Morgunblaðið - 01.06.2013, Side 58

Morgunblaðið - 01.06.2013, Side 58
Hinn ástsæli tónlistar- og fjölmiðlamaður Þorgeir Ástvaldssonfagnar 63 ára afmæli sínu sunnudaginn 2. júní. Þorgeir seg-ist vera lítill afmæliskarl en hann ætlar að eyða afmælis- deginum í faðmi fjölskyldunnar, annaðhvort í sumarbústaðnum eða heima. „Þetta er svo mikið látleysi yfir öllu tengdu afmælinu mínu, það eru eiginkonan og börnin sem sjá um það svona yfirleitt,“ segir Þorgeir. Hann segist hugsa til þess á afmælisdeginum hve stutt er í 64 ára afmælið sem Bítlarnir sungu um á sínum tíma. „Ég spilaði í ung- lingahljómsveit og komst snemma í samband við tónlist og söng og spil á sviði,“ segir Þorgeir sem hóf tónlistarferil sinn í Tempó, skóla- hljómsveit Langholtsskóla, en hún spilaði með stórsveitinni Kinks í Austurbæjarbíói þegar Þorgeir var einungis 15 ára. „Þá sungu Bítl- arnir „þegar ég verð sextíu og fjögurra ára“. Þegar ég verð eldri verð ég gamall maður í slopp sem er vísað til sætis í ruggustólnum og fæ mitt glas af Ballantine-vískíi,“ segir Þorgeir og bætir við létt- ur í bragði: „Ég man alltaf eftir þegar við spilafélagarnir úr Lang- holtsskóla sögðum: „Þegar ég verð 64 ára – það er eiginlega svo hrumur öldungur að þú getur ekki ímyndað þér.“ Svo allt í einu er bara ár í þennan kall í ruggustólnum sem er orðinn svo fjörgamall að elstu menn muna ekki annað eins.“ skulih@mbl.is Þorgeir Ástvaldsson er 63 ára á sunnudag Morgunblaðið/Ómar Fer í fríið Þorgeir Ástvaldsson á langan og farsælan feril sem tónlist- ar- og fjölmiðlamaður. Hann fagnar 63 ára afmæli sínu á sunnudaginn. Eitt ár í gamla kall- inn í ruggustólnum 58 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013 Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Þuríður A. Steingrímsdóttir og Óli H. Þórðarson halda upp á 70 ára afmæli sín á gullbrúðkaupsdeginum í dag, 1. júní. Óli varð sjötugur 5.2. sl., Þuríður á afmæli 28.7. nk. Þau verða með opið hús í Félagsh. Knattspfél. Þróttar, Engjavegi 7, í dag, 1. júní, kl. 20. Þau af- þakka gjafir en benda á „Söfnunarsjóð um aðgerðaþjarka“, kt. 470313-1370. Reikn.nr: 0515-14-408005. Í afmælinu verður kassi fyrir umslög (með banka- kvittunum eða peningum). Árnað heilla 70 ára Keflavík Anný Eva fæddist 23. sept- ember. Hún vó 3.510 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Hanna Þurý Ólafsdóttir og Steindór Veig- arsson. H örður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúd- entsprófi frá Verzl- unarskóla Íslands 1958, viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1965 og MBA-prófi frá Wharton School, University of Pennsylvania í Bandaríkjunum 1968. Hörður var fulltrúi framkvæmda- stjóra Almenna bókafélagsins 1965- 66, sérfræðingur í fjármálaráðu- neytinu, fjárlaga- og hagsýslu- stofnun, 1968-72 og deildarstjóri þar 1972-74. Hann var framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Flugleiða hf. 1974-79 og forstjóri Hf. Eimskipa- félags Íslands 1979-2000. Hörður var formaður stúd- entaráðs HÍ 1960-62, hótelstjóri á Hótel Garði, sumarhóteli sem stúd- entar ráku 1960-63, sat í stjórn SUS 1964-66, í stjórn Stjórnunarfélags Íslands 1969-83, þar af stjórnar- formaður 1979-83. Hann sat í stjórn Verzlunarráðs Íslands og í fram- kvæmdastjórn þess 1978-84, í sam- bandsstjórn Vinnuveitenda- sambands Íslands og í framkvæmdastjórn þess og var for- maður Landsnefndar Alþjóðaversl- unarráðsins um skeið frá 1985. Hann Hörður Sigurgestsson, fyrrv. forstjóri Eimskips – 75 ára Borðhald Hörður og Áslaug, ásamt dóttur sinni, tengdasyni og barnabörnum eftir hvalaskoðun á Húsavík. Hann ferðast, les og ræðir við barnabörnin Við bókasafnið Hörður, ásamt syni, tengdadóttur og barnabörnum. Reykjavík Egill Þór fæddist 24. sept- ember. Hann vó 3.530 grömm og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Sig- urbjörg Erla Egilsdóttir og Óttar Helgi Einarsson. Nýir borgarar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.