Morgunblaðið - 21.03.2014, Page 4
Morgunblaðið/Eggert
Verkfall framhaldsskólakennara hefur nú staðið
yfir alla vikuna og hafa nemendur þurft að hafa
ofan fyrir sér á einhvern hátt þegar þeir þurfa
ekki að mæta í skólann. Þessar framhalds-
skólastúlkur nýttu stund milli stríða til að bregða
sér í söluturninn Drekann á horni Njálsgötu og
Frakkastígs. Hvort það var fagurgrænn drekinn
eða bleikklædda yngismærin með kælda kóla-
drykkinn sem freistaði þeirra, skal ósagt látið.
Sækja sér hressingu í faðm drekans í verkfallinu
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Viltu selja bílinn
Kaupum allar gerðir af lítið keyrðum bílum árgerð
2007 og yngri. Til dæmis Land Rover Discovery,
Toyota Land Crusier, Audi Q7, Mercedes Benz o.fl.
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur fengið
staðgreiðsluafslátt af nýja bílnum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnum www.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð.
Tvítugur karlmaður var dæmdur í
þriggja ára fangelsi fyrir kynferðis-
brot gegn börnum í Hæstarétti í
gær. Hann var sakfelldur fyrir að
hafa annars vegar haft samfarir við
13 ára stúlku þegar hann var sjálfur
16 ára og hins vegar að nauðga 13
ára stúlku þegar hann var sjálfur 18
ára. Honum var gert að greiða stúlk-
unum 800 þúsund og 1,5 milljónir
króna í miskabætur.
Hæstiréttur staðfesti dóm Hér-
aðsdóms Suðurlands yfir manninum.
Við ákvörðun refsingar hans vegna
fyrrnefnda brotsins var litið til þess
að hann hafði játað brot sitt skýlaust
sem og ungs aldurs mannsins þegar
hann framdi það og lítils aldursmun-
ar á honum og stúlkunni. Það var
virt honum til refsilækkunar.
Við ákvörðun refsingar fyrir
nauðgunina taldi Héraðsdómur að
brot mannsins hefði verið gróft og
beindist að barni við aðstæður sem
voru mjög ógnvekjandi fyrir 13 ára
gamalt barn. Maðurinn neyddi stúlk-
una til að hafa við sig munnmök en
með því braut hann gróflega gegn
friðhelgi og kynfrelsi stúlkunnar að
mati Héraðsdóms Suðurlands. Af
gögnum málsins og framburði sál-
fræðings lægi fyrir að brot mannsins
hafi haft verulegar og alvarlegar af-
leiðingar fyrir andlega líðan stúlk-
unnar sem hafi í kjölfarið þurft á
sjúkrahúsvist að halda.
Braut gegn 13 ára stúlkum
Hæstiréttur dæmir tvítugan karlmann í þriggja ára fang-
elsi vegna kynferðisbrota Braut gróflega gegn barni
Hæstiréttur Maðurinn hlaut
þriggja ára dóm fyrir brotin.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Kjarni málsins er sá að þótt
þetta séu EES-reglur sjáum við
ekki að þær muni ná þeim tilgangi
sem þeim er ætlað,“ segir Gísli
Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóa-
hafna og formaður Hafna-
sambands Íslands, um frumvarp
sem umhverfisráðherra hefur lagt
fram á þingi og hefur það að
markmiði að skip losi ekki úrgang
í hafið og að draga þar með úr
mengun hafsins.
Frumvarpið er lagt fram vegna
þess að Eftirlitsstofnun EFTA tel-
ur að stjórnvöld hafi ekki innleitt
reglurnar með fullnægjandi hætti.
Málið bíður fyrstu umræðu í
þinginu. Með því eru gerðar þær
kröfur að komið verði upp aðstöðu
til móttöku úrgangs frá skipum í
öllum höfnum landsins. Einnig eru
lagðar þær skyldur á skipstjóra
skipa sem til hafnar koma að skila
öllum úrgangi í þessa aðstöðu.
Innheimta á gjald vegna mót-
töku og förgunar úrgangs frá skip-
um. Það á að leggja á öll skip sem
koma til hafnar, að undanskildum
fiskiskipum, minni skemmtibátum,
herskipum og ríkisreknum skipum.
Gjaldið er óháð þeirri þjónustu
sem þau þurfa á að halda. Gjaldið
verður því fyrst og fremst lagt á
farskip, skemmtiferðaskip og
skemmtiferðabáta sem taka tólf
farþega eða meira.
Á heima hjá
stofnunum ríkisins
Faxaflóahafnir og Hafna-
samband gerðu athugasemdir við
efni frumvarpsins á meðan það var
í undirbúningi. Gísli segir að um-
hverfismál í höfnum hafi tekið já-
kvæðum breytingum á síðustu ár-
um. Hafnirnar hafi sinnt þeirri
lagaskyldu að koma í veg fyrir að
sorp og skólp endi í höfnum en
samhliða því hafi orðið vakning
meðal útgerða í uppsetningu um-
hverfisstjórnunarkerfa sem stuðl-
að hafi að flokkun sorps og förgun
þess á viðurkenndan hátt. Nefnir
hann að þessi mál séu í góðu lagi
hjá öllum skemmtiferðaskipum
sem leggist að bryggju hér á sumr-
in. „Ný löggjöf sýnist eingöngu
flækja annars gott kerfi, valda
óþarfa kostnaði og tilgangslítilli
pappírvinnu,“ segir Gísli og telur
að það verkefni að fylgjast með að
skip losi ekki úrgang í hafið ætti
frekar heima hjá stofnunum ríkis-
ins eins og Vaktstöð siglinga og
Umhverfisstofnun.
Gísli vonast til þess að hafnirnar
þurfi ekki að koma sér upp sér-
stökum móttökustöðvum fyrir úr-
gang enda sé víða ekki aðstaða til
þess í höfnum. Í skýringum með
frumvarpinu kemur fram að
rekstraraðilar hafna geti tryggt að
þjónusta sé til staðar fyrir móttöku
á sorpi, í stað þess að koma sjálfir
upp aðstöðu. Gísli telur að það vísi
til þess fyrirkomulags sem víða er,
að fyrirtæki sem til þess hafi leyfi
annist þessa þjónustu.
Flækir gott kerfi og veldur kostnaði
EES-reglur innleiddar til að draga úr losun úrgangs í hafið Formaður Hafnasambands Íslands
efast um að reglurnar nái tilgangi sínum Innheimta á gjald vegna móttöku úrgangs frá skipum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sorp og skólp Meðal annars verður tekið tillit til stærðar skipa og fjölda
farþega og áhafnar við álagningu úrgangsgjalds. Því er ljóst að útgerðir
stærstu skemmtiferðaskipa munu þurfa að greiða töluvert.
Ef Íslendingar gengju eins langt í að
leggja raforkudreifikerfi sitt í jarð-
strengi líkt og Danir hafa gert gæti
það leitt til 74% hækkunar á gjald-
skrá til almennings og 94% til stór-
notenda. Þetta
kom fram í ræðu
Geirs Gunnlaugs-
sonar, stjórnar-
formanns Lands-
nets, á kynning-
arfundi fyrir
aðalfund fyrir-
tækisins sem
haldinn var í gær.
Landsnet
greindi kostn-
aðarauka og gjaldskrárhækkanir í
lok tíu ára tímabils ef stærri hluti
dreifikerfisins yrði lagður í jarð-
strengi. Fyrir utan dönsku leiðina
var leið Hollendinga skoðuð en þar
er sú stefna að halda fjölda línukíló-
metra óbreyttum. Það gæti þýtt 11%
gjaldskrárhækkun fyrir íslenskan
almenning og 15% hækkun til stór-
notenda.
Mikilvægt að marka stefnu
Væri farin blönduð leið þar sem
annars vegar 10% og hins vegar 20%
lína yrðu lögð með jarðstrengjum
myndi gjaldskrá til almennings
hækka um 8-11% og um 12-16% hjá
stórnotendum. Geir sagði að mikil-
vægt væri að stjórnvöld mörkuðu
stefnu um hvernig staðið yrði að
styrkingu meginflutningskerfisins
hvað varðar vægi jarðstrengja og
loftlína.
Hærra
verð til al-
mennings
Háspennumöstur
þykja náttúrulýti.