Morgunblaðið - 21.03.2014, Síða 39
Kannanir sýna að almenningur vill
halda viðræðunum áfram þrátt fyrir
„ómöguleika“ málsins. Ýmsir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins í sveit-
arstjórnum hafa látið í ljós áhyggjur
af því að óvinsældir tillögunnar geti
haft áhrif á fylgi þeirra í kosning-
unum í vor. Stuðningsflokkar við-
ræðna við ESB hafa að sama skapi
óspart notfært sér þetta og fengið í
nokkrum sveitarstjórnum sam-
þykktar áskoranir á ríkisstjórnina
um að halda viðræðunum áfram.
Enn á eftir að koma í ljós hvort
ESB-málið hefur yfirleitt einhver
áhrif á val kjósenda. Sama er að
segja um verkfall framhaldsskóla-
kennara og hugsanleg verkföll
grunnskólakennara og háskólakenn-
ara. Misjafnt er hve sterkt lands-
málin spila inn í sveitarstjórn-
arkosningar. Það getur þó gerst og
hefur gerst eins og dæmi frá 1978
sýnir. Þá féll meirihluti Sjálfstæð-
isflokksins í borgarstjórn Reykja-
víkur og röktu flestir það til óvin-
sælda þáverandi ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins.
Hröð handtök í Garðabæ
Sjálfstæðismenn í Garðabæ kom-
ust óvænt í sviðsljósið eftir að fram-
boðslisti þeirra var samþykktur á
hitafundi í fulltrúaráði flokksins. Svo
hörð voru viðbrögðin að það virtist
stefna í sérframboð hinna óánægðu
sem höfðu uppi stór orð í fjöl-
miðlum.. Hefði þá meirihluti flokks-
ins í bæjarfélaginu getað orðið valt-
ur í sessi. En forystumenn flokksins
höfðu hröð handtök enda mikið í
húfi. Áður en upp úr sauð náðu þeir
samkomulagi um róttækar breyt-
ingar á listanum sem friðuðu hina
óánægðu. Stærsti þátturinn í því var
ákvörðun Gunnars Einarssonar
bæjarstjóra að flytja sig úr odd-
vitasæti framboðslistans í áttunda
sætið. Óneitanlega myndarleg
ákvörðun. Gengur því flokkurinn
óskiptur til kosninganna.
Prófkjör í Árborg á morgun
Víða eiga flokkar og listar eftir að
ganga endanlega frá framboðum.
En öllum prófkjörum er lokið nema
hjá sjálfstæðismönnum í Árborg.
Það fer fram á morgun, laugardag.
Eyþór Arnalds er sem kunnugt er
ekki í framboði og virðist sem Ásta
Stefánsdóttir, núverandi fram-
kvæmdastjóri sveitarfélagsins, verði
sjálfkjörin í fyrsta sætið í stað hans.
Um annað sætið keppa aftur á móti
þrír, Ari Björn Thorarensen, Gunn-
ar Egilsson og Sandra Dís Hafþórs-
dóttir.
Tíðindi úr Hólminum
Það sætir óneitanlega tíðindum
þegar Sjálfstæðisflokkurinn
ákveður að bjóða ekki fram í nokkuð
stóru sveitarfélagi, Stykkishólmi.
Yfirleitt hefur það verið regla að
flokkurinn bjóði fram alls staðar
sem kostur er á og sé ekki í „sam-
krulli“ með öðrum eins og algengt
hefur verið hjá öðrum stjórn-
málaflokkum. Sjálfstæðismenn
höfðu meirihluta í sveitarstjórn og
síðar bæjarstjórn í Hólminum í nær
fjóra áratugi, en misstu hann í kosn-
ingunum 2010. Ósigurinn virðist
hafa haft mikil áhrif á þá, því flokk-
urinn býður ekki fram í vor heldur
styður nýtt framboð Lista framfara-
sinnaðra Hólmara, þar sem eru bæði
flokksmenn og óháðir borgarar.
Fyrir framboðinu fer Sturla Böðv-
arsson, fyrrverandi alþingismaður
og ráðherra og forystumaður sjálf-
stæðismanna í bænum. Hann var
sveitarstjóri og bæjarstjóri í Hólm-
inum í nær tvo áratugi, frá 1974 til
1991.Verður forvitnilegt að fylgjast
með árangri þessa framboðs og
hvort það muni síðar hafa einhver
áhrif á framboðsstefnu sjálfstæð-
ismanna annars staðar.
Eitt framboð í Vesturbyggð?
Fréttir frá öðru sveitarfélagi á
vesturhluta landsins, Vesturbyggð,
vekja ekki síður athygli en það sem
er að gerast í Stykkishólmi. Frá því
var greint fyrr í vikunni að Bæj-
armálafélagið Samstaða sem á tvo af
fimm fulltrúum í bæjarstjórn Vest-
urbyggðar hygðist ekki bjóða fram í
vor. Samstaða hefur boðið fram allar
götur frá árinu 1996 og var með
hreinan meirihluta í bæjarstjórninni
á kjörtímabilinu 2006 til 2010. Gæti
svo farið að Sjálfstæðisflokkurinn,
sem stjórnar bæjarfélaginu núna og
hefur þrjá fulltrúa í bæjarstjórn,
byði einn fram. Aðrir flokkar en
Samstaða og Sjálfstæðisflokkurinn
hafa ekki verið í boði í Vesturbyggð.
Kosningabaráttan ekki hafin
Ekki er hægt að segja að eiginleg
kosningabarátta sé hafin nú þegar
rúmir tveir mánuðir eru til kjördags.
En ljóst er að frambjóðendur eru að
setja sig í stellingar fyrir komandi
átök og áróður. Forsmekkur að því
sem koma skal er harðar deilur í
Hafnarfirði þar sem sjálfstæð-
ismenn undir forystu Rósu Guð-
bjartsdóttur sauma mjög að bæj-
arstjórnarmeirihlutanum vegna
fjármála bæjarins. Sakar Rósa bæj-
arstjórann, Guðrúnu Ágústu Guð-
mundsdóttur úr flokki Vinstri
grænna, um leyndarhyggju vegna
þess að hún neitar að afhenda minni-
hlutanum gögn varðandi tilboð Ís-
landsbanka í endurfjármögnun á 13
milljarða skuldum bæjarins. Ljóst
er að bæjarstjórinn er í þröngri
stöðu í þessu máli.
Morgunblaðið/Ómar
Sviðsljós Sem formaður borgarráðs hefur Dagur B.
Eggertsson ótal tækifæri til að vera áberandi í aðdrag-
anda borgarstjórnarkosninganna. Hér leikur hann fyrsta
leikinn í byrjunarskák Reykjavíkurmótsins í síðustu viku.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Ekki er útlokað að eftir sveitar-
stjórnarkosningarnar í vor verði
feðgin í fyrsta sinn samtímis bæj-
arstjórar. Þetta eru þau Ásthildur
Sturludóttir í Vesturbyggð og
Sturla Böðvarsson í Stykkishólmi.
Ásthildur var ráðin bæjarstjóri í
Vesturbyggð eftir kosningarnar
2010. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
þar hreinan meirihluta og auglýsti
eftir bæjarstjóra. Öllum umsókn-
unum 23 var hafnað og ákveðið að
ráða Ásthildi sem ekki var meðal
umsækjenda. Hún er stjórnmála-
og stjórnsýslufræðingur að mennt.
Haldi flokkurinn meirihluta sínum
er mjög líklegt að hún verði endur-
ráðin.
Á dögunum var tilkynnt að faðir
Ásthildar, Sturla Böðvarsson, sem
var sveitarstjóri og síðar bæjar-
stjóri í Stykkishólmi á árunum
1974 til 1991, en síðar alþingis-
maður og ráðherra, yrði bæjar-
stjóraefni nýs lista, Lista framfara-
sinnaðra Hólmara.
Sjálfstæðisflokkurinn verður ekki í
framboði að þessu sinni. Flokk-
urinn missti meirihlutann í bæjar-
stjórn í síðustu kosningum, en
hafði þar á undan stjórnað bænum
í fjóra áratugi.
Ekki er útilokað að hinn nýi listi
með Sturlu í fararbroddi nái meiri-
hluta. gudmundur@mbl.is
Verða feðgin
bæjarstjórar?
Sturla
Böðvarsson
Ásthildur
Sturludóttir
Skoðanakannanir í vetur hafa verið mis-
vísandi um stöðu borgarstjórnarmeiri-
hlutans í Reykjavík. Ýmist virðist hann fallinn eða traustur í sessi. Ef þetta stafar af reikulli afstöðu kjósenda
skapar það framboðslistunum tækifæri nú þegar aðeins 70 dagar eru til kosninga. Eiginleg kosningabarátta
er ekki hafin. Frambjóðendur eru að undirbúa kynningu á stefnu sinni og forystumenn valdaflokka í sveitar-
stjórnum nota óspart stöðu sína til að komast í sviðsljós fjölmiðla.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
fór það úr 29% í nóvember í 25% í
janúar. Verður ESB-málinu ekki
um það kennt. Margir viðmælenda
blaðsins velta því fyrir sér af
hverju Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjavík setur ekki meiri orku og
baráttukraft í ýmis mál sem borg-
arfulltrúarnir hafa gert að um-
ræðuefni að undanförnu og gætu
orðið flokknum til fylgisaukningar.
Hér má nefna kröfuna um birtingu
upplýsinga um námsárangur ein-
stakra skóla samkvæmt PISA-
könnun, þjónustu borgarinnar sem
fékk slæma útreið í könnun fyrir
stuttu, stöðuna í húsnæðismál-
unum, umferðarmál, skipulagsmál
almennt og ekki síst flugvall-
armálið sem var mál málanna fyrir
örfáum vikum. Spurningar hafa
vaknað um það hvort nú sé ekki
rétti tíminn til að krefjast nýrrar
atkvæðagreiðslu um framtíð flug-
vallarins.
Í þessu sambandi er rétt að hafa
í huga að vika er langur tími í póli-
tík. Það er alls ekki útilokað að
vagninn sem menn héldu að þeir
hefðu misst af birtist skyndilega á
stoppistöðinni. gudmundur@mbl.is
Ljósmynd/Sjálfstæðisflokkurinn
Kosningar Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins birtu þessa mynd á vefsíðu
flokksins undir heitnu „Beðið eftir strætó“. En er vagninn kannski farinn?