Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
Þetta er eins og
að ganga á dýnu
• Þú finnur strax mun
• Gælir við fæturna
• Ótrúlega mjúkir
Þú færð SKECHERS karlmannsskó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind
Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík
Outlet Skór, Reykjavík | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi
Blómsturvellir, Hellisandi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Versl. Skógum,
Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó,
Vestmanneyjum | Skóbúðin, Keflavík
Vísindamenn við Utah-háskóla
kynntu til sögunnar í gær fiðruðu
risaeðlutegundina Anzu wyliel en
með því að styðjast við steingerð
bein úr þremur eðlum þeirrar teg-
undar hefur í fyrsta sinn fengist
heildarmynd af skepnunni.
Anzu var um það bil 3,5 metrar að
lengd, með 1,5 metra langa fætur,
og vó 200-300 kíló. Fótleggir eðl-
unnar líktust einna helst strúts-
fótum og hafði hún kamb á höfði líkt
og hæna. Þá hafði hún beittar klær
og sterka kjálka til að bryðja egg og
aðra bráð. „Það væri ógnvekjandi,
og jafnframt fáránlegt, að mæta
henni,“ sagði einn vísindamannanna
um tegundina, sem hefur fengið við-
urnefnið „kjúklingurinn frá helvíti“.
Beinin fundust fyrir um áratug, í
Hell Creek í Norður- og Suður-
Dakóta, þar sem einnig hafa fundist
steingerðar leifar grameðla og nas-
hyrningseðla. Þau eru talin 66-68
milljón ára gömul og benda til þess
að eðlunni hafi svipað til tengdra
tegunda sem hafa fundist í Mongólíu
og Kína.
BANDARÍKIN
Teikning/Mark Klingler
Kynna til sögunnar „kjúklinginn frá helvíti“
Bíræfnir þjófar í Salford á Englandi komust á brott með tugþúsundir punda
eftir að hafa grafið sér leið inn í Tesco Express-verslun og rænt þar hrað-
banka. Lögregluyfirvöld á svæðinu hafa auglýst eftir vitnum, sem gætu hafa
séð grunsamlega aðila á ferð, mögulega útbíaða í mold og drullu.
Lögregla telur líklegt að þjófarnir hafi varið mánuðum í að grafa 15 metra
löng göngin. „Þetta fólk hafði augljóslega varið löngum tíma í að skipuleggja
þennan glæp og ég efast um að því hafi tekist að halda áætlununum leyndum
allan þann tíma án þess að segja öðrum,“ segir rannsóknarlögreglumaðurinn
Mark Toker. „Brotamennirnir hljóta að hafa varið miklum tíma á svæðinu
síðastliðna mánuði, sem fólk kann að hafa tekið eftir. Þú hefur ef til vill séð
fólk hegða sér með grunsamlegum hætti á föstudag, mögulega þakið óhrein-
indum. Ég bið hvern þann sem hefur einhverjar upplýsingar um ránið að
hringja í okkur eins skjótt og auðið er,“ sagði lögreglumaðurinn.
BRETLAND
Grófu göng til að ræna hraðbanka
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Barack Obama Bandaríkjaforseti til-
kynnti í gær refsiaðgerðir gegn tutt-
ugu rússneskum einstaklingum, sem
koma til viðbótar þeim ellefu sem
þegar hafa sætt aðgerðum af hálfu
stjórnvalda í Washington. Um er að
ræða þingmenn og hátt setta emb-
ættismenn, auk einnar fjármála-
stofnunar; Aktsionerny Bank of the
Russian Federation. Talsmenn
bandaríska fjármálaráðuneytisins
sögðu í gær að á meðal hluthafa í
bankanum, sem einnig gengur undir
nafninu Bank Rossiya, væru menn
úr innsta hring Vladimír Pútín for-
seta.
Obama sagði aðgerðirnar við-
brögð við framgöngu Rússa fram að
þessu en varaði við því að ef þeir létu
ekki segjast yrði gripið til harkalegri
úrræða. Þá upplýsti forsetinn að
hann hefði undirritað tilskipun sem
gerði honum kleift að grípa til að-
gerða gegn afmörkuðum geirum
rússnesks efnahagslífs. „Þetta er
ekki sú útkoma sem við vildum helst
sjá,“ sagði Obama og varaði við því
að aðgerðirnar myndu hafa veruleg
áhrif á efnahag Rússlands.
Evrópuleiðtogar funda
Skömmu eftir að Obama gerði
blaðamönnum grein fyrir ákvörðun
stjórnvalda, tilkynnti rússneska ut-
anríkisráðuneytið að Rússar hygð-
ust grípa til eigin refsiaðgerða gegn
bandarískum ráðamönnum. „Það á
ekki að vera neinn vafi á því að
hverri óvinveittri árás verður mætt
með fullnægjandi hætti,“ sagði ráðu-
neytið. Aðgerðir Rússa beinast gegn
níu þingmönnum og aðstoðarmönn-
um Obama, þ. á m. John McCain,
John Boehner, Harry Reid, Mary
Landrieu og Daniel Coats.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagði fyrir fund leiðtoga Evr-
ópusambandsríkjanna í gær að þeir
væru tilbúnir til þess að grípa til
frekari aðgerða ef ástandið í Úkra-
ínu versnaði. Þá sagði talsmaður
David Cameron, forsætisráðherra
Breta, að rætt yrði hvort Rússar
yrðu gerðir brottrækir úr G8-hópn-
um.
„Það er ekki hægt að draga landa-
mæri upp á nýtt og leyfa landsvæði
að fara frá einu ríki til annars án við-
bragða,“ sagði Francois Hollande
Frakklandsforseti.
Innrás yfirvofandi?
Þrátt fyrir hótanir Vesturveld-
anna hafa Rússar ekki sýnt nein
merki þess að þeir hyggist gefa eftir
og sagði Sergei Lavrov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, við John Kerry,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í
gær að ákvörðun Rússa varðandi
Krím yrði ekki tekin til endurskoð-
unar.
Júrí Klímenkó, sendiherra Úkra-
ínu við Sameinuðu þjóðirnar, sagði í
gær að vísbendingar væru uppi um
að Rússar horfðu nú til frekari íhlut-
unar í suður- og austurhluta Úkra-
ínu. Hann sagði að efling rússneska
heraflans í Kherson, norður af Krím,
benti til yfirvofandi árásar og vísaði
til fregna af því að Rússar ynnu að
því að leggja jarðsprengjur á svæð-
inu.
Frekari aðgerðir gegn
einstaklingum og banka
Rússar svara í sömu mynt og setja þingmenn á svartan lista
AFP
Möguleiki á friðsamlegri lausn? Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, áttu fund í Kreml í gær.
Komið í veg fyrir átök
» Forseti Úkraínu, Oleksandr
Túrtsjínov, staðfesti í gær að
uppreisnarhermenn í Krím
hefðu látið Sergí Gajdúk, yfir-
mann úkraínska flotans, lausan.
» Úkraínskir þingmenn hétu í
gær að gefast aldrei upp í bar-
áttunni um frelsun Krím.
» Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagði í Moskvu í gær að
hann hefði þungar áhyggjur af
stöðu mála í Úkraínu.