Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 45
45100 ÁRA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Í upphafi maímánaðar 1973 bárust þær fregnir að Richard M. Nixon, forseti Bandaríkjanna, og Georges Pompidou, forseti Frakklands, hefðu ákveðið að hittast á Íslandi dagana 31. maí og 1. júní. Fundurinn var haldinn á Kjarvalsstöðum, sem höfðu verið teknir í notkun fyrr á árinu. Á fundinum ræddu forset- arnir ýmis mál í samskiptum Banda- ríkjanna og Frakklands, einkum hvað varðaði varnarmál og efna- hagsmál, en árangur fundarins varð minni en væntingar stóðu til í upphafi. Ástæðan fyrir fundarstaðnum var af diplómatískum toga. Pompidou hafði síðast farið í heimsókn til Washington og því var komið að Nixon að fara til Parísar. Hann vildi hins vegar ekki ferðast til megin- lands Evrópu fyrr en um haustið þegar hann ætlaði sér í stóra heim- sókn til nokkurra bandamanna í Atl- antshafsbandalaginu. Reykjavík þótti því vera tilvalinn miðpunktur á milli Washington og Parísar. Íslenskir ráðamenn tóku fund- inum fagnandi. Landhelgisdeilurnar við Bretland voru þá í algleymingi og íslensk stjórnvöld nýttu sér tæki- færið til þess að koma sínum sjónar- miðum á framfæri við forsetana tvo. Var enda til þess tekið í frásögnum fjölmiðlanna að bæði Nixon og Pompidou virtust vel inni í málum. Túlkaði fyrir þrjá forseta Á forsíðu Morgunblaðsins 31. maí 1973 má sjá ljósmynd af Pompidou að ræða við Kristján Eldjárn, for- seta Íslands, með aðstoð túlks, en Pompidou tjáði sig ávallt á frönsku. Sá sem túlkaði var ungur maður, Tómas Ingi Olrich, síðar ráðherra og sendiherra Íslands í Frakklandi. Tómas Ingi segir að sendiherra Frakklands hafi haft samband við sig nokkru fyrir fundinn. „Það var þannig að ég var tiltölulega nýkom- inn frá námi í Frakklandi þar sem ég hafði lagt stund á frönsku og fransk- ar bókmenntir og franska málsögu. Þannig að ég var nokkuð vel að mér um frönsku og þeir vissu eitthvað af þessu í sendiráðinu.“ Tómas Ingi að- stoðaði sendiherrann lítillega við að undirbúa komu Pompidous og tók einnig að sér að túlka í viðræðum franskra stjórnvalda og íslenskra og einnig í hátíðarkvöldverði sem Kristján Eldjárn hélt fyrir Nixon og Pompidou að Bessastöðum. Tómas Ingi þýddi meðal annars ræðu sem Pompidou hélt við það tilefni yfir á íslensku fyrir kvöldverðinn. Tómas Ingi lenti í skemmtilegum misskilningi í hátíðarkvöldverði for- setanna. „Nixon hélt að ég væri al- þjóðatúlkur og gæti túlkað óform- legar viðræður hans við Pompidou, og ég var ekkert að leiðrétta það,“ segir Tómas Ingi, en hann gat líka bjargað sér á ensku. „Þannig flétt- aðist ég inn í samtal forsetanna sem var algjörlega óformlegt og lítið tengt efni fundarins.“ Skuggi hvíldi yfir fundinum Tómas Ingi kynntist Pompidou nokkuð á meðan Íslandsdvöl hans stóð. „Hann var mjög sjúkur og þoldi illa kulda,“ segir Tómas Ingi en Pompidou lést innan árs frá fund- inum úr sjaldgæfri tegund eitla- krabbameins. „Hann mun hafa vitað nokkru áður en hann kom til Íslands að sjúkdómurinn var banvænn og að hann myndi ekki endast nema ein- hverja mánuði,“ segir Tómas Ingi og bætir við að ásigkomulag Pompi- dous hafi vakið mikla athygli frétta- manna. Á þessum tíma var Watergate- málið í algleymingi. „Að því leyti var þetta mjög sérkennilegur fundur því að Pompidou vissi að hans dagar voru taldir en Nixon vissi líka að yfir honum hékk þetta Damóklesarsverð Watergate-málsins og honum leið greinilega illa og var á varðbergi. Það var því skuggi sem hvíldi yfir þessum fundi.“ Leiðtogafundur í skugga Watergate Fjörutíu ár eru nú liðin frá leiðtogafundi Richards M. Nixon, for- seta Bandaríkjanna, og Georges Pompidou, for- seta Frakklands, sem haldinn var á Kjarvals- stöðum í Reykjavík. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Forsetar Richard M. Nixon, forseti Bandaríkjanna, og Georges Pompidou, forseti Frakklands, við upphaf fundar síns á Kjarvalsstöðum. Landhelgin í brennipunkti Forsíða Morgunblaðsins 31. maí 1973. Veisla á Bessastöðum Þeir Georges Pompidou og Kristján Eldjárn ræðast við á Bessastöðum. Á milli þeirra stendur Tómas Ingi Olrich og túlkar. Veisluþjónusta Við erum með tilboð sem koma sér vel við öll tækifæri, s.s. fermingar, útskrift, skírnina eða afmælið. Snittur, tapas, heitir ofnréttir og brauðtertur. Allar nánari upplýsingar færðu í síma 533-3000 virka daga milli kl. 8-16. Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver Fingramatur, kökur og konfekt Tapas, snittur, sushi, kjúklinga- spjót, heitir ofnréttir, konfekt, franskir súkkulaðikökubitar, kransabitar, jarðarber í súkku- laðihjúp og marsipanterta. Verð kr. 2.390 á mann Sjá sölustaði á istex.is Íslenska ullin er einstök Skoðaðu litaúrvalið í næstu verslun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.