop- mynd sem sýnir hann á rússnesku flugskeyti. Íbúar konungsríkisins Bútan gengu til kosninga í annað sinn í gær. Landið liggur við austurenda Himalajafjallgarðsins og til þess að ná til allra kosn- ingabærra íbúa þurfa kosningastarfsmenn að leggja á sig allt að sjö daga göngu til afskekktustu svæða ríkisins. Konungur Bútan er Jigme Khesar Namgyel Wangchuck og nýtur hann mikilla vinsælda meðal þegna sinna. Þegar hann gekk að eiga unnustu sína, Jetsun Pema, árið 2011 var hamingja þjóðarinnar sögð hafa stórauk- ist en Bútan er eina ríkið í heiminum sem hefur það að yfirlýstu markmiði að auka „verga þjóðarhamingju“ frekar en verga þjóðarframleiðslu. Það virðist hafa skilað sínu því samkvæmt könnun Business Week frá 2006 voru íbúar Bútan þeir hamingjusömustu í Asíu og áttundu ham- ingjusömustu í heimi. Hamingjusöm þjóð gengur til kosninga AFP Samráðsvettvangur evrópskra lyfjastofnana um lyf fyrir menn, CMDh, hefur úrskurðað um öryggi bólulyfsins Diane-35 og komist að þeirri niðurstöðu að ávinningurinn af notkun þess vegi þyngra en hætt- an á blóðtappamyndun. Niðurstaðan er í samræmi við ákvörðun Lyfjastofnunar Evrópu, EMA, og var samþykkt með öllum atkvæðum nema einu, en Frakk- land, þar sem Diane-35 hefur verið bannað, greiddi atkvæði á móti. Diane-35 er á markaði í yfir 100 löndum og er notað af milljónum kvenna. Algengt er að því sé ávísað sem getnaðarvörn en bæði CMDh og EMA leggja til að lyfið verði ein- göngu notað við unglingabólum. Heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi bönnuðu sölu á Diane-35 í janúar síðastliðnum, eftir að það komst að þeirri niðurstöðu að notkun þess hefði valdið fjórum dauðsföllum og yfir hundrað tilfellum blóðtappa á síðastliðnum 25 árum. EVRÓPA Diane-35 eingöngu notað sem bólulyf Lyf Margar konur nota lyfið Diane-35 sem getnaðarvörn. Bandarísk toll- yfirvöld gerðu meira en sex tonn af kókaíni upptæk síðast- liðna helgi í tveimur aðgerð- um en andvirði efnanna er talið um 945 milljónir Bandaríkjadollara. Í fyrri aðgerð- inni var þyrla kölluð til þegar áhöfn eftirlitsskips kom auga á hraðbát eiturlyfjasmyglara norður af Ga- lapagos-eyjum. Hraðbátnum var sökkt af þyrlunni en meira en 3 tonn af fíkniefnum reyndust vera um borð. Í seinni aðgerðinni var hraðbátur stöðvaður af lögregluyfirvöldum í Panama, eftir ábendingu frá Bandaríkjamönnum, nærri landa- mærum Panama og Kolumbíu en í honum fundust fleiri en þúsund pakkningar af kókaíni. Í báðum til- fellum voru efnin á leið til Banda- ríkjanna en löggæsluyfirvöld í Vestur-Karíbahafi og Austur- Kyrrahafi gerðu alls 59 tonn af kókaíni upptæk árið 2012. BANDARÍKIN Gerðu sex tonn af kókaíni upptæk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.