Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.10.2014, Page 51
Geðhjálp fagnaði 35 ára afmæli sínu með geðmaraþoni í Kringlunni á fimmtudag. Gestir stigu á svið
og deildu ýmist reynslusögum og öðru tengdu geðheilbrigði.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sýndi stuðning og gekk hress og kátur með fólkinu
niður Frakkastíginn að Bíó Paradís á Hverfisgötu þar sem áframhaldandi dagskrá tók við.
Morgunblaðið/Þórður
Ýmsir skemmtilegir viðburðir eru í kringum geðheilbrigðisdaginn, eins og t.d. öskurjóga.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, ávarpaði gesti við Hallgrímskirkju á föstudag og opnaði þar
með formlega hátíðardagskrá geðheilbrigðisdagsins. Lúðrasveitin Svanur leiddi gönguna.
Sólin skein skært á gesti göngunnar sem gengu glaðir í bragði í tilefni af góðu málefni.
Geðsjúkdómar
eru mjög algengir sjúkdómar sem
herja á milljónir manna um heim allan.
af öllum íbúumVestur-
landa fær einhverskonar
geðröskun um ævina.
Einn til sex af hverjum
1000 einstaklingum
þjást af geðhvarfasýki.
GEÐHVARFASÝKI GETUR
KOMIÐ FRAM Á ÖLLUM ALDRI.
Geðklofi
virðist vera sú geðröskun
sem helst verður fyrir
fordómum í samfélaginu.
Um það bil 1 af hverjum 4
konum getur þróað með sér þung-
lyndi einhverntímann um ævina.
Um það bil 1 af hverjum 10
karlmönnum getur þróað með sér þung-
lyndi einhverntímann um ævina.
¼Geðraskanir eruein algengastaorsök örorku
hér á landi. Um
6.400 manns eru
öryrkjar á grund-
velli geðrænna
erfiðleika.
Talið er að um 1% þjóðar-
innar sé þjakað af geðklofa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Þórður
Morgunblaðið/Þórður
Morgunblaðið/Golli
12.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51