Morgunblaðið - 21.03.2014, Side 92
Bóka- og plötuútgáfan Dimma
hefur samið við rithöfundinn Gyrði
Elíasson um útgáfu bóka hans og
mun forlagið einnig hafa forgöngu
um samninga um útgáfu á verkum
hans á erlendri grundu. Dimma
hefur áður gefið út hljóðbækur
með verkum Gyrðis og eru ný verk
eftir hann væntanleg í haust.
Dimma hefur til þessa lagt mesta
rækt við útgáfu þýddra ljóða og
hljóðbóka, auk
hljómplötuútgáfu á
sviði vísna- og
djasstónlistar en
mun nú efla
bókaútgáf-
una til
muna.
Gyrðir Elíasson
semur við Dimmu
FÖSTUDAGUR 21. MARS 80. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Afskekktasti staður veraldar
2. Magnús Scheving skilinn
3. Brak úr flugvélinni jafnvel fundið
4. 16 ára hljóp hálfmaraþon og lést
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómplata með 75 lögum úr
smiðju SG-hljómplatna, hljómplötu-
útgáfunnar sem Svavar Gestsson
stofnaði árið 1964 og rak í 20 ár,
trónir í efsta sæti listans yfir mest
seldu plötur landsins. Tilefni útgáf-
unnar er að hálf öld er liðin frá því að
fyrsta plata SG-hljómplatna var gefin
út. Platan hefur að geyma þorra
þekktustu laganna sem voru á plöt-
um útgáfunnar, í flutningi söngvara
og hljómsveita á borð við Fjórtán
fóstbræður, Þorvald Halldórsson,
Helenu Eyjólfsdóttur, Savanna tríóið,
Þrjú á palli, Ómar Ragnarsson, Lúdó
sextett, Sextett Ólafs Gauks og
Svanhildi, Einar Júlíusson, Upplyft-
ingu, Hauk Morthens, Elly og Vilhjálm
Vilhjálmsson, Ragnar Bjarnason og
Hljóma. Á þeim 20 árum sem Svavar
rak SG-hljómplötur gaf hann út um
2.500 lög á vínylplötum; 176 stórar
plötur og 79 smáskífur.
Minning Svavars lifir
enn með þjóðinni
Á laugardag Norðan 8-13 m/s, en 13-18 úti við A-ströndina. Él fyrir
norðan og austan, annars léttskýjað. Frostlaust syðst.
Á sunnudag Hæg breytileg átt og bjart framan af degi, en vestan
strekkingur og él nyrst. Frost 1 til 12 stig, mest í innsveitum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 18-23 m/s og víða snjókoma eða él,
en úrkomulítið SV-til. Hiti 0 til 5 stig S-til að deginum.
VEÐUR
Elsa Sæný Valgeirsdóttir
hefur verið ráðin aðstoð-
arþjálfari karlalandsliðs-
ins í blaki. Hún hefur gert
það gott með karlaliði HK
en Kópavogsliðið varð bik-
armeistari undir hennar
stjórn um síðustu helgi og
það annað árið í röð. „Ég
er ótrúlega ánægð og stolt
af því að hafa verið ráðin
aðstoðarlandsliðsþjálfari.
Það er ekki annað hægt,“
segir Elsa Sæný. »1
Elsa aðstoðar
karlalandsliðið
„Þetta verður síðasta há-
skólamótið sem ég
keppi á því reglurnar eru
þannig að maður má
bara keppa í fjögur ár.
Þannig að það eru
blendnar tilfinningar
hjá mér að mæta til
leiks. Ég vil líka gera
betur en í fyrra og
klára þetta eins vel og
ég get, fyrst þetta
verður í síðasta sinn
sem ég keppi á
þessu móti,“ segir
sundkonan Hrafn-
hildur Lúthersdóttir
sem hóf keppni í úr-
slitum bandaríska
háskólamótsins í
sundi í gær. »4
Blendnar tilfinningar
fyrir lokamótið
KR og Grindavík unnu fyrstu leikina í
úrslitakeppninni um Íslandsmeist-
aratitil karla í körfuknattleik sem
hófst í gærkvöldi. KR-ingar unnu
öruggan sigur á Snæfelli, 98:76, í
Vesturbænum og Grindvíkingar
fengu Þór frá Þorlákshöfn í heimsókn
og unnu 92:82 eftir jafna baráttu
lengi vel. Þessi lið eigast við öðru
sinni á sunnudagskvöldið. »2-3
KR og Grindavík byrjuðu
á heimasigrum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Tónlist hefur alltaf verið mér mjög
nærri þó ég hafi ekki byrjað í söng-
námi fyrr en um fertugt. En þá varð
líka ekki aftur snúið,“ segir Ragnhild-
ur Þórhallsdóttir söngkona.
Í dag, föstudag, heldur Ragnhildur
hádegistónleika í Háteigskirkju í
Reykjavík sem bera yfirskriftina
Lögin með Öddu Örnólfs. Segja má
að þetta sé afturhvarf til fortíðar en
frá 1953 og fram undir 1960 var Adda
ein vinsælasta söngkona þjóðarinnar
og söng eftirminnileg lög. Má þar
nefna Nótt í Atlavík, Bjössi á
mjólkurbílnum, Bjarni og nikkan,
Togararnir talast við og fleiri.
Óskalög í útvarpi
Lög með Öddu Örnólfs voru áber-
andi og vinsæl uns rokk og bítlamúsík
tók allt yfir. Þó voru lögin, til dæmis
þau sem hún söng með Ólafi Briem,
alltaf leikin öðru hverju í óskalaga-
þáttum í útvarpi og hafa því aldrei
gleymst, ekki frekar en söngkonan.
Til dæmis heyrðust lög með Öddu oft
í Morgunstund með KK sem lengi var
á dagskrá Rásar 1 um langt skeið og
má þar nefna lagið Bella símamær.
Dagskrá tónleikanna sem verða í
dag og hefjast kl. 12 var frumflutt í
ágúst á síðasta ári, en þá voru sextíu
ár liðin frá upphafi söngferils Öddu.
Nokkru meira er lagt í tónleikana nú
og með Ragnhildi kemur fram hljóm-
sveit skipuð þeim Sigurjóni Bergþóri
Daðasyni klarinettuleikara, Lilju
Eggertsdóttur píanóleikara, Þórði
Högnasyni sem spilar á kontrabassa
og Guðbjörgu Sigurjónsdóttur sem
þenur hamonikuna.
Á ferli Öddu voru hljóðrituð nærri
20 lög með henni sem komu út á
hljómplötum. „Sjálfsagt eru flestar
gömlu hljómplöturnar sem við áttum
heima brotnar, en sem betur fer hef-
ur þetta verið endurútgefið á safn-
plötum. Það breytir samt ekki því að
ég kann lögin, drakk þau í mig með
móðurmjólkinni,“ segir Ragnhildur
og bætir við að úr því svo hafi atvikast
að lög móður hennar séu endurflutt
sé sér heiður að fá það hlutverk.
Söngurinn er hálft lífið
„Ég hef fengið mörg skemmtileg
verkefni í tónlistinni og margt áhuga-
vert er í bígerð. Satt að segja finnst
mér ég syngja undir heillastjörn-
unni,“ segir Ragnhildur sem vinnur
hjá Ríkisskattstjóra. Söngurinn er þó
hennar hálfa líf og á síðasta ári lauk
hún einsöngvaraprófi úr Söngskóla
Sigurðar Demetz. Hún syngur m.a.
með Kór Neskirkju og þá áforma hún
og Ólöf Guðrún Sigurðardóttir að
halda tónleika í ágúst nk. í Flatey á
Breiðafirði með þekktum einsöngs-
perlum.
Syngur undir heillastjörnunni
Ragnhildur flyt-
ur lög móður sinn-
ar, Öddu Örnólfs
Mæðgur Söngkonurnar Ragnhildur Þórhallsdóttir og Adda Örnólfs. Dóttirin fetar í fótspor móðurinnar.
Adda Örnólfsdóttir fæddist vestur
á Suðureyri árið 1935. Hún kom í
bæinn tæplega tvítug og skaust
upp á stjörnuhimininn í söngvara-
keppni á vegum KK sextettsins ár-
ið 1953. Á árunum sem í hönd fóru
kom hún víða fram en lengst var
hún söngkona Aage Lorange og
hljóðfæraleikara hans sem voru
með einskonar húshljómsveit í
Tjarnarkaffi við Vonarstræti í
Reykjavík. Þá söng Adda inn á
hljómplötur og kom fram við mörg
önnur tæki-
færi. Svo
breyttist tón-
listin, dægur-
músík vék fyrir
rokki og róli
og árið 1959
kaus dægur-
lagasöng-
konan að
draga sig í hlé
og helga sig húsmóðurstörfum og
barnauppeldi.
SÖNGKONAN FRÁ SUÐUREYRI
Adda Örnólfs
Dægurlagastjarna dró sig í hlé
VEÐUR » 8 www.mbl.is