Morgunblaðið - 01.06.2013, Síða 54

Morgunblaðið - 01.06.2013, Síða 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Collie (Lassie) HRFÍ-hvolpar til sölu. Til sölu ættbókafærðir Collie- hvolpar, foreldrar standast allar heilsufarskröfur HRFI um undaneldi, uppl. á Facebook: Nætur-collie & í síma 893 5004, Guðríður. Abyssinskur kettlingur til sölu Gullfallegur, kelinn og skemmtilegur abyssinskur fress, f. 10.2. 2013, leitar að góðu framtíðarheimili. Nánari uppl. í síma 847 4754 eða á steinunn_e@hotmail.com Garðar Garðsláttuvélar Garðverkfæri Garðtjarnir Austurrísk gæðavara Orkuver ehf . sími 534 3435 www.orkuver.is Dádýrshaus Þessum uppstoppaða dádýrshaus var stolið fyrir nokkrum dögum úr sumar- bústað ásamt rúml. 100 öðrum grip- um. Þar kennir ýmissa grasa, ískápur, útikamína auk smærri gripa eins og búsáhalda og óróa með litfögrum fiskum! Beri einhver kennsl á þessa gripi, láti hann lögregluna á Selfossi vita. Fundarlaun ! Gisting Draugasetrið Stokkseyri, www.veislusalur.is, veislusalurinn@gmail.com Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri orlofshús við Akureyri og öll með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300 Húsnæði óskast Sendiráð óskar eftir einbýli Þýskur sendiráðsfulltrúi óskar eftir 3-4 herb. einbýlishúsi m/bílskúr á höfuðborgarsvæðinu til leigu frá 1. ágúst 2013 í 4 ár, m/hund + fugla. Uppl. s. 530 1100. Myndir/grunn- teikningar sendist á: info@reykjavik.diplo.de Lítil íbúð óskast frá 1. september Reglusamt og reyklaust par utan af landi við nám í Háskóla Íslands óskar eftir lítilli íbúð til leigu frá 1. septem- ber. Erum fyrirtaks leigjendur, snyrti- leg og tillitssöm og greiðum alltaf leiguna fyrsta hvers mánaðar. Getum fengið meðmæli ef þess er óskað. Vinsamlegast hafið samband í síma 869-6908 (Eva Þórey). Geymslur Plastgeymslu-útihús 4,5 fm. Auðveld í uppsetningu og viðhaldsfrí. Verð 180 þús. Uppl. í síma 893-3503 eða 845-8588. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Húsviðhald Hreinsa þakrennur laga ryð á þökum, hreinsa veggjakrot og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hotmail.com Ýmislegt Blómaskór. Margir litir. Eitt par 1.400 kr., tvö pör 2.500 kr. Einnig hvítir. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Comenius University Jessenius Faculty of Medicine í Martin Slóvakía býður nú íslenskum stúdent-um upp á 6 ára nám í Læknisfræði. Kennsla fer fram á ensku. Skólinn er viðurkenndur í Evrópu, Banda-ríkjunum og af WHO. www.jfmed.uniba.sk. Inntökupróf verður haldið 15 júní nk. í Reykjavík uppl.í s. 5444333 og kaldasel@islandia.is Hringtreflar úr silki og bómull 20 litir. Verð kr. 2.900,- Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466.                                                Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Nýkomið: Blússur. Blússur, með blómamunstri St. S-XL. Bolir Góðir litir Sími 588 8050. - vertu vinur Silki og ull Pasmínutreflar úr silki og ull. Margir litir. Verð kr. 2.990. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Teg. 38156. Mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: grænt, svart og hvítt. Stærðir: 36-40. Verð: 15.885. Teg. 9361. Mjúkir og þægilegir sumarskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: gult, grænt og rautt. Stærðir: 35-41. Verð: 13.885. Teg. 36555. Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir: rautt og svart lakk. Stærðir: 36-41. Verð: 15.885. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - fös. 10 - 18. Opið laugardaga 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. SUNDFATNAÐUR Á 30% AFSLÆTTI Teg. ADOLPHI - Bh. áður kr. 9.550, NÚ KR. 6.685, og buxur, áður kr. 6.650, NÚ KR. 4.655. Teg. FEVER - Bh. áður kr. 8.850, NÚ KR. 6.195, buxur, áður kr. 3.850, NÚ KR. 2.695. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugard. kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Vélar & tæki Til sölu skotbómu-lyftarar netvelar.is - sími 892 0566. Tapað/fundið Elskuleg vinkona mín, Bergþóra Þorsteinsdóttir, er látin á 101. aldursári. Beggu kynntist ég á barnsaldri þá ný- komin heim frá Kaupmannahöfn, Bergþóra Þorsteinsdóttir ✝ Bergþóra Þor-steinsdóttir, húsmóðir, Drápu- hlíð 5, Reykjavík, fæddist í Háholti í Gnúpverjahreppi 3. janúar 1913. Útför Bergþóru fór fram frá Bú- staðakirkju 27. maí 2013. þriggja ára gömul. Amma mín, Kristín Magnúsdóttir, leigði kjallaraíbúð í húsi Gauju og Valda að Lindargötu 30, en Begga og Gauja voru systur. Þarna ólst ég upp hjá ömmu minni til 18 ára aldurs og héld- ust tengsl mín við fjölskylduna í hús- inu alla tíð. Mikill gestagangur var á heimilinu, systkini utan af landi og margt fleira fólk, öllum tekið af mikilli gestrisni. Í gegn- um æskuvinkonu mína Sonju, sem var dóttir Gauju og Valda, hefur vinátta mín við Beggu hald- ist óslitið allt frá því ég man eftir mér. Lengi bjó hún í risinu hjá systur sinni og hennar manni. Fengum við stelpurnar oft að koma inn til hennar að spjalla og skoða ýmsa dýrgripi. Begga var glaðvær og skapgóð, og vinsæl af sínu samferðafólki. Hún var mikil sómakona eins og öll hennar systkini og systkina- börn, og er ég þeim öllum þakklát fyrir góð kynni og hlýhug í minn garð. Þó Begga vinkona mín hafi ekki eignast sín eigin börn hefur hún notið ástar og umhyggju systkinabarna sinna. Mér reynd- ist hún afskaplega góð og ég vona að hún hafi notið samveru okkar jafnmikið og ég. Ég mun ætíð minnast hennar af miklum hlý- hug. Takk fyrir samfylgdina, þín vinkona, Ruth Sörensen Við fjölskyldan fluttum í Drápuhlíð 5 fyrir tæpum tuttugu og þremur árum. Við vorum heppin með nágranna, á fyrstu hæð bjuggu Kristín og Björgvin en í kjallaranum þau Bergþóra og Ingvar. Öll höfðu þau búið lengi í húsinu og gátu sagt okkur sögu þess allt frá miðbiki síðustu aldar. Samkomulagið var gott og okkur leið vel með þessu fólki í húsinu. Þetta góða fólk sem var komið á efri ár tók sonum okkar vel og gaf þeim það svigrúm sem börn þurfa til að láta sér líða vel við leik og ærsl. Nú hefur Bergþóra kvatt þetta líf síðust þessara nágranna okkar. Bergþóra varð hundrað ára í byrj- un þessa árs. Þegar hún varð ní- ræð bauð hún okkur hjónum í veglega veislu sem haldin var í sal úti í bæ í tilefni afmælisins. Þegar komið var heim í Drápuhlíð bauð hún okkur að koma niður í íbúð þeirra Ingvars og skála í tilefni af þessum tímamótum. Hún sagði að hún yrði níutíu ára bara einu sinni og það væri of snemmt að hætta að fagna því um kvöldmatarleytið. Þetta kvöld var mjög ánægjulegt og líður okkur seint úr minni. Bergþóra hafði góða nærveru og eftir að hún flutti á Grund fyrir nokkrum árum spurði hún alltaf frétta úr Drápuhlíð þegar við hitt- um hana. Við kveðjum með virðingu góða nágrannakonu og sendum að- standendum hennar samúðar- kveðjur. Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir og Garðar Mýrdal. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.