Morgunblaðið - 21.03.2014, Blaðsíða 47
FRÉTTIR 47Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MARS 2014
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Nú hillir undir að saksóknari ljúki
málflutningi sínum í morðmálinu
gegn fatlaða íþróttamanninum Osc-
ari Pistorius og hefur ýmislegt kom-
ið fram, sem ekki passar við frásögn
hans af kvöldinu, sem hann skaut
Reevu Steenkamp, unnustu sína, til
bana á heimili sínu í Pretoríu á Val-
entínusardag, 14. febrúar, í fyrra.
Á fimmtudag kom fram í vitnis-
burði skotvopnasérfræðings, Chris
Mangena, að Pistorius hefði fyrst
skotið Steenkamp í mjöðmina áður
en hann hæfði hana skotinu, sem
varð henni að bana, í höfuðið. Pistor-
ius skaut hana í gegnum lokaðar dyr
eftir að hún hafði farið á klósettið.
Hann kveðst hafa haldið að inn-
brotsþjófur væri á ferð.
Fullyrðingar stangast á
Orð sérfræðingsins styðja fyrri
vitnisburð um að Steenkamp hefði
haft tíma til að hrópa á hjálp áður en
hún lést. Það stangast á við fullyrð-
ingar verjenda Pistoriusar um að
hún hefði ekki getað hrópað.
Skotvopnasérfræðingurinn sagði
að Steenkamp hefði fyrst fengið skot
í mjöðmina þar sem hún stóð bakvið
klósetthurðina. Hún hefði þá hnigið
niður og fengið byssukúlur í oln-
boga, hönd og höfuð. Óvíst væri í
hvaða röð.
Pistorius segist hafa skotið hana
vegna þess að hann hélt að hún væri
innbrotsþjófur, en ákæruvaldið
heldur því fram að þau hafi rifist og
hann hafi myrt hana að yfirlögðu
ráði. Saksóknarinn á eftir að leiða
fram fjögur til fimm vitni og fékk
réttarhöldunum frestað til mánu-
dags vegna þess að hann þyrfti tíma
til að yfirheyra þau að nýju áður en
málflutningi hans lyki. Þá kemur
röðin að verjendum Pistoriusar og
má búast við að réttarhöldin, sem
hafa beint sjónum umheimsins að
Suður-Afríku, standi fram í apríl.
Þrjú vitni hafa borið að þau hafi
heyrt kvenmannshróp kvöldið, sem
Steenkamp lést. „Ég heyrði konu
hrópa hræðilega og kalla á hjálp,“
sagði nágranninn Michelle Burger í
upphafi réttarhaldanna.
Vörnin hélt því fram að nágrann-
arnir hefðu sennilega heyrt í Pistor-
iusi því að hann hrópaði eins og
kona. Fyrrverandi unnusta Pistor-
iusar, sem varð vitni að því að hann
skaut á umferðarljós, sagðist hins
vegar hafa heyrt hann hrópa og
hann hljómaði alls ekki eins og kona.
Önnur vitni báru að Pistorius
hefði verið í uppnámi. Vaktmaður
sem nágranni gerði viðvart, sagði frá
símtali við hann. Hann hefði sagt að
allt væri í lagi, en grátið í símann.
Vitnisburður Johans Stipps lækn-
is var þó ákærða í hag. Á vettvangi
hefði Pistorius sagt: „Ég skaut hana,
ég hélt hún væri innbrotsþjófur og
ég skaut hana.“ Hann hefði beðið og
sagt grátandi að hann myndi gefa líf
sitt ef Steenkamp lifði af.
Barry Roux, verjandi Pistoriusar,
hefur verið mjög ágengur og notað
hvert tækifæri til veitast að vitnum
ákæruvaldsins. Hann reynir að
draga fram ósamræmi hjá vitnum,
notar óljósan vitnisburð til að varpa
fram spurningum um hvort vitni séu
viss í sinni sök, reynir að sýna fram á
að sérfræðingar í vitnastólunum séu
ekki sérlega sérfróðir, draga fram
að vitnisburður sé vilhallur ákæru-
valdinu og koma vitnum úr jafnvægi.
Grét undan verjandanum
Hann gekk svo hart að áður-
nefndri Michelle Burger að hún
brast í grát eftir fjögurra klukku-
stunda yfirheyrslu og hann þurfti að
biðja vitnið afsökunar.
Roux saumaði einnig að manni
hennar, Charl Johnson, og gaf til
kynna að hann hefði hagrætt fram-
burði sínum við lögreglu til að
íþyngja ákærða og laga hann að
vitnisburði konu sinnar.
Einnig segir Roux að rannsókn
lögreglunnar hafi verið fúsk. Í þeim
efnum hefur ýmislegt komið í ljós.
Yfirlögregluþjóninn Gilliam van
Rensburg, sem var einn af fyrstu
lögreglumönnunum á vettvang og
nú er sestur í helgan stein, bar því
vitni að lögreglumaður hefði haldið á
morðvopninu án þess að vera með
hanska. Þá hefði rándýru úri sprett-
hlauparans verið stolið af vettvangi
þótt hann hefði verið búinn að brýna
við lögreglumenn að taka ekkert.
Pistorius er einnig sakaður um
gáleysislega meðferð skotvopna. Við
réttarhöldin hefur komið fram að
hann hafi hleypt af byssu á veit-
ingastað og skotið á umferðarljós.
Pistorius hefur komið jakkafata-
klæddur til réttarhaldanna, alvöru-
gefinn og niðurlútur. Þegar sjúk-
dómafræðingur lýsti áverkunum á
líki Steenkamp brotnaði hann saman
og heyrðust ekkasog. Honum var
einnig um megn þegar myndir voru
sýndar frá vettvangi.
Ósamræmi og
lögreglufúsk
Hart tekist á í morðmáli Pistoriusar
AFP
Í vörn Oscar Pistorius ræðir við verjanda sinn, Barry Roux, í réttarsalnum á
miðvikudag. Pistoriusi er gefið að sök að hafa myrt unnustu sína.
Heldur hefur þrengt að Oscari Pistoriusi eftir að hann skaut unnustu
sína til bana. Stjarnan frá Ólympíumóti fatlaðra hefur misst auglýsinga-
samninga og í gær sagði lögmaður hans að hann ætlaði að selja húsið
sitt í Pretoríu í Suður-Afríku, þar sem hann skaut Reevu Steenkamp, til
þess að borga lögfræðikostnaðinn vegna réttarhaldanna.
Kostnaður Pistoriusar af réttarhöldunum er mikill, allt að einni millj-
ón króna á dag, og nú er ljóst að þau munu dragast á langinn. Þrír lög-
fræðingar eru ávallt í réttarsalnum og sérfræðingar um skotvopn,
glæpavettvang og krufningar hafa verið kallaðir til auk bandarísks fyrir-
tækis til að gera líkan af vettvangi glæpsins.
Selur húsið upp í kostnað
RÉTTARHÖLDIN REYNAST PISTORIUSI DÝR