Morgunblaðið - 01.06.2013, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 01.06.2013, Qupperneq 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 ✝ Guðfinna Sig-urlilja Eyvinds- dóttir (Stella) fædd- ist í Vestmannaeyjum 3. desember 1921. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja 21. maí 2013. Stella var dóttir hjónanna Sigurlilju Sigurðardóttur, f. 24.12. 1891, d. 19.10. 1974 og Ey- vindar Þórarinssonar, f. 13.4. 1882, d. 25.8. 1964. Systkini arson, f. 18.3. 1917, d. 30.5. 1960, skipstjóri og kennari við Stýri- mannaskólann í Reykjavík. Dæt- ur þeirra eru: Lilja, f. 7.7. 1940, Aðalheiður, f. 6.12. 1941, Elíza, f. 28.8. 1946 og Eygló, f. 30.3. 1951, d. 25.12. 2006. Barnabörnin eru 10 og barnabarnabörnin eru 15. Seinni maður Stellu var Karl Jónsson, f. 12.12. 1919, d. 1.5. 2011. Stella ólst upp í Vest- mannaeyjum. Á yngri árum spil- aði hún handbolta með íþrótta- félaginu Þór og gekk síðar í Oddfellow-stúkuna Rebekku í Vestmannaeyjum og hafði mikla ánægju af félagsskapnum og starfinu þar. Útför Stellu fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 1. júní 2013, og hefst athöfn- in kl. 14. Stellu voru Sigríður Ingibjörg, f. 26.8. 1913, d. 20.3. 1933, Hans Ottó, f. 16.10. 1914, d. 13.11. 1914, Hans Björgvin, f. 14.6. 1916, d. 15.11. 1916, Elías Þór- arinn, f. 14.6. 1916, d. 17.3. 1980, Guðný Laufey, f. 19.12. 1917, d. 1.12. 1987, Þórarinn Guð- laugur, f. 11.10. 1925, d. 27.11. 1976. Fyrri eiginmaður Stellu var Þorsteinn Kristján Þórð- Smá kveðja til þín, amma Stella, núna þegar þú hefur lagt aftur augun í síðasta sinn. Við systur eigum margar góðar minn- ingar um þig og afa Kalla, margt var brallað í Valhöllinni og síðan á Strembugötunni. Þú varst barn- góð og alltaf til í spjall yfir kaffi og meðlæti. Börnin mín eiga góðar minningar um yndislega lang- ömmu. Við þökkum fyrir að hafa fengið að eiga þig svona lengi og vonum að núna hafir þú hitt fólkið okkar sem var farið á undan þér og þú hafðir saknað svo sárt. Hvíldu í friði. Hlíf, Sif og börn. Í dag verður til grafar borin Stella amma mín. Ég var svo heppin að eiga ömmu í 55 ár og synir mínir að eiga langömmu svona lengi. Ég var fyrsta barna- barnið hennar og var að hluta til alin upp hjá henni sem barn og fram á unglingsárin hitti ég hana flesta daga. Amma var einstak- lega barngóð kona sem fannst alla tíð gaman að vera innan um og leika við börn, hún dekraði okkur endalaust og hjá henni var fátt bannað. Synir mínir muna hana sem mjög góða ömmu sem alltaf var til í að spjalla við þá um heima og geima og var góður vinur og fé- lagi. Hún var húsmóðir af gamla skólanum með heitan mat í há- deginu og bakað í hverri viku. Hún var líka afskaplega gestrisin og vildi helst að fólk borðaði á við fjóra og alltaf var nóg til. Í kjall- aranum hjá henni var geymsla sem við kölluðum Kaupfélagið, þar voru fullar hillur af ýmsu góð- gæti sem við nutum góðs af. Ömmu fannst gaman að ferðast og ferðaðist víða bæði innanlands og utan og notaði flest tilefni sem gáfust til að bregða sér á milli bæja. Amma var mjög pjöttuð og vildi alltaf vera fín og hafa fallegt í kringum sig, hún vildi hafa hlut- ina fallega, kvikmyndir áttu að vera með fallegum leikurum í fal- legum fötum í fallegu umhverfi, og lengi vel gekk hún ekki með gleraugu vegna þess að henni þóttu gleraugu ekki klæðileg á konum og þær yrðu bara hrukk- óttar á að ganga með þau, hún verslaði heldur ekki í kerlinga- búðum, þær voru bara fyrir gaml- ar konur og hún varð aldrei göm- ul. Amma Stella kvaddi þennan heim nýsnyrt með nýlagt hár, fín og vel tilhöfð eins og hún vildi allt- af vera og síðkjóllinn og sjalið fyr- ir síðustu ferðina löngu valið og á vísum stað. Um leið og við kveðjum ömmu viljum við þakka henni langa og góða samleið. Emilía og fjölskylda. Ein af fyrstu minningum mín- um um ömmu Stellu var þegar hún söng fyrir mig fallegar vísur til að svæfa mig sem lítið barn. Fyrir mér geislaði hún af hlýju, góðvild og öryggi og var ljúft að sofna út frá söng hennar og vera nálægt henni alla tíð. Amma Stella var frábær amma í alla staði og ég leit mikið upp til hennar. Hún var alltaf glæsileg og vel tilhöfð og rak heimili sitt með afa Kalla af miklum myndarbrag. Það var alltaf mikil tilhlökkun af fara til Eyja að heimsækja ömmu Stellu og afa Kalla. Þau dekruðu við okkur systkinin út í eitt og manni leið alltaf eins og blómi í eggi þegar maður var í heimsókn hjá þeim. Vestmannaeyjar voru ævintýrastaður og fórum við í margar göngu-, fjöruferðir og bíl- túra þar sem amma og afi sögðu manni sögur af eyjunni, ævintýr- um og gömlum ættingjum sem virkilega kveiktu í ímyndunarafl- inu hjá manni. Ég gæti hlustað á þessar sögur allan daginn. Á Strembugötunni var alltaf opið hús og allir velkomnir og amma var alltaf tilbúin með hlað- borð af kræsingum hvenær sem er og voru kanilsnúðarnir hennar í miklu uppáhaldi hjá mér og mín- um vinum. Sem unglingur kom ég oft á þjóðhátíð í Eyjum með hóp af vinum í eftirdragi og alltaf var Strembugatan opin fyrir alla að gista og borða og oft var afskap- lega margmennt og mikið fjör hjá þeim, þar sem mörg barnabörn og vinir voru mætt á hátíðina. Þá var amma í essinu sínu og naut þess að sinna fólki og hafa alla sína í kringum sig. Þegar yngsta dóttir ömmu, mamma mín Eygló Þorsteinsdótt- ir, varð bráðkvödd langt fyrir ald- ur fram, dáðist ég að þeim styrk og reisn sem amma sýndi í þeirri miklu sorg. Þá fann ég ennþá bet- ur hvaða mann hún hafði að geyma. Hún var ekki bara amma mín heldur sterk og flott kona sem veitti mér innblástur og styrk þegar á reyndi. Ég kveð ömmu Stellu með þakklæti í huga fyrir að hafa átt hana að í öll þessi ár, og eru marg- ar bestu minningar mínar tengd- ar tímanum sem ég eyddi hjá henni í Vestmannaeyjum. Þeim mun ég búa að til æviloka. Elíza M Geirsdóttir-Newman. Rigningin lemur gluggana, við teiknum riddara, hallir, hesta og hermenn, fótboltavelli, fugla, Heimaklett og Suðurey. Hvergi er meira öryggi að finna, hér er alltaf skjól. Eldhúskrókurinn hennar ömmu Stellu er virki sem enginn kemst inn í og þar verða til ævintýri á pappír og útiteknir dagar útlistaðir yfir mjólkurglasi og randalín. Fátt er eins verð- mætt og góð amma – hlý og traust. Frá mínum fyrsta degi hefur amma verið til staðar og allar mínar minningar um hana eru góðar. Frá tvíbökum í sykrað kaffi yfir í sólbakaða daga á blett- inum þar sem fótbolti var spilaður frá morgni til kvölds. Kakómalt eftir sundferð, fíflagangur á Þjóðhátíð, ferðalög og samvera, páskar, afmæli, jól og gleðistund- ir. Amma Stella var dama, alltaf hugguleg til fara og hún fór yf- irleitt aldrei til Reykjavíkur nema að kíkja í búð og „dressa sig upp“ í leiðinni. Fátt fannst henni skemmtilegra en veislur og til- stand enda hennar bestu stundir við slík tækifæri. Amma var sér- lega barngóð og sinnti sínum af- komendum vel og ég er þakklát fyrir að börnin mín skyldu eiga góðar stundir með langömmu sinni þó við hefðum gjarna viljað vera nær til að hitta hana oftar. Síminn kom sér þó vel og hún gat spjallað við börnin í langan tíma enda áhugasöm um þeirra verk- efni og velgengni. Líf ömmu var þó ekki alltaf dans á rósum. Hún varð ung ekkja með fjögur börn, en giftist aftur síðar og átti gott líf með afa Kalla þar sem gagnkvæm ást og virðing ríkti. Amma syrgði líka systkini sín og ekki síst var það áfall þegar mamma mín, hennar yngsta dóttir, varð bráðkvödd langt fyrir aldur fram. Amma tókst þó á við allan sinn missi af miklu æðruleysi og henni var mik- ið í mun að heiðra og halda minn- ingu ástvina á lofti. Amma var fjölskyldumann- eskja og naut sín best með sínu fólki. Mörg sumur dvöldum við frændsystkinin hjá henni og nut- um þess að vera í ömmudekri. Allt lét hún eftir okkur, sigtaði ofan í mann kjötsúpuna, bakaði uppá- haldsbrauðið og pönnsurnar, bauð í bíltúr um eyjuna og sagði sögur. Uppeldið hjá ömmu var kærleiksríkt, hún skammaði ekki, en ákveðnar reglur giltu og það gekk vel og gerði skapmiklu trippi auðveldara að takast á við lífið. Þegar amma og afi fluttu af Strembugötunni urðu kaflaskil í þeirra lífi. Þau söknuðu heimilis- ins sem þau höfðu byggt upp sam- an og átt góðan tíma í. Afi átti ekki langt eftir þegar að heiman var komið og kvaddi í maí fyrir tveim- ur árum og nú fylgir amma á eftir. Ég veit að þau eru sameinuð á fal- legum stað þar sem sumarið ríkir að eilífu og þau halda heimili á ný. Ef ég loka augunum er ég kom- in í garðinn á Strembugötunni þar sem litskrúðug sumarblómin þekja beðin, bletturinn er snöggs- leginn og amma og afi sólbrún og sælleg að fylgjast með okkur að leik. Svona voru okkar bestu stundir og svona ætla ég að minn- ast þeirra. Elsku amma Stella, takk fyrir hlýjuna og umhyggjuna, takk fyr- ir tímann sem þú gafst mér og mínum, takk fyrir góð ráð og gleðistundir og takk fyrir sam- fylgdina. Þú varst kletturinn minn og býrð í hjarta mínu að ei- lífu. Hvíl í friði. Hulda G. Geirsdóttir. Þá hefur Stella frænka kvatt þetta líf. Stella var eins og auka- amma, sem alltaf var gott að koma til. Mín fyrsta minning um hana var að koma á Strembuna til Stellu og Kalla og fá klaka á klemmu. Mikið fannst manni þetta spennandi. Enda höfðu þau hjónin einstakt lag á að laða börn að sér. Það sá maður betur þegar ég eignaðist sjálfur börn, hvað þeim þótti vænt um þau og fylgd- ust vel með þeim. Stella og Kalli voru einstök hjón, alltaf saman og voru einstaklega miklir vinir allt til síðasta dags. Því varð missir hennar mikill þegar Kalli kvaddi fyrir tveimur árum. Þegar ég bjó í Kópavogi hjá mömmu var alveg sérstaklega gaman þegar Stella frænka var á leiðinni, en hún gisti alltaf hjá okkur. Stella hafði gam- an af því að vaka lengi og fara seint á fætur, það var að mínu skapi. Hún gaf sér alltaf tíma til að tala við alla, óháð aldri, og fylgdist með öllu sínu ættfólki og var stolt af því. Stella var mikið fyrir að versla þegar hún var í bænum, enda var hún alltaf glæsi- lega til fara. Ég var nú ekki hár í lofti þegar ég rataði leiðina og kannaðist við mikið af starfsfólk- inu hjá Hrafnhildi, eftir tíðar ferð- ir með henni og mömmu í þessa ágætu verslun. Eftir að ég fluttist aftur til Eyja urðu fundir okkar tíðari. Það verður skrítið að fara ekki í heimsókn inn á Hraunbúðir og hitta Stellu. Ég er fullviss um að þau hjónin eru sameinuð á nýj- an leik og eru farin á rúntinn í himnaríki. Hvíldu í friði Stella frænka. Guðlaugur Ólafsson. Elskuleg frænka mín, hún Stella Pól, verður jarðsungin í dag. Nú er hún komin upp til himna til hans Kalla Pól. Hún var alltaf góð við allt og alla. Ég á allt- af eftir að muna eftir þér og er strax farin að sakna þín. Þú komst alltaf fram við mig eins og þú vær- ir langamma mín, alltaf góð við mig og gafst mér alltaf Tuc-kex og appelsínu-Svala á Strembunni. Kær kveðja, Stella (yngri) Guðlaugsdóttir. Ástkær frænka mín, Stella Ey- vindsdóttir, lést í Vestmannaeyj- um hinn 21. maí sl. eftir stutt veik- indi. Stella hefur verið órjúfanlegur hluti af tilverunni frá því að ég man fyrst eftir mér. Hún var ömmusystir mín og það var mikill samgangur milli þeirra systra, enda kært með þeim. Það var fátt sem mér þótti skemmti- legra þegar ég var lítil en að fara með ömmu í kvöldheimsókn til Stellu frænku og hlusta á systurn- ar ræða lífið og tilveruna. Báðar gættu þær þess að hafa mig með í umræðunni líkt og ég væri full- orðin. Stella hafði alla tíð gaman af börnum enda voru þau hænd að henni. Hún gaf sig að þeim, talaði við þau, lék við þau sem yngri voru og þau eldri fengu að leika sér í kjallaranum á Strembugöt- unni, þar sem hún bjó ásamt Kalla manninum sínum. Eftir að ég fluttist frá Eyjum var Stella tíður gestur á heimili móður minnar, sem ber sama nafn, þar sem hún gisti gjarnan í Reykjavíkurferðum sínum. Þetta voru skemmtilegar heimsóknir. Búðarferðir, spjall fram á nótt og bollaspádómar standa þar upp úr, en fátt var meira spennandi á þessum árum en að fá spádóm. Vinkonur mínar gerðu sér far um að koma í heimsókn þegar Stella var hjá okkur í von um spádóm og ekki stóð á honum. Allar fengu þær að „hvolfa“ eins og það kall- aðist og nöfnurnar kíktu í bollana ásamt Heiðu dóttur Stellu. Að jafnaði birtust aðeins góðar frétt- ir í bollanum; ferðalög, fuglar sem báru góðar fréttir, verndarenglar og stundum voru myndarlegir menn við hankann. Stellu var umhugað um fjöl- skylduna og gerði sér far um að fylgjast vel með því sem ættingjar hennar tóku sér fyrir hendur. Hún var afar stolt af sínum af- komendum og ættingjum. Hún lagði alla tíð mikið upp úr því að líta vel út og var alltaf glæsilega til fara enda fylgdist hún vel með straumum og stefnum í tískunni. Stella hélt glæsilegt heimili ásamt Kalla allt til ársins 2010. Þangað var alltaf gott að koma og vel tekið á móti gestum. Um leið og ég þakka kærri frænku samfylgdina og allt það sem hún var mér og mínum bið ég góðan Guð að blessa minningu hennar. Laufey. Í dag kveð ég kæra vinkonu mína sem við kölluðum alltaf Stellu Pól, til að aðgreina nöfn- urnar þrjár. Það var fyrir um það bil fimm- tán árum sem ég kynntist Stellu og Kalla Pól. Það myndaðist strax góður vinskapur milli okkar. Það var alltaf svo gott að koma til þeirra á Strembuna. Þau voru okkur eins og amma og afi. Við Stella sátum í eldhúsinu og feng- um okkur kaffi og Kalli fór með krakkana út á bekk í spjall, ef veð- ur leyfði eða lét þau hafa dóta- körfuna úr hornskápnum. Sam- band þeirra Stellu og Kalla var einstakt og var það Stellu mikill missir þegar Kalli féll frá fyrir tveimur árum. Stella var yndisleg kona. Hún var skemmtilega pjöttuð og henni fannst mjög gaman þegar ég var að sýna henni einhver föt eða glingur sem ég var búin að kaupa mér því henni fannst þetta alltaf svo „lekkert“. Henni fannst ynd- islegt að fara í búðir og skoða föt og hún var alltaf vel til fara og hugsaði vel um það til síðasta dags, alltaf jafn fín og sæt. Hún hélt upp á 90 ára afmælið sitt með stæl á Hótel Sögu þar sem öll fjölskyldan mætti og var hún ákaflega glöð með þennan dag. Elsku Stella mín. Takk fyrir allar góðu samverustundirnar. Ég á eftir að sakna þín mikið. Kysstu Kalla frá mér. Guð geymi þig. Ester F. Ágústsdóttir. Guðfinna S. Eyvindsdóttir ✝ Ástkær faðir okkar, sonur minn og bróðir, STEFÁN MÁR HANSSON, uppalinn í Garðabæ, lést í Noregi fimmtudaginn 30. maí. Útför og minningarathöfn auglýst síðar. Börn, móðir og systkini. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR KR. PÉTURSSON, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á heimili sínu mánudaginn 27. maí. Aðalheiður Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN S. DAVÍÐSSON listmálari, Barðavogi 13, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni mánudagsins 27. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 5. júní kl. 13.00. Svanhildur Marta Björnsdóttir, Silja Kristjánsdóttir, Björn Davíð Kristjánsson, Jórunn Þórey Magnúsdóttir, Valgerður Ólafsdóttir, Kári Stefánsson, Ásthildur Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KARL GUÐGEIR GUÐMUNDSSON, Skúlagötu 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum föstudaginn 24. maí. Útförin fer fram í Garðakirkju miðvikudaginn 5. júní kl. 15.00. Þorsteinn Jósep Karlsson, Sigríður Guðrún Karlsdóttir,Ragnar Benjamín Ingvarsson, Hjalti Guðbjörn Karlsson, Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, EGGERT BERGSSON húsasmíðameistari, Daltúni 36, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 29. maí. Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi föstudaginn 7. júní kl. 13.00. Ingunn Jónsdóttir, Bergdís I. Eggertsdóttir, Grettir Sigurðarson, Pálína S. Eggertsdóttir, Nikulás Kr. Jónsson, Sonja Eggertsdóttir, Hlynur Eggertsson, afa- og langafabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.