Morgunblaðið - 01.06.2013, Page 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin Keflavík Music
Festival verður haldin öðru sinni í
ár 5.-9. júní nk. í Reykjanesbæ.
Tónleikar og uppákomur fara fram
á átta stöðum í bænum, m.a. í
Reykjaneshöllinni og Keflavík-
urkirkju og í tjöldum sem rúma allt
frá 500 upp í 2.500 gesti. Tónlistin
sem boðið verður upp á er af öllum
toga, allt frá ljúfum tónum Páls
Óskars og hörpuleikarans Moniku
Abendroth yfir í harðasta málm og
rapp Sólstafa og Blazroca. Og er-
lendir gestir eru ekki af verri end-
anum og ber af þeim eflaust hæst
breska rapparann Tinie Tempah.
Sérstök dagskrá fyrir
18 ára og yngri
„Keflavík Music Festival er tón-
listarhátíð fyrir alla. Markmiðið er
að hafa eitthvað fyrir hvern sem er.
Við erum með mjög fjölbreytta
dagskrá fyrir 18 ára og eldri og
einnig dagskrá fyrir 18 ára og
yngri. Sá aldurshópur fær að sjá
allt sem verður í boði í Reykjanes-
höllinni,“ segir Óli Geir Jónsson,
skipuleggjandi hátíðarinnar.
– Hver eru aðalatriðin á dag-
skránni, stærstu
nöfnin?
„Tinie Tempah
er svokallaður
„headliner“ á há-
tíðinni. Hann er
það atriði sem hef-
ur unnið til flestra
verðlauna t.d.
Deila má um hvað
er aðalatriðið enda
er smekkur manna
misjafn. Rudimen-
tal hafa einnig verið að koma mjög
sterkir inn, þeir sendu frá sér
fyrstu sólóplötuna fyrir u.þ.b. mán-
uði og fór hún í gull eftir aðeins tíu
daga í sölu. Far East Movement
eiga ótrúlega stórt „fan base“ hér á
Íslandi, þeir eru búnir að gefa út
lög með Justin Bieber og fleirum.
Nýja lagið þeirra, „Get up“, hefur
verið eitt vinsælasta danslag heims
síðustu vikur, það verður virkilega
gaman að sjá þá „live“. Ég gæti
haldið endalaust áfram, Röyksopp,
Chase & Status, Outlandish, Nicky
Romero og ein af mínum uppá-
haldshljómsveitum, The Temper
Trap, eru einnig erlend atriði sem
koma fram á hátíðinni í ár. Ekki má
gleyma íslenska „line-up“-inu sem
er einnig eitt það glæsilegasta sem
sést hefur: Hjálmar, Ásgeir
Trausti, Ólafur Arnalds, Skálmöld,
Páll Óskar, Bubbi, SIGN, Sólstafir,
Agent Fresco, Sykur, Bloodgroup,
Dikta og 100 tónlistaratriði í við-
bót.“
Tók tíma að ná Tempah
– Tinieh Tempah sló í gegn í
Bretlandi og víðar árið 2010 með
laginu „Pass out“ og hefur átt mik-
illi velgengni að fagna. Það hlýtur
að hafa verið dálítið snúið að fá
hann til Keflavíkur?
„Það var frekar snúið, já og tók
góðan tíma að fá hann og hans
menn til að koma á Keflavík Music
Festival. Það sem hjálpaði mjög
mikið í sambandi við það var að
Tinie Tempah langar mikið að
heimsækja Ísland, hann hefur aldr-
ei komið fram á tónleikum hér áð-
ur. Þegar viðræður hófust í sam-
bandi við að fá hann til landsins þá
tóku þau vel í það en þegar kemur
að svona festivali er alltaf erfiðara
að fá tónlistarmenn til að koma.
Þeir vilja oftast frekar vera með
staka tónleika þegar þeir eru orðnir
svona stórir og þekktir. Ég hafði
ekkert í höndunum til þess að sýna
þeim í sambandi við hátíðina, þau
vildu að sjálfsögðu sjá myndbönd
og myndir frá fyrri hátíðum en þar
sem hátíðin er ný hafði ég ekkert
slíkt. Á endanum náði ég nú að
telja þau á að koma og öll hin atrið-
in sem troða upp á Keflavík Music
Festival í ár. Allt verður nú tekið
upp í hljóði og mynd þannig það
ætti að vera lítið mál fyrir okkur að
fá önnur erlend tónlistaratriði
næstu ár,“ segir Óli Geir.
– Þetta er býsna fjölbreytt tón-
list, allt frá Palla og Móniku yfir í
myljandi víkingamálm. Var lagt
upp með fjölbreytni í vali á tónlist-
armönnum og hljómsveitum?
„Já, það var það eina sem kom til
greina allan tímann. Hugmyndin
með þessu festivali er að hafa eitt-
hvað á boðstólum fyrir alla. Við
verðum með tónleika í Keflavík-
urkirkju með Páli Óskari & Mo-
niku, Bubba, KK, Ólafi Arnalds og
fleirum, einnig grjóthart rokk,
sveitaböll, unglingatónleika og allt
fyrir rapparana. Röyksopp, Chase
& Status, Nicky Romero, Sísý Ey,
Steed Lord og fleiri sjá svo um
dansþyrsta gesti. Þetta gerist ekki
betra.“
Verður söguleg
– Þetta er fjögurra daga hátíð,
átta tónleikastaðir. Fer ekki allt á
annan endann í Reykjanesbæ?
„Með góðri skipulagningu og
vönduðum vinnubrögðum þá nei.
En í sambandi við stemningu, hún á
eftir að verða ein sú sögulegasta.“
– Hvernig gengur miðasala og er
stefnt að því að halda þessa hátíð á
hverju ári?
„Hátíðin er nú árlegur viðburður
og þetta er í annað sinn sem hún er
haldin. Við erum búnir að festa
okkur á aðra helgina í júní ár hvert.
Miðasalan gengur vonum framar.
Þeir sem hafa nú þegar ekki nælt
sér í miða geta nálgast þá á næstu
N1-stöð eða heimasíðu okkar, kefla-
vikmusicfestival.com. Það verður
einnig í boði að kaupa miða á hátíð-
inni, svo lengi sem það er ekki upp-
selt,“ segir Óli Geir og bætir við að
einnig verði hægt að tjalda í
Reykjanesbæ yfir helgina, á göml-
um fótboltavelli á Iðavöllum í
Keflavík sem sé skamman spöl frá
Reykjaneshöllinni. „Það er því um
að gera að byrja fyrstu útilegu
sumarsins í Keflavík 5.-9. júní,“
segir Óli Geir að lokum.
„Tónlistarhátíð
fyrir alla“
Keflavík Music Festival hefst á miðvikudaginn og stend-
ur í fjóra daga Tinie Tempah „headliner“ hátíðarinnar
Sísý Ey Ein margra íslenskra
hljómsveita sem verða í Keflavík.
Raftónlistardúett Norska tvíeykið Röyksopp treður upp á hátíðinni.
Óli Geir
Jónsson
Röyksopp Norski rafdúettinn ætti
að svala þorsta danþyrstra.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
GERSEMAR 18.5. - 25.8. 2013
HUGLÆG LANDAKORT - MANNSHVÖRF 18.5. - 30.6. 2013
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 - Ingibjörg Magnadóttir fjallar um verk sitt.
SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600. OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mán.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM og FORNMENN
Opið þriðjud.-fimmtud. kl. 11-14, sunnud. 13-16
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625. www.listasafn.is
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
ÚR DJÚPUNUM - Samsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Íslands
SUMAROPNUN frá 1. júní - Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Hátíðarsýningar í tilefni 150 ára afmælis Þjóðminjasafns:
Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Nýjar sýningar í tilefni af 100 ára afmæli Heimilisiðnaðarfélags Íslands:
Kónguló á 3. hæð og Heimilisiðnaðarfélag Íslands í eina öld á Torgi
Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús.
Fylgist með á facebook: http://www.facebook.com/thjodminjasafn
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga frá kl. 10-17
Art=Text=Art
Verk eftir samtímalistamenn
Hádegisleiðsagnir
alla föstudaga kl. 12:05
Hellisgerði,
blóma- og skemmtigarður
Fimmtudagur 6. júní kl. 20
Göngutúr um Hellisgerði
gengið frá inngangi garðsins
við Reykjavíkurveg
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Sýningin
Óvænt kynni
verður opnuð
föstudaginn 7.júní kl. 17
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is