Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 38
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þegar réttir sjötíu dagar eru til
sveitarstjórnarkosninga ríkir enn
mikil óvissa um horfur meirihlutans
í borgarstjórn Reykjavíkur. Skoð-
anakannanir hafa verið misvísandi í
því efni, nokkrar hafa spáð honum
falli, aðrar benda til þess að hann sé
traustur í sessi. Allar kannanir á
stuðningi við borgarstjóraefni flokk-
anna sýna á hinn bóginn yfirburða-
fylgi við Dag B. Eggertsson, oddvita
Samfylkingarinnar. Óljóst er hvaða
möguleika nýtt framboð Dögunar á í
Reykjavík. Helst er það talið geta
tekið fylgi frá Vinstri grænum. At-
hygli hefur vakið hve snör handtök
sjálfstæðismenn í Garðabæ höfðu
þegar framboðsmál þeirra virtust
stefna í algjört óefni á dögunum.
Sveiflur á fylgi flokkanna
Talsverðar sveiflur hafa verið á
fylgi stóru flokkanna í Reykjavík í
skoðanakönnunum í vetur. Eftir
áramót hefur Björt framtíð, arftaki
Besta flokksins, mælst með fylgi á
bilinu 21 til 29,3%. Fylgi Samfylk-
ingarinnar hefur á sama tíma verið á
bilinu 18,2 til 23,5%. Fylgi Sjálfstæð-
isflokksins hefur verið frá 28,5 til
23,1% í nýjustu könnuninni sem
Fréttablaðið og Stöð 2 gerði í síð-
ustu viku.
Ekki er útilokað að mismunandi
aðferðafræði og vinnubrögð við gerð
kannana skýri sveiflurnar að hluta
til. Frekar er þó ástæða til að ætla
að sveiflurnar sýni að margir kjós-
endur séu enn reikulir og hafi ekki
gert upp hug sinn endanlega. Þeir
bíða eftir að heyra meira um stefnu-
mál og vilja kynnast frambjóðendum
betur. Sú staða skapar stjórn-
málaflokkunum sóknarfæri sem
gætu breytt landslaginu verulega.
Sterk staða Dags
Þegar spurt hefur verið um álit-
legasta borgarstjóraefni flokkanna í
Reykjavík hefur Dagur B. Eggerts-
son, oddviti Samfylkingarinnar,
komið afar sterkur út. Um helm-
ingur kjósenda vill hann sem næsta
borgarstjóra. Mest munar um að
væntanlegum kjósendum Bjartrar
framtíðar virðist hugnast betur að
hafa Dag á stóli borgarstjóra en
oddvita flokksins, S. Björn Blöndal,
núverandi aðstoðarmann Jóns
Gnarrs borgarstjóra.
Athygli vekur að Jón Gnarr hefur
ekkert aðhafst til að styðja sinn
mann og kann það að vera vísbend-
ing um að þegjandi samkomulag sé á
milli núverandi meirihlutaflokka um
að Dagur taki næst við stýrinu,
skapist staða til þess eftir kosn-
ingar.
Dagur hefur verið mjög áberandi
að undanförnu. Það styrkir hann í
sessi að sem formaður borgarráðs
hefur hann ótal tækifæri til að vera í
sviðsljósi fjölmiðla, viðra nýjar hug-
myndir, stilla sér upp fyrir framan
skóflur og vinnuvélar, klippa á borða
og slá sér upp á annan hátt.. Virðist
hann notfæra sér það óspart eins
menn í sömu stöðu í stjórnmálum
hafa jafnan gert. Jón Gnarr borg-
arstjóri er að mestu búinn að draga
sig í hlé og ætlar sér greinilega ekki
að skyggja á Dag á nokkurn hátt
fram að kosningum.
Framboð Dögunar
Mörgum kom á óvart þegar til-
kynnt var um framboð Dögunar í
Reykjavík með fyrrverandi borg-
arfulltrúa Vinstri grænna, Þorleif
Gunnlaugsson, í oddvitasætinu.
Væringar hafa verið innan VG að
undanförnu og þessi staða kann að
tefla endurkjöri Sóleyjar Tóm-
asdóttur í tvísýnu. Í því sambandi
kann að skipta máli að Ögmundur
Jónasson, þingmaður flokksins, hef-
ur lýst ánægju með framboð Þorleifs
og virðist frekar ætla að kjósa Dög-
un í Reykjavík en eigin flokk. Enn
renna menn þó blint í sjóinn varð-
andi fylgi Dögunar í höfuðborginni.
Uppnám vegna ESB-máls
Tillaga ríkisstjórnarflokkanna á
Alþingi um að hætta aðildarviðræð-
unum við Evrópusambandið hefur
valdið miklu pólitísku uppnámi.
Réttir 70
dagar til
kosninga
Misvísandi kannanir í Reykjavík
Dagur meira en aðrir í sviðsljósinu
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Opið alla virka daga
08:00-17:00
Sendum um allt land
-VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
HLJÓÐ-
VARNARGLER
Er hávaðinn
að trufla?
Hafið samband
við sölumenn okkar
ÍSPAN,
SMIÐJUVEGUR 7,
S. 54-54-300
Ispan.is
The picture is used with permission from Saint-Gobain.
STJÓRNMÁLABARÁTTAN
STAÐA OG HORFUR
Ekki liggur enn fyrir hvenær sjálf-
stæðismenn í Reykjavík kynna
stefnuskrá sína fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í vor. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er hún í
meginatriðum tilbúin en vegna um-
rótsins í landsmálunum mun beðið
eftir heppilegum tíma til að koma
henni á framfæri. Á meðan tifar
klukkan, rétt um sjötíu dagar eru
til kosninga, skoðanakannanir hafa
ekki verið flokknum hagstæðar og
við blasir að brýn nauðsyn er á að
„eitthvað fari að gerast“ sem breyti
stöðunni, eins og einn flokksmanna
orðaði það í samtali við blaðið.
Undanfarna daga hafa frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík verið á svokölluðu
„rölti“ um hverfi borgarinnar. Þeir
göngutúrar orka nokkuð stefnu-
lausir á marga. Það þarf þó ekki að
vera. Að sögn Halldórs Halldórs-
sonar, oddvita flokksins, er hug-
myndin að frambjóðendur sjái hvað
þurfi að laga, hvað sé vel gert og
ræða um stöðuna í hverju hverfi.
Tekin verður saman staðan á hverj-
um stað og verður það efni haft til
hliðsjónar þegar stefna flokksins í
viðkomandi borgarhluta verður
gefin út. Íbúum gefst kostur á að
slást í hópinn og hafa nokkrir not-
fært sér það. Ekki eru haldnir
fundir í hverfunum í tengslum við
röltið.
Meiri baráttukraft?
Nýjasta könnunin um fylgi fram-
boðslista í Reykjavík var gerð af
Fréttablaðinu og Stöð 2 í síðustu
viku. Samkvæmt henni fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 23,1% atkvæða og
fjóra borgarfulltrúa. Það yrði mikill
skellur fyrir flokkinn ef þetta yrði
niðurstaðan. Í kosningunum 2010
fékk flokkurinn 33,6% fylgi og
fimm borgarfulltrúa. Í könnun Fé-
lagsvísindastofnunar fyrir Morg-
unblaðið sem birt var 26. febrúar
mældist fylgi flokksins 28,4% sem
gefur fimm borgarfulltrúa.
Meðal sumra frambjóðendanna
heyrist sú skoðun að útspil ríkis-
stjórnarinnar í ESB-málinu, til-
lagan um að slíta viðræðunum hafi
nú slæm áhrif á fylgi Sjálfstæðis-
flokksins og skýri tapið. Ekki er
hægt að útiloka það en á móti er
rétt að benda á að sveiflur hafa ver-
ið á fylgi Sjálfstæðisflokksins í
skoðanakönnunum í vetur. Þannig
Frambjóðendur á
rölti um Reykjavík
Eru sjálfstæðismenn í höfuðborginni
búnir að missa af strætisvagninum?