Morgunblaðið - 01.06.2013, Side 46

Morgunblaðið - 01.06.2013, Side 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 ✝ IngólfurBjarnason fæddist á Hlemmi- skeiði, Skeiða- hreppi, Árnessýslu 2. nóvember 1922. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ási í Hveragerði 19. maí 2013. Foreldrar hans voru Bjarni Þor- steinsson bóndi á Hlemmiskeiði, f. 1876 á Reykj- um, Skeiðahreppi, d. 1961, og Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja á Hlemmiskeiði, f. 1881 í Vorsa- bæ, Skeiðahreppi, d. 1956. Systkini Ingólfs eru: Helga, f. 1905, Eiríkur, f. 1907, Jón, f. 1908, Þorsteinn, f. 1909, Valdi- mar, f. 1911, Ingigerður, f. 1912, Margrét, f. 1914, Sigurður Ár- sæll, f. 1916, Guðmundur, f. 1917, Þórdís, f. 1920, og uppeld- isbróðir Hermann Ágúst, f. 1933. Eftirlifandi systkini eru Sigurður, Þórdís og Hermann. Ingólfur ólst upp hjá for- eldrum sínum á Hlemmiskeiði 1963, maki Árni Svavarsson. Synir þeirra tveir eru Svavar Jón og Arnar. Ingólfur og Kristín hófu bú- skap á Hlemmiskeiði árið 1951. Þar bjuggu þau með blandað kúa- og sauðfjárbú í aust- urbænum til ársins 1995. Í upp- hafi búskapar stundaði Ingólfur vörubílaakstur jafnhliða öðrum störfum við búið. Árið 2005 fluttu þau á elliheimilið Ás í Hveragerði og bjuggu þar til dauðadags. Ingólfur lauk prófi frá Hér- aðsskólanum á Laugarvatni. Hann gegndi ýmsum trún- aðarstörfum um ævina m.a. fyr- ir hreppinn og Sláturfélag Suð- urlands. Hann sat í hreppsnefnd Skeiðahrepps um árabil. Ing- ólfur hafði mjög gaman af söng og var í kirkjukór Ólafsvalla- kirkju í tugi ára ásamt því að syngja í Árneskórnum í fjölda ára. Einnig var hann mikill áhugamaður um sauðfjárrækt og átti marga verðlaunaða kyn- bótahrúta. Útför Ingólfs fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 1. júní 2013, og hefst athöfnin kl. 11. Jarðsett verður á Ólafsvöllum á Skeiðum. þar sem þau bjuggu blönduðu kúa- og sauðfjárbúi. Árið 1950 giftist Ing- ólfur Kristínu Sig- urlínu Eiríksdóttur, f. í Stóru- Mástungu, Gnúp- verjahrepppi, Árn. 26. júlí 1928, d. 2. janúar 2013. For- eldrar hennar voru Eiríkur Eiríksson bóndi, f. 1898 á Votamýri, Skeiðahreppi, d. 1964, og Ingi- björg Erlendína Kristinsdóttir, f. 1903 á Ingveldarstöðum, Skarðshreppi, Skagafirði, d. 1991. Börn Ingólfs og Kristínar eru: 1) Ómar Örn, f. 1951, kvæntur Rósu Guðnýju Bragadóttur. Börn þeirra eru: 1a) Ída Braga, gift Þórði Hjalta Þorvarðarsyni og eiga þau þrjú börn, 1b) Krist- ín Sif, gift Daníel Scheving Hall- grímssyni og eiga þau eitt barn, 1c) Ingólfur Örn, í sambúð með Írisi Ósk Ólafsdóttur og eiga þau eitt barn. 2) Inga Birna, f. Við systkinin viljum kveðja hann Ingólf afa okkar. Við eig- um margar góðar og skemmti- legar minningar úr sveitinni, nutum við þeirra forréttinda að fá að vera hjá afa og ömmu öll sumur og í öllum fríum. Sumrin í sveitinni eru okkar bestu og skemmtilegustu æskuminning- ar. Þar var alltaf nóg um að vera en afi passaði alltaf vel að við færum okkur ekki að voða. Afi var alla tíð rólegur og góður við okkur krakkana. Einu skipt- in sem hann byrsti sig var þeg- ar við smjöttuðum óþarflega hátt á tyggigúmmíi sem hann var lítt hrifinn af. Hann var mjög stoltur af verðlaunahrút- unum sínum og eru til margar skemmtilegar myndir af honum með þeim. Afi var mikill söngmaður og fékk maður helst að njóta þess um réttirnar. Hann hafði mikið dálæti á söng og lét sig ekki vanta á jóla- og vortónleika Karlakórs Reykjavíkur, vortón- leikarnir nú í maí voru þar eng- in undantekning. Hann lét ekki heilsuleysi síðustu ára stoppa sig og fór í æfingar alla virka daga og fannst ómögulegt að lokað væri í tækjasalnum um helgar. Afi og amma bjuggu síðustu árin á Ási í Hveragerði en hug- urinn var alltaf heima á Hlemmiskeiði. Vildi hann fara þangað sem oftast og var hann þar með okkur síðast um páskana. Afi fylgdist vel með því sem fjölskyldan tók sér fyrir hendur og vildi vera virkur þátttakandi í lífi okkar. Honum var mjög umhugað um að Hlemmiskeiði væri vel við hald- ið og var hans síðasta verk að ýta á eftir endurnýjun á þaki íbúðarhússins. Takk fyrir allar góðu stund- irnar, þú varst yndislegur afi. Ída Braga, Kristín Sif og Ingólfur Örn. Ef minnst er á Inga á Hlemmiskeiði þá kemur nafnið hennar Stínu upp í hugann. Þau eru eitt í mínum huga. Mikið á ég þessum heiðurshjónum að þakka. Ég kom til þeirra í kaupa- vinnu árið 1954, þá 15 ára göm- ul, lítil og mjó og ekki til stór- ræðanna. En þar lærði ég að mjólka og snúast með hrífu úti á túni ásamt hinum kaupakon- unum á Hlemmiskeiði, þeim Maddí og Lóu. Allt var unnið saman í bræðralagi. Aldrei hafði ég kynnst eins elskulegu heim- ilislífi og var á þessu stórfjöl- skylduheimili á Hlemmiskeiði. Þar voru Ómar litli, foreldrar Inga og bræður og þeirra fjöl- skyldur, allt öðlingsfólk. Kýrnar voru handmjólkaðar á þessum tíma. Það var svo gaman í fjósinu, þar var mikið sungið og eftir mjaltir var oft farið í vatnsslag. Stína eldaði góðan mat og ég tók svo vel til matar míns að Bjarni faðir Inga heyrðist tauta: „Ef hún væri kind þá væri ég búin að skjóta hana. Hún étur svo mikið en fitnar ekki neitt.“ Sumarið leið við heyskap og útreiðartúra og auk þess fékk ég að fara á böll með Stínu og Inga. Mig langaði ósköp mikið til að fá að koma aftur, en Stína sagðist ekki hafa neitt að gera fyrir svona stóra stelpu. Og þar við sat þangað til ég skrifaði Stínu vorið 1963 og spurðist fyrir um hvort engan í sveitinni vantaði ráðskonu í nokkra mán- uði. Ég var í vandræðum með húsnæði, var svona á milli íbúða. Þá skrifaði Stína að sig vanti aðstoð vegna þess að nú sé hún ófrísk og verði að liggja meira og minna allan tímann. Ég var hjá henni frá því um hvítasunnu og fram yfir réttir og sláturtíð um haustið. Með mér voru sonur minn Gunnar og systir mín Gunnhildur. Þau létu bæði heillast af vist- inni á Hlemmiskeiði og fengu síðar að koma til Stínu og Inga og dvöldu þar sumarlangt. Það var komið fram í ágúst þegar fréttin barst um að fædd væri dóttir og mikill var nú fögnuðurinn og hamingjan með Ingu Birnu. Síðar var ég hjá þeim í nokk- ur skipti og mjólkaði meðan þau fóru í ferðalög með Bændaferð- um og að endingu kom ég í sveitina með bílfarm af litlum börnum til að þau fengju að sjá þegar verið var að rýja og einn- ig til að fylgjast með burði. Allt- af var tekið á móti mér með hlýju. Að lokum heimsótti ég þau að Ási í Hveragerði og varð vitni að því hvernig heilsunni hrakaði og nú er jarðvist þeirra beggja lokið og þau hafa sameinast á ný. Elsku Stína og Ingi, hafið þökk fyrir allt og allt og hvílið í friði. Samúðarkveðjur til Ómars og Ingu Birnu og fjölskyldna þeirra. Bryndís Gunnarsdóttir, kaupakona á Hlemmiskeiði 1954. Vorið er yndislegur tími, allt grær og vaknar til lífsins eftir vetrartíð. Fyrir bændur og búa- lið er þessi tími engu líkur. Þennan tíma gróanda, sauð- burðar og fuglasöngs valdi Ing- ólfur til að kveðja hér. Það kem- ur ekki á óvart, hann elskaði vorið og allt sem því fylgir. Hans tími. Það er komið á 29. ár síðan leiðir okkar Ingólfs lágu saman fyrst. Ég kom þá sem verk- námsnemi, frá Hvanneyri, til þeirra hjóna Ingólfs og Stínu. Sá fyrsti af mörgum heppnum. Frá fyrstu stundu var allt gert til að bjóða mig velkomna, þó kannski hefðu hjónin getað fengið auðveldara verkefni. Fljótlega fór ég að stunda Skeiðalaug með Ingólfi, svona eftir kvöldverk. Mér er minn- isstæð fyrsta sundlaugarferðin. Menn fóru að spyrja hver þetta væri í för með Ingólfi. Það stóð ekki á svari hjá mínum manni, enda fljótur að hugsa og húm- oristi. Ja, þetta er nú laundóttir mín úr Borgarfirðinum. Það kom á menn, en misskilning- urinn leiðréttur von bráðar. Ingólfur var gull af manni, eins og allir vita sem hann þekktu. Hvers manns hugljúfi. Milli mín og þeirra hjóna varð strax til sterkt og gott samband sem hélst alla tíð. Ég eignaðist þarna, í ársbyrjun 1985, annað sett af foreldrum. Hef verið þakklát fyrir það alla tíð síðan, og verð. Við áttum góðar stund- ir í daglegum verkum þann tíma sem ég dvaldi á Hlemmiskeiði. Deildum þar áhuga, ekki síst í fjárhúsinu. Ég fékk, hægt og hljótt, að bergja á viskubrunni bóndans. Það var hans leið. Frí- stundirnar voru ekki síðri. Þau hjón voru frábærir félagar ung- lingsins sem ég var þá. Ingólfur var söngmaður frá- bær. Í minningunni sitja ómet- anlegar stundir, seint og snemma, þar sem hans tæra tenórrödd sveif um kring. Við hin nutum. Einstaklega létt lund kom sér vel þegar heilsan sveik. Æðruleysi og auðmýkt Ingólfs veitti honum styrk í veikindum sínum á seinni árum. Í jarðarför Stínu í janúar horfði ég á þennan ótrúlega mann syngja hvern sálm í kirkju og í garði fullum hálsi. Hann fylgdi Stínu sinni alla leið, eins og hans var von og vísa. Ég er auð- mjúklega þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða Ingólfi og Stínu á Hlemmiskeiði. Þau gáfu mér mikið, alltaf. Blessuð sé minning Ingólfs og Stínu á Hlemmiskeiði. Steinunn Á. Einarsdóttir. Það er sérstakt að sitja og skrifa minningargrein í fyrsta sinn og sú tilfinning sem bærist sterkast í brjóstinu er þakklæti. Þakklæti fyrir þá heppni að hafa fengið að kynnast Ingólfi og Stínu á Hlemmiskeiði sem unglingur. Það var um þetta leyti vors árið 1982 að 14 ára drengstauli lagði af stað ríðandi með tvo hesta frá Selfossi að Hlemmi- skeiði í kaupamennsku. Hús- freyjan kom ríðandi á móts við unglinginn og heilsaði með sínu sérstæða brosi og glaðlega yfir- bragði, heima beið Ingólfur bóndi og tók á móti þegar í hlað var komið. Þetta voru mín fyrstu kynni af þeim heiðurs- hjónum Ingólfi og Kristínu á Hlemmiskeiði. Sumrin mín á Hlemmiskeiði urðu fjögur og milli okkar skapaðist vinátta sem aldrei hefur borið skugga á. Það er ómetanlegt fyrir ung- ling að kynnast svona fólki, þó hann verði þess ekki áskynja meðan galsi æskuáranna geng- ur yfir endist þessi fjársjóður út lífið. Síðar birtist lærdómurinn sem síaðist inn í kollinn þrátt fyrir allt og nýtist við lausn verkefna sem á veginum verða. Á vorin þurfti að stinga út úr fjárhúsunum með gaffli og skánin borin út, okkur strákun- um fannst verkið mikið og virt- ist engan enda ætla að taka. Þegar þannig stóð á sagði Ing- ólfur oftar en ekki, rólega og yf- irvegað: „Þetta hefst allt strák- ar mínir, bara ef verið er við það.“ Síðan hefur þetta oft kom- ið í huga minn, ekki síst þegar ég fór ekki alls fyrir löngu í krefjandi háskólanám með til- heyrandi verkefnum og lestri. „Þetta hefst allt, bara ef verið er við það.“ Ingólfur og Stína voru ís- lenskt sveitafólk, þau unnu sveitinni sem þau bjuggu í og landinu sem þau lifðu á. En þrátt fyrir að vera bundin yfir búi þá gáfu þau sér tíma til að ferðast og hitta fólk, kunnu að njóta þess að fara af bæ og taka á móti því sem lífið hefur upp á að bjóða. Ég sé þau fyrir mér uppábúin að leggja af stað til Reykjavíkur. Ingólf hávaxinn og myndarlegan með Kristínu sér við hlið, glæsilega konu með óvenju mikla útgeislun og per- sónutöfra. Ég veit að ég er ekki einn um þessa gæfu, í gegnum árin dvöldu margir unglingar á Hlemmiskeiði um lengri eða skemmri tíma. Við eldhúsborðið voru oft rifjaðar upp sögur og skemmtileg atvik með vinnu- mönnum í gegnum tíðina, alltaf stutt í gamansemina og skemmtilegu hliðar hins dag- lega lífs dregnar fram. Allir áttu stað í hjarta hjónanna og þau fylgdust með „strákunum sínum“ eins og kostur var. Allt- af var maður velkominn að Hlemmiskeiði, sama hvernig stóð á, hvaða tíma dags eða nætur var bankað upp á, og yf- irleitt tók Ingólfur á móti manni með sömu orðunum: „Já, þú ert kominn, strákur minn.“ Nú er Ingólfur farinn yfir móðuna miklu en ég trúi að Stína sé búin að taka á móti honum. Að hún komi ríðandi til móts við Inga sinn með tvo glæsilega gæðinga líkt og þegar hún kom ríðandi niður Skeiða- veg með bros á vör að taka á móti drengstaulanum sem hafði ráðið sig hjá þeim í kaupavinnu. Fjölskyldu Ingólfs votta ég samúð mína, ég trúi og veit að nú hafa þau sameinast á ný og tilvera þeirra heldur áfram að vera lærdómur og fyrirmynd annarra. Hrafnkell Guðnason. Ingólfur Bjarnason HINSTA KVEÐJA Elsku Ingólfur afi okkar. Takk fyrir að hafa verið alltaf svo yndislegur og góður við okkur bræðurna. Okkur fannst alltaf svo skemmtilegt hvað þú varst duglegur að fara með okk- ur í heita pottinn í garðin- um á kvöldin. Svavar Jón og Arnar. ✝ Björg Sigurð-ardóttir fædd- ist á Seyðisfirði 5. febrúar 1965. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Neskaupstað 27. maí 2013. Foreldrar henn- ar eru Anna María Haraldsdóttir, f. 18.9. 1933 og Sig- urður Stefán Frið- riksson, f. 29.3. 1932. Systkini Bjargar eru: 1) María, f. 5.8. 1958, maki hennar er Þráinn Gíslason, f. 11.9. 1956. 2) Har- aldur, f. 14.7. 1959, maki hans er María Sigurðsson, f. 2.11. 1973. 3) Unnar, f. 13.7. 1960, maki hans er Adela Sigurðs- son, f. 10.8. 1982. 4) Ingibjörg, f. 18.8. 1962, maki hennar er Trausti Marteinsson, f. 3.11. 1956. Björg giftist 12.6. 1988 Hirti Þór Frímannssyni, f. 8.1. 1964, þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Þrúður María, f. 8.8. 1982, maki hennar er Þór- arinn Einarsson, f. 10.2. 1973, börn þeirra eru Hjörtur Einar, f. 3.7. 2004 og Erla Rós, f. 3.8. 2007. 2) Aðalbjörg Þóra, f. 6.3. 1988, maki Hall- dór Gíslason, f. 3.4. 1986, börn þeirra eru Nanna Björg, f. 8.5. 2009 og Ragnar, f. 19.6. 2010. Björg giftist 28.4. 2013 Þor- steini Guðmunds- syni, f. 30.6. 1959. Björg ólst upp á Seyðisfirði. Gekk í barnaskóla og fór í Húsmæðraskólann á Hall- ormsstað. Hún vann við ýmis störf, fiskvinnslu í Bræðslunni, sem skólaliði við skólann á Seyð- isfirði, í leikskóla og við heim- ilishjálp. Björg flutti suður og vann á leikskóla, síðan Hrafn- istu, Vífilsstöðum og í Jóns- húsi Garðabæ. Björg kynntist eftirlifandi manni sínum Þorsteini Guð- mundssyni sumarið 2009. Björg var mikil handa- vinnukona og eru til mörg stykki eftir hana. Útför Bjargar fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 1. júní 2013, og hefst athöfnin kl. 14. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín, í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd, bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín, bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best, hjartað blíða, heita – hjarta, er sakna ég mest. (Sumarliði Halldórsson) Þú ert ein kraftaverkakona, ég mun alltaf elska þig. Þín dóttir, Þóra. Elsku Gögga frænka. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þessar setningar saumaðir þú út og gafst mér í gjöf. Mun þessi „mynd“ alltaf vera uppi í herberginu mínu og ganga svo til barna minna þegar þar að kemur. Nú hefur þú loks fengið hvíldina. Ég var svo heppin að fá að kynnast þér og á ég marg- ar minningar frá stundum sem við áttum saman. Ég mun alltaf muna eftir kjötbollunum í brúnni sósu og kartöflum og öll- um vídeóspólunum með barna- tímanum sem þú sendir okkur. Allur tíminn sem við spjöll- uðum saman. Og ég mun aldrei gleyma því að þegar ég þurfti hjálp og gat ekki leitað til mömmu eða pabba varst þú þarna til að hjálpa. Ég er enda- laust þakklát fyrir það. Þakklát fyrir þann tíma sem þú gafst börnum mínum og allt sem þú gafst þeim. Ég vona að þú hafir það sem alltaf best hinum meg- in og ég veit að þú vakir yfir okkur öllum. Bið að heilsa Unni ömmu og öllum hinum. Kveðja, Þuríður (Þurý). Kær vinkona er fallin frá í blóma lífsins og komið er að kveðjustund. Það er sárt eftir áratuga vináttu. Æskuárunum eyddum við að miklu leyti sam- an, þar sem við bjuggum til minningar sem við höfum í gegnum árin getað hlegið að. Nú hrannast þessar minningar upp og ég brosi í gegnum tárin. Ofarlega í huga mér er snjó- gangagerð sem endaði með þeim ósköpum að loftið féll þeg- ar þú varst inn í göngunum og pabbi þurfti að moka þig upp, þá efaðist ég stórlega um að þú fyndist á lífi. Fótboltaleikirnir á „Wem- bley“ þar sem leikmenn rifust um að vera Maradona. Kaffi- tímarnir sem voru teknir á því heimili sem bauð upp á betri veitingar, oftast heima hjá þér því þar var hún María amma þín alltaf með eitthvað ljúf- fengt. Saumaklúbburinn okkar þar sem við sátum tvær á rúm- inu þínu, gerðum handavinnu og hlustum á leikritið um Saumastofuna þó við værum löngu búnar að læra það utan að. Þitt helsta áhugamál var hannyrðir, hvert sem þú fórst þá fylgdi handavinnutaskan með, vægast sagt úttroðin. Allt lék í höndunum á þér og þær skiptu tugum húfurnar sem þú prjónaðir til gjafa fyrir síðustu jól þrátt fyrir að vera orðin fár- sjúk. Í síðustu heimsókn minni á sjúkrahúsið sast þú og heklaðir blóm með örfínni heklunál á milli þess sem þú dottaðir. Lífið fór ekki alltaf um þig mjúkum höndum og stundum var mótvindurinn ansi mikill. En það færði þér líka mikla gleði með tveimur vel gerðum dætrum sem þú varst svo stolt af og ömmugullunum fjórum. Ein þín mesta gæfa var þegar þú kynntist honum Steina þín- um sem staðið hefur eins og klettur við hlið þér í veikindum þínum, það var aðdáunarvert að fylgjast með ykkur því á milli ykkar ríkti einlæg virðing og væntumþykja. Að leiðarlokum kveð ég þig með miklum söknuði og þakka fyrir allar góðu stundirnar. Ég sendi ástvinum öllum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Bjargar Sigurðardóttur. Ingibjörg Sóley Guðmundsdóttir. Björg Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.