Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 68
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2013 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Sjómannadagurinn, hátíðisdagur okkar sjómanna, er næstur á dag- skrá,“ segir Guðjón Vilinbergsson vélfræðingur, sem hefur unnið á sjónum í nær hálfa öld og þar af sem vélstjóri á fossum Eimskipafélags- ins, síðar Eimskips, í um 44 ár. Á morgun verður haldið upp á sjó- mannadaginn í 75. sinn. „Ég man vel eftir fyrsta sjómannadeginum mín- um sem sjómaður,“ rifjar Guðjón upp. „Við vorum á heimleið á Reykjafossi II í Norðursjónum vorið 1964. Það er alltaf hátíðarmatur úti á sjó á sjómannadaginn en við héldum líka upp á daginn með keppni í poka- hlaupi, reiptogi og naglaboðhlaupi.“ Sjö ára nám Sjómannsblóð rennur í æðum fjöl- skyldu Guðjóns. Vilinberg Guðjóns- son, faðir hans, var sjómaður og Gissur Guðmundsson, móðurafi hans, reri margar vertíðir á opnum bátum. Rannveig Ásgeirsdóttir, kona Guðjóns, var þerna á Gullfossi um árabil. Ásgeir Magnússon, faðir hennar, fórst með togaranum Jóni Ólafssyni á stríðsárunum, og þrír synir þeirra eru sjómenn. Guðjón segir að fyrsta ferðin til útlanda sé eftirminnileg. „Ég byrj- aði til sjós þegar ég var búinn með fjögurra ára nám í smiðjunni í mars 1964, var dagmaður í vél á Reykja- fossi II. Fyrsta höfnin erlendis var Kaupmannahöfn og ég stóð eins og bjáni og horfði á öll húsin og turnana. Síðan tók við þriggja ára nám í Vélskólanum, þannig að ég er langskólagenginn, en eftir námið 1967 tók ég upp þráðinn á ný hjá Eimskipafélaginu. Svo var ég hjá Gæslunni í flóttamannaeftirliti á Miðjarðarhafinu sumarið 2011 og hef verið af og til á hvalaskoðunar- skipi frá því í fyrrasumar.“ Siglingar austur fyrir járntjald eru mörgum eftirminnilegar. Guðjón segir að kerfið hafi verið stirt og eins gott að fara að settum reglum. „Ef maður var ekki kominn um borð á ákveðnum tíma var landgöngupass- inn tekinn af manni og maður fékk ekki að fara aftur í land,“ rifjar hann upp. „Tyggjóið og amerískar galla- buxur voru gjaldmiðillinn en maður þurfti að fara laumulega með þetta. Menn fóru stundum í land í tvennum gallabuxum og stundum gekk það en stundum ekki.“ Margt hefur breyst síðan Guðjón meig fyrst í saltan sjó. „Birtingin í vélarrúmunum er eftirminnilegasta breytingin, frá handstýrðu í tölvu- stýrt vélarúm. Þetta er mesta bylt- ingin en eins má nefna þegar teygju- lökin komu á dýnurnar. Þegar var veltingur og bræla var lakið alltaf strax komið út í horn en eftir að teygjulökin komu eru þau alltaf föst á dýnunni.“ Bylting með teygjulökunum  Guðjón vélstjóri á flutningaskipum í um hálfa öld Almeria á Spáni Guðjón Vilinbergsson, vélstjóri á Ægi, við flóttamannaeftirlit á Miðjarðarhafinu sumarið 2011. Sjómannadagurinn 1964 Um borð í Reykjafossi II. Jón Bogason loft- skeytamaður afhendir Jóni Ólafssyni sérstök verðlaun fyrir að vera elsti þátttakandinn í leikjum dagsins. Guðjón Vilinbergsson er lengst til vinstri. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Dómari níddi knapa og hross 2. Flugvél Ameliu Earhart fundin? 3. Birtu myndir af blóðugu herbergi 4. Kötturinn sat fastur í eldhúsinu  Fimm íslenskir raftónlistarmenn og hljómsveitir koma fram á hátíðinni Rythm Box Social sem haldin verður í Brooklyn í New York, 2. og 3. ágúst nk. Þetta eru Captain Fufanu, AMFJ, Berndsen, Lord Pusswhip og Two Step Horror. Auk Íslendinganna koma fram hljómsveitir og tónlistarmenn frá Kanada og Bandaríkjunum, m.a. Syngja frá Kanada sem flytur íslensk þjóðlög og tilraunakennt popp. Morgunblaðið/Eggert Íslenskir raftónlistar- menn í Brooklyn  Hin árlega djasssumar- tónleikaröð veit- ingastaðarins Jómfrúin hefur göngu sína í 18. sinn í dag kl. 15 með tónleikum kvartetts söng- konunnar Krist- jönu Stefánsdóttur. Auk Kristjönu skipa hljómsveitina Kjartan Valde- marsson, Tómas R. Einarsson og Matthías Hemstock. 18. djasssumarið  Tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars hefur í nógu að snúast þessa dagana. Stuttmynd Bigga og unnustu hans, Maríu Kjartansdóttur, We Are Weather, var frumsýnd í Lundúnum í síðustu viku og hann hefur auk þess samið tónlist fyrir Mercedes Benz, auglýs- ingar fyrir nýja S-Class bifreið. Þá á hann í samstarfi við bandaríska skúlp- túristann Daniel Wurtzel, semur tónlist við verkið Time Machine. Önnum kafinn Biggi FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-10 m/s, en norðaustan 3-8 norðvestantil. Skúrir en bjart með köflum norðaustantil lengst af. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á sunnudag (sjómannadagurinn) Hæg breytileg átt eða hafgola og bjart með köflum, en vaxandi suðaustanátt suðvestantil um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. Á mánudag Sunnan og suðaustan 10-15 m/s og rigning, einkum sunnan- og vestan- lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norð-Austurlandi. Eru tveir landsleikir í júní og níu daga samvera fyrir Evrópukeppnina í Svíþjóð nægur undirbúningur fyrir íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu? Hefði mátt gefa betra svigrúm fyrir liðið með því að hliðra til á Íslandsmótinu? Ís- lenska liðið mætir Skotum á Laugardals- vellinum í dag í eina leik sínum á heima- velli áður en Evrópukeppnin hefst í næsta mánuði. » 4 Er undirbúningurinn nægur fyrir EM? Kvennalandsliðið í körfu- knattleik spilar til úrslita um gullverðlaunin á Smá- þjóðaleikunum í Lúxemborg í dag, á lokadegi leikanna. Íslenska sundfólkið hefur rakað saman verðlaunum á leikunum og Anton Sveinn McKee er sannkall- aður gullkálfur leik- anna eftir að hafa unnið sex gull- verðlaun. »1 Gott gengi Íslend- inga í Lúxemborg Fyrri leikur íslenska kvennalandsliðs- ins í handbolta í umspilinu um laust sæti á HM í Serbíu í desember fer fram á morgun í Vodafonehöll Vals- manna á Hlíðarenda klukkan 16.00. Sá síðari verður ytra næsta laugardag en í boði er sæti á fjórða stórmótinu í röð hjá íslensku stelpunum. »3 Komast þær á fjórða stórmótið í röð?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.