Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 68. tölublað 102. árgangur
FRANSKA
LJÓNIÐ Í
FYRSTA SÆTI
VALIN
ÚR HÓPI
JAFNINGJA
NÁND MANNS-
INS OG STAÐA
KYNJANNA
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 18 LEIKRIT KRISTÍNAR MARJU 85BÍLASÝNINGIN Í GENF 56
Morgunblaðið/Ómar
Æfing Tugir sjómanna sækja alþjóðleg
öryggisnámskeið í Slysavarnaskólanum.
Um 50-60 sjómenn hafa á síðustu
mánuðum sótt alþjóðleg öryggis-
námskeið í Slysavarnaskóla sjó-
manna gagngert í þeim tilgangi að
verða gjaldgengir í störfum á er-
lendum skipum og í olíuiðnaðinum,
að sögn Hilmars Snorrasonar,
skólastjóra. Margir þeirra hafa
þegar fengið störf á norskum að-
stoðarskipum sem þjóna bor-
pöllunum.
Vegna fjárskorts hefur Sæbjörg,
skip skólans, vart haldið úr höfn
síðan árið 2008. Í sumar verður
breyting á er fjórar hafnir á Norð-
urlandi og Austfjörðum verða
heimsóttar. »16
Íslenskir sjómenn
til starfa í olíu-
iðnaðinum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Vinnuhópur Vegagerðarinnar legg-
ur til að komið verði upp rafrænu
vöktunarkerfi sem vari við skemmd-
um á Siglufjarðarvegi um Almenn-
inga. Tíðar skemmdir hafa orðið á
veginum vegna jarðsigs. Djúpar
sprungur og jarðsig geta skapað
mikla hættu fyrir vegfarendur.
Vinnuhópnum var m.a. falið að
gera tillögur um áframhaldandi at-
huganir og meta hvers konar við-
bragðsáætlanir þurfi vegna öryggis
vegfarenda. Hópurinn hefur skilað
skýrslu til vegamálastjóra.
Guðmundur Heiðreksson, deild-
arstjóri hjá Vegagerðinni, sagði að
hópurinn mælti með áframhaldandi
rannsóknum á svæðinu og gerði til-
lögu um vöktunarkerfið.
Hætta er á að hlutar vegstæðis
Siglufjarðarvegar á Almenningum
geti sigið verulega eða jafnvel hrun-
ið í sjó fram, að mati dr. Þorsteins
Sæmundssonar jarðfræðings. Veg-
urinn liggur á kafla tæpt á brún
mjög sprungins og brotins berg-
hlaups á milli Kvígildis og Almenn-
ingsnafar. Hætta er talin á að flein-
ar sígi úr brúninni og hrynji jafnvel
í sjó. Þá fer vegurinn væntanlega
með.
MVegurinn gæti hrunið »6
Rafræna vöktun á veginn
Hætta er talin á að hluti vegstæðisins á Almenningum geti hrunið í sjó fram
Vinnuhópur leggur til að Siglufjarðarvegur verði vaktaður vegna landsigs
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Jarðsig Varúðarskilti í Fljótum.
Morgunblaðið/hag
Landsbankinn Bankastjóri segir
samkeppni um hæfasta fólkið.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stjórnendur Landsbankans þurfa að
gæta að því að greiða samkeppnis-
hæf laun og hjá því verður ekki litið
að bankinn á í samkeppni við aðrar
fjármálastofnanir um hæft fólk.
Þetta segir Steinþór Pálsson,
bankastjóri Landsbankans, spurður
hvort gera eigi betur við starfsfólk í
ljósi mikils hagnaðar bankans.
„Við teljum mestu skipta að aukin
hagkvæmni skili sér í betri kjörum
til viðskiptavina, í góðri arðsemi
fyrir hluthafa og ávinningi fyrir sam-
félagið allt. Stefna bankans er að
greiða starfsfólkinu samkeppnishæf
kjör án þess þó að þau séu leiðandi
en við getum ekki horft framhjá því
að við erum á samkeppnismarkaði að
þessu leytinu,“ segir Steinþór.
Mun skerða arðgreiðslur
Landsbankinn greiðir ríkinu tæpa
20 milljarða í arð vegna síðasta árs.
Steinþór segir að erfitt verði að
greiða jafnmikinn arð á næstu árum,
m.a. vegna aukinnar skattlagningar
vegna leiðréttingar íbúðalána. »30
Laun séu samkeppnishæf
Bankastjóri Landsbankans segir samkeppni um hæft fólk
Mjög slæmt veður olli talsverðum usla og setti
daglegt líf úr skorðum á norðanverðu landinu í
gær. Afar hvasst var og fóru hviður sums staðar
upp í meira en 30 metra á sekúndu.
Því fylgdi snjókoma og slydda á Vestfjörðum
og Norðurlandi eins og sjá má á þessari mynd
frá Húsavíkurhöfn. Vegir lokuðust, skólahald
féll niður og björgunarsveitarmenn hjálpuðu
fólki sem hafði fest sig og gættu að tjóni sem
varð í hvassviðrinu. Áfram er spáð norðanátt
með 18-23 m/s og snjókomu og éljum í dag.
Vindur á þó að ganga niður á morgun.
Bátarnir í Húsavíkurhöfn velktust um í vonskuveðri
Morgunblaðið/Hafþór
Óveður gengur yfir norðanvert landið en vindur á að ganga niður á morgun
Varla er hægt
að fullyrða að
sjálfstæði Seðla-
banka Íslands
(SÍ) hafi minnkað
verulega þegar
laun seðla-
bankastjóra voru
skert. Það var
hins vegar „skert
nokkuð“ um
stundarsakir
þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
knúði fram verulega vaxtahækkun
og þáverandi bankastjórar voru
leystir frá störfum með lagabreyt-
ingu. Þetta kemur fram í meistara-
ritgerð Stefáns Jóhanns Stefáns-
sonar, ritstjóra og talsmanns
Seðlabankans. hordur@mbl.is »40
Minnkaði varla sjálf-
stæði Seðlabankans
Stefán Jóhann
Stefánsson
Fyrirtækið Íslensk bláskel hefur
hug á að koma lifandi hörpuskel til
veitingahúsa hér á landi en það
hefur aldrei verið gert áður.
Útgerðarfyrirtæki sem ráða yfir
aflaheimildum í hörpuskel á
Breiðafirði hafa undanfarið gert
áætlun í samvinnu við Hafró um
rannsóknir og tilraunaveiðar á
hörpuskel næstu mánuði. Mark-
miðið er að vinna aftur upp markað
fyrir íslenskan skelfisk en hann
hrundi með hörpuskeljarstofninum
eftir síðustu aldamót.
„Ég er gríðar-
lega spenntur og
ég er ekki einn
um það, allt sam-
félagið í Stykkis-
hólmi og Grund-
arfirði, bíður
spennt eftir að
sjá niðurstöðu
rannsóknanna,“
segir Sigurður
Ágústsson hjá
sjávarútvegsfyrirtækinu Agustson
ehf. »28-29
Spenna í skelfiskinum
Rannsóknir og tilraunaveiðar á
hörpuskel að hefjast á Breiðafirði
Hörpuskel þykir
herramannsmatur.