Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 52

Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 52
52 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 ✝ Halldóra Guð-rún Gísladóttir fæddist á Hóli í Ólafsfirði 9. októ- ber 1929. Hún lést á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði 24. maí 2013. Foreldrar henn- ar voru Kristín Helga Sigurð- ardóttir, f. í Héð- insfirði 6.6. 1897, d. 10.9. 1986, og Gísli Stefán Gíslason, f. 5.12. 1897, d. 26.3. 1981. Systkini Halldóru eru: Anna Lilja, f. 5.9. 1920, d. 27.8. 2011, Gísli, f. 10.4. Kristín Aðalheiður, f. 4.4. 1949, maki Víglundur Pálsson, f. 6.9. 1948, börn þeirra Halldóra Guð- rún, f. 26.11. 1967, Hannes Páll, f. 28.1. 1971, kvæntur Lenu Rós, f. 7.9. 1972, og Andri Viðar, f. 21.10. 1979. Kristín á níu barna- börn og eitt barnabarnabarn. 2) Elva, f. 19.8. 1956, maki Bjarni Már Jensson, f. 23.8. 1953, dæt- ur þeirra Þórunn Selma, f. 9.11. 1976, í sambúð með Bjarna Sindra Bjarnasyni, f. 15.11. 1970, og Helena Guðrún, f. 22.5. 1979, maki Arnar Már Arnþórs- son, f. 12.11. 1973. Elva á sex barnabörn. 3) Rut Sigurrós, f. 5.10. 1964, maki Kári Jónasson, f. 19.3. 1962. Synir þeirra Mar- teinn Gauti, f. 20.3. 1994, og Atli Berg, f. 10.3. 1999. Halldóra Guðrún verður jarð- sungin frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 1. júní 2013, og hefst at- höfnin kl. 11. 1922, Sigurður Halldór, f. 25.12. 1923, d. 13.5. 1997, Björn, f. 23.6. 1925, d. 14.1. 2010, Ólafía, f. 15.8. 1928, d. 5.8. 2012, Petrea Aðalheiður, f. 30.10. 1930, Ásta, f. 18.8. 1933, d. 2.12. 2010, og Guð- mundur Jón, f. 24.3. 1937. Halldóra giftist 28. desember 1954 Hannesi Sigurðssyni frá Vermundarstöðum í Ólafsfirði, f. 4.9. 1925, d. 21.10. 1996. Dæt- ur Halldóru og Hannesar eru: 1) Elsku amma. Okkur er efst í huga virðing og þakklæti fyrir að fá að eiga þig fyrir ömmu og fá að læra af þér svo margt sem við höfum að leiðarljósi í okkar lífi. Þinn ljúfi persónu- leiki einkenndist fyrst og fremst af dugnaði og mikilli væntumþykju og ást á þínum nánustu. Það voru forréttindi að fá að kynnast þínum lífs- viðhorfum og verklagni í hverju því sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú gekkst alltaf ákveð- in og rösklega til allra starfa og þér féll aldrei verk úr hendi á meðan heilsan leyfði. Vegna þín lærðum við ungar að sauma og prjóna og þú lést okkur rekja upp og laga þangað til hlut- urinn var orðinn vel gerður því það var ekki nóg að kunna að gera hlutinn heldur átti hann líka að vera fallegur og vel unn- inn. Sama var um bakstur og eldamennsku, þú lagðir miknn metnað í að gera allt vel og meira en nóg af öllu svo allir færu saddir og sælir frá þér. Eftir að við fluttumst til Reykjavíkur og vorum búnar að stofna heimili þá sóttist þú eftir að fá að dvelja til skiptis hjá okkur systrum, það þótti okkur afar vænt um og gátum við þá sýnt þér hvað þú hafðir kennt okkur mikið í gegnum árin. Þú varst varla komin úr skónum og jakkanum þegar þú varst farin að aðstoða okkur í heimilisstörfunum og þegar kominn var tími til að halda heim á leið voru allar flíkur í húsinu hreinar, öll rúmföt og skyrtur straujaðar, bakkelsi í frystinum og hvergi rykkorn að sjá. Mikið eigum við eftir að sakna þín, elsku amma. Þegar við vorum yngri þá lögðum við það í vana okkar að skreppa til ömmu og afa daglega, ýmist til að fá að borða ef maturinn heima var ekki nógu góður, til að kvarta yfir ósanngjarni með- ferð í foreldrahúsum eða til að spila við þig og taka svo einn léttan dans í lokin. Það fannst okkur gaman. Við fórum alltaf brosandi heim, sama hversu mikið var snúið upp á okkur í upphafi heimsóknar, já þú kunnir að leggja fram rök og láta okkur horfa á hlutina frá öðru sjónarhorni. Það var þér svo mikið kappsmál að allir væru sáttir og ánægðir. Eftir að við systur eignuðumst svo okkar fyrstu börn þá tóku þau við þessu hlutverki. Þau tóku það upp hjá sér sjálf að heim- sækja þig daglega þegar þau voru stödd í Ólafsfirði, til að fá að borða, til að spjalla um lífið og tilveruna og til að spila og dansa við langömmu. Þeirra söknuður er mikill en þau geyma góðar minningar um yndislega langömmu í hjartanu alla tíð. Með þessum fáeinu orðum viljum við þakka þér fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman. Þakka þér fyrir hjálp- ina sem þú veittir okkur, fyrir ráðleggingarnar og hugulsemi þína fyrir okkur og fjölskyld- unum okkar. Við þökkum þér fyrir þær góðu minningar sem þú hefur gefið okkur um ömmu, vænstu og hugljúfustu konu sem lét ekkert sér óviðkomandi og bar ætíð hag annarra fyrir brjósti. Við munum sakna þín mikið, elsku amma, en huggum okkur við að afi tekur vel á móti þér og að þið eruð nú saman á ný. Við huggum okkur við að þú kvaddir sátt við lífsverk þitt og hlutskipti í lífinu. Hvíl í friði, elsku amma. Þínar Helena Guðrún og Þórunn Selma. Elsku amma, nú ert þú búin að kveðja okkur eftir erfið veik- indi síðustu mánuði og komin til afa sem við vitum að tók á móti þér. Söknuðurinn er þegar mikill en það er samhengi á milli sorgar og ljúfra minninga. Minninga sem koma í hugann á stundu sem þessari og gera það bærilegra að sætta sig við orð- inn hlut sem enginn fær breytt. Við erum afar þakklátir fyrir að hafa verið hjá þér síðustu jól nokkrum dögum áður en þú veiktist og þurftir eftir það að dvelja á sjúkrahúsi, breytingin við að koma á Aðalgötu 31 síð- ustu mánuði var mikil, engin amma til að taka á móti okkur, en við áttum samt góðar stund- ir með þér á sjúkrahúsinu. Þú varst afskaplega kær- leiksrík og góð amma og hugs- aðir mikið um þína fjölskyldu og fengum við svo sannarlega vænan skammt af þeirri vænt- umþykju þinni. Þegar við kom- um í heimsókn til Ólafsfjarðar með mömmu og pabba var til- hlökkunin ekki síður mikil hjá þér en okkur. Á Aðalgötu 31 var alltaf veisluhlaðborð þá daga sem við dvöldum hjá þér og má segja að matar- og kaffi- tímar hafi nánast runnið sam- an, slíkar voru kræsingarnar, því þú passaðir að enginn væri eða færi svangur frá þér. Sér- staklega viljum við minnast á kóteletturnar í Gúndaofninum, karamellukökuna og banana- brauðið sem alltaf var til hjá þér þegar við komum því þú vissir að okkur þætti þessar kökur og kóteletturnar svo góð- ar. Margt brölluðum við saman, t.d. gengum við oft að tjörninni til að skoða og gefa öndunum, keyrðum fram í sveitina að Hóli þar sem þú varst fædd og upp- alin og á leiðinni lýstir þú því sem fyrir augu okkar bar og sagðir okkur ýmsar sögur frá uppvaxtarárum þínum á Hóli. En eitt er eftir sem við vorum ekki búin að gera, það var að setja skopmyndirnar þína í al- búm, en amma, við skulum redda því. Við fylgdumst vel með öllu hjá þér og frændfólki okkar á Ólafsfirði því á milli allra heim- sóknanna voru mörg góð símtöl milli okkar og þín, þú sagðir okkur meira að segja frá fólki sem þú þekktir en við ekki neitt. Hvíl þú í friði, elsku amma, minning þín mun lifa með okkur um ókomna tíð. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Kveðja, Marteinn Gauti og Atli Berg Kárasynir. Halldóra Guðrún Gísladóttir Hvernig skrifar maður um manneskju sem hefur alltaf verið til. Hvar byrjar maður? Minningarnar og samveru- stundirnar eru svo margar, svo góðar, svo skemmtilegar. Hvar byrja ég að skrifa? Kannski á því sem hún hefur kennt mér. Að gefast aldrei upp. Að hlusta á börnin og leyfa þeim að njóta sín. Að hlæja og hafa gaman af lífinu, líka þegar á móti blæs. Að syngja við verkin, það gerir þau svo miklu skemmtilegri. Eða á ég að byrja á öllu því sem hún gerði fyrir mig. Að setja mig alltaf í fyrsta sæti þegar ég var hjá henni og gæta þess að mér liði vel. Að taka á móti mér á hverju sumri þegar Lilian Agneta Mörk Guðlaugsson ✝ Lilian AgnetaMörk Guð- laugsson fæddist í Þórshöfn í Fær- eyjum 25. maí 1926. Hún lést á Landa- kotsspítala 13. maí 2013. Útför Lilian Ag- netu var gerð frá Fossvogskirkju 21. maí 2013. hún bjó í Dan- mörku og ekki bara mér, líka vin- konum mínum ef ég óskaði eftir því. Að bjóða mér uppá franskar eftir hverja innkaupa- ferð í Brugsen, því þá varð innkaupa- ferðin líka skemmtileg fyrir mig. Að fara með mig í Tívolí, á ströndina og Sommerland á hverju sumri, af því mér þótti það svo skemmti- legt. En kannski ætti ég að skrifa um hennar líf. Að hún eignaðist átta börn. Að hún var einstæð með sjö börn, bláfátæk en vann myrkranna á milli til að halda fjölskyldunni saman og tókst það. Að hún kynntist elsku afa Sæma, sem var bál- skotinn í henni og vildi gera allt fyrir hana. Að henni leið al- veg eins og gerði allt fyrir hann. Að hún átti áttunda barn- ið sitt með honum, „bara svona fyrir hann“ sagði hún brosandi. Að hún kom frá Færeyjum ung stúlka, ætlaði að stoppa stutt á Íslandi á leið sinni til Englands að læra hjúkrun. Að plönin breyttust allverulega og hún var ánægð með það. Eða ætti ég að byrja á því að skrifa hvernig hún var? Hún talaði hátt, ákveðið, hafði kolsvartan húmor og var hrókur alls fagn- aðar. Hreimurinn og talsmátinn var færeyskur, danskur og ís- lenskur allt í bland, algjörlega einstakur. Hún var barngóð með eindæmum, vildi knúsa mann og kyssa og svo koma einhverri næringu í mann, því ekki mátti fara svangur heim. Að „næringin“ var yfirleitt ís, kók, flögur eða kökur, það var allt í lagi því ömmur hafa al- ræðisvald í dekri. Að hún var góð, hlý, brosmild, skemmtileg og elskaði tónlist og kóngafólk. Að hún var amma mín, ynd- isleg, sterk, falleg, ótrúleg. Amma mín, þú bannaðir mér að syrgja þig, því þú áttir langt og gott líf sem þú varst mjög sátt við. Ég skal reyna að hlýða því, en ég get engu lofað. Vala Mörk Jóhannesdóttir. Mig langar að minnast elsku- legrar ömmu minnar Lillian Agnetu með örfáum orðum, en hún lést mánudaginn 13. maí sl. Amma var einhver skemmtileg- asta og fyndnasta kona sem ég hef átt samleið með í lífinu, alltaf var stutt í glettin tilsvör og sagði hún skemmtilega frá einu og öllu. Alltaf þegar ég kom í heimsókn var glatt á hjalla og gat amma sagt sögur frá liðnum tímum, frá uppvaxt- arárum sínum í Færeyjum, ár- unum í Hveragerði og á Sel- fossi eða frá tímanum í Danmörku en þau Sæmi afi bjuggu þar í rúman áratug. Amma nefndi oftar en einu sinni hversu gæfusöm hún var að hafa eignast Sæmund að manni en þegar hún dó var stutt í 50 ára brúðkaupsafmæli þeirra. Sæmundur afi stóð allt- af við hlið hennar sem klettur og var henni stoð og stytta í öllu. Þó veikindi hafi verið erfið síðustu árin var hún alltaf glöð og reytti af sér brandara við hvert tilefni, þannig að eftir hverja heimsókn fór maður brosandi heim og ánægður. Amma fylgdist vel með okkur barnabörnunum og hvað við gerðum í lífinu, meðal annars okkar íþróttaiðkun, var ekki laust við að hún væri montin af okkur og man ég hversu glöð hún var þegar við náðum að af- reka það að verða bikarmeist- arar í körfubolta núna í febrúar sl. Nú þegar amma er kvödd er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa kynnst jafn elskulegri konu og hún var. Minningu um hana mun ég geyma í hjarta mínu um ókomin ár. Marvin Valdimarsson. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann ✝ Innilegar þakkir og kveðjur til ykkar allra sem sýnduð okkur ástúð og hlýju með nærveru ykkar, blómum og vinarkveðjum við fráfall og kveðjuathöfn ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MÖRTU FANNEYJAR SVAVARSDÓTTUR, Víðidal. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar III á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks fyrir alla umhyggju, ástúð og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Stefán Gunnar Haraldsson, Svavar Haraldur Stefánsson, Ragnheiður G. Kolbeins, Pétur Helgi Stefánsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigríður Stefánsdóttir, Einar Örn Einarsson, Margrét S. Stefánsdóttir, Ólafur Hafsteinn Einarsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigimanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS ÞÓRÐAR SÆMUNDSSONAR rafvirkja, Mávahlíð 33. Jónína Sigurðardóttir, Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir, Sigurður H. Ólafsson, Guðfinna Hákonardóttir, Hafdís Ólafsdóttir, Guðmundur Már Ragnarsson og barnabörn. ✝ Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarþel við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR, Boðaþingi 24, Kópavogi. Sérstakar þakkir fyrir stuðning og hlýju sendum við starfsfólki heimahlynningar, líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og Heimahjúkrunar Kópavogsbæjar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Teitur Jónasson. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, UNNAR MARÍU HJÁLMARSDÓTTUR, Klettaborg 12, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu á Akureyri og læknum og hjúkrunarfólki á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Tryggvi Jóhannsson, Hafdís Jóhannsdóttir, Jósef G. Kristjánsson, Heiðrún Jóhannsdóttir, Skarphéðinn Leifsson, Helgi Jóhannsson, Daníel Jóhannsson, Kristín Hjálmarsdóttir, Sólveig Eyfeld og barnabörn. ✝ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför okkar ástkæra HILMARS GUÐLAUGS JÓNSSONAR. Elísabet Jensdóttir, Jens Hilmarsson, Jón Rúnar Hilmarsson, Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.