Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2000, Qupperneq 25

Læknablaðið - 15.02.2000, Qupperneq 25
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR Undirrót ofnæmis er enn aðeins þekkt að hluta. Ljóst er að um fjölgenasjúkdóm er að ræða en um- hverfisþættir eru einnig greinilegir áhrifavaldar. í far- aldsfræðilegum rannsóknum er yfirleitt ekki gerður greinarmunur hjá börnum á astma af völdum ofnæm- isvaka eða sýkinga. Athyglisverðar eru nýlegar rannsóknir sem sýna að ofnæmi og astmaeinkenni eru algengari í vestræn- um ríkjum en í Austur-Evrópu, þar sem umhverf- ismengun er þó mun meiri (5-7). Þá hafa einnig verið birtar niðurstöður rannsókna sem benda til þess að yngri systkini í barnmörgum fjölskyldum fái síður ofnæmi (8,9). Ein hugmynd sem varpað hefur verið fram í þessu samhengi er að endurteknar sýkingar á unga aldri dragi úr myndun ofnæmis (8,9). Slíkt gæti örvað þroskun Thl hjálparfrumna og hindrað Th2 hjálparfrumur og þar með hamlað ofnæmismyndun. Við höfum fylgt eftir hópi íslenskra barna sem fædd eru árið 1987 og metið þau reglubundið með til- liti til einkenna um astma og ofnæmi. Einnig hefur verið safnað upplýsingum um fjölskyldu og nánasta umhverfi barnanna, gerð ofnæmispróf og tekin blóð- og munnvatnssýni til mælinga á mismunandi tegund- um ónæmisglóbúlína. Fyrri niðurstöður okkar hafa sýnt að ofnæmi og astmi eru algeng hjá tveggja og fjögurra ára bömum á Islandi (10-12). Sömu börn voru nú metin við átta ára aldur með samanburði á algengi og einkennum ofnæmis og astma meðal þeirra, miðað við fyrri rann- sóknir. Efniviður og aðferðir Þátttakendur: Upphaflegt markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort magn af IgE í naflastrengsblóði hefði forspárgildi fyrir ofnæmi (10,11). Naflastrengs- blóði 792 nýbura var safnað árið 1987. Um tveggja ára aldur voru 179 börn með hátt eða ómælanlegt IgE við fæðingu metin (10,11) og 161 þeirra var end- urmetið við fjögurra ára aldur (12). Ekkert samhengi reyndist milli magns IgE í naflastrengsblóði og ofnæmis við tveggja og fjögurra ára aldur hjá þessum hópi. Þar sem ekkert samhengi reyndist milli magns IgE í naflastrengsblóði og ofnæmis við tveggja og fjögurra ára aldur (10,11) teljum við hópinn endur- spegla íslensk böm almennt. Við rannsóknina nú var reynt að ná til allra þeirra 179 barna sem rannsökuð voru tveggja ára. Fjórtán börn neituðu þátttöku, meðal annars vegna hræðslu við nálarstungur. Níu fjölskyldur höfðu flust af landi brott og ekki hafðist upp á 22 börnum. í rannsóknarhópnum við átta ára aldur voru því 134 börn. Samþykki til þátttöku var fengið hjá foreldrum og forráðamönnum. Rannsóknin var samþykkt af Siða- nefnd Landspítalans. Klínískt mat: Skoðun og mat var framkvæmt af sérfræðingum í barnalækningum og sérfræðingi í of- næmissjúkdómum barna. Þetta var gert án vitneskju Table 1. Allergens used for according to age. skin-prick testing Allergen 18-23 months 4 years 8 years Cows milk X X X Eggwhite X X X Cod X X X Cat hair X X X Dust mite (D.Far,D.Pter) X X X Grass X X X Dog hair X X Beans X X Wheat X X Horse hair X Peanuts X Cladosporium X um fyrri niðurstöður. Tekin var sjúkrasaga samkvæmt stöðluðum spurningalista, börnin skoðuð með sér- stöku tilliti til ofnæmissjúkdóma og gerð húðpróf (prick-test - Soluprick®, ALK) fyrir ofnæmisvökum (tafla I). Þannig var aflað upplýsinga um hvæsandi öndun (wheezing), húðútbrot, rennsli frá eða bólgu í augum eða nefi og meltingartruflanir. Einnig var spurt um lyfjanotkun, ofnæmi í fjölskyldu, reykingar á heimili og gæludýr. Fjölskylduofnæmissaga miðað- ist einungis við kjarnafjölskyldu (first degree rela- tives), gefin voru tvö stig fyrir öruggt ofnæmi í ætt- ingjum og eitt stig fyrir líklegt ofnæmi (13). Greining: Greining ofnæmissjúkdóma var byggð á viðurkenndum skilmerkjum (13-19). Notuð voru sömu skilmerki og í fyrri rannsóknum (10,11) með tilliti til samanburðar. Sömu greiningarskilmerki fyrir astma eru í notkun á Norðurlöndum og verða fljót- lega birt (Nordic Concensus Report on Asthma Management). Exem var skilgreint sem þrálát roða- svæði í húð með kláða og flögnun á hálsi, höndum, fótum, í hnésbótum eða olnbogabótum. Börn með hvæsandi öndun, sem greind hafði verið þrisvar eða oftar af lækni, voru talin hafa astma. Fæðuofnæmi var greint með sögu og jákvæðum húðprófum, en tví- blind áreitipróf voru ekki gerð. Ofnæmiskvef var skilgreint sem glært rennsli og kláði í nefi með eða án slímhimnubólgu í augum án þess að hiti eða önnur einkenni efri loftvegasýkingar væru til staðar. Húð- próf (tafla I) voru framkvæmd samkvæmt viður- kenndum stöðlum. Prófið var talið jákvætt ef svörun var jafnstór eða stærri en histamín viðmiðun (3+) og styðjandi ef svörun var minni, en þó greinileg (2+). Greining ofnæmis var í engu tilvika byggð eingöngu á jákvæðu húðprófi. Lagt var hlutlægt mat á alvarleika ofnæmis með sömu stigagjöf og við höfum notað áð- ur (11). Stigun (severity score) byggist á alvarleika (intensity) og tíðni einkenna ásamt niðurstöðum húðprófa (tafla II). Tölfrœði: Samanburður á einkennum milli ára var gerður með kí-kvaðrati eða nákvæmnisprófi Fishers. Tölfræðilega marktækt p-gildi var sett við <0,05. Læknablaðið 2000/86 103
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.