Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2000, Síða 50

Læknablaðið - 15.02.2000, Síða 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR Sameining sjúkrahúsa og afstaða eða afstöðuleysi lækna Arnór Víkingsson ritari stjórnar Ll Mikið hefur verið deilt um hvort heilbrigðis- þjónustunni sé betur borgið með eitt eða tvö sjúkra- hús í Reykjavík. En nú hefur heilbrigðisráðherra tek- ið af skarið og ákveðið að stefna skuli að sameiningu sjúkrahúsrekstrar Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykja- víkur. Þessi ákvörðun heilbrigðisráðherra kom fáum læknum á óvart. Skipun sameiginlegs forstjóra sjúkra- húsanna fyrir tveimur árum og sameiginlegrar stjórn- arnefndar nú nýverið boðaði aðeins eitt. Því mætti ætla að forstöðulæknar sjúkrahúsanna og læknasamtökin hafi þegar hafið undirbúnings- vinnu að því hvernig skynsamlegt og raunhæft væri að standa að slíkri sameiningu. Vissulega hafa lækna- samtökin staðið fyrir umfjöllun um málið. Nefndir hafa verið skipaðar og skilað áliti, málþing haldið og á síðustu aðalfundum LÍ hefur iðulega verið fjallað um þetta mikilvæga mál. Og hversu gagnleg hefur þessi umræða verið? Mest hefur borið á tveimur and- stæðum fylkingum sem hafa hreiðrað um sig í skot- gröfunum og ekki hreyft sig þaðan. Litlar tilraunir hafa verið gerðar til að nálgast hugmyndir hins aðil- ans eða finna nýja lausn á þessu flókna máli. Helsti afrakstur þessarar umræðu eru tvö virðuleg nýyrði í orðasafn læknisfræðinnar: „Hátæknisjúkrahús“ og „Háskólasjúkrahús". Fylkingarnar tvær hafa séð snertiflöt á deilumáli sínu sem felst í því að byggja splunkunýjan spítala þar sem læknar í tæknivæddum sérgreinum annars vegar og vísindamenn hins vegar fá óskir sínar um fullnægjandi vinnuaðstöðu uppfyllt- ar. En þó að augljóslega yrði það heilbrigðisþjónustu í landinu til framdráttar að byggja hátækni háskóla- sjúkrahús þá virðist tæpast raunhæft að ætla að slíkur spítali rísi á næstu árum. Og jafnvel þó svo yrði hefur oftast verið talið óráðlegt í vestrænum samfélögum að hjónaefni hefji samvinnu sína í bólinu; frekar hef- ur tíðkast og eðlilegra þótt að hjónaefnin kynntust fyrst, aðlöguðust hvort öðru og reyndu að sníða verstu gallana af makanum tilvonandi. í umræðunni um eitt eða tvö sjúkrahús hefur mér þótt gleymast að ræða um mikilvægi þess að auka samvinnu sjúkrahúsanna tveggja. Vissulega er víða mikil og góð samvinna í gangi og flaggskip hennar er sennilega hin ágæta starfsemi öldrunardeilda sjúkra- húsanna. Eg er hins vegar sannfærður um að hægt sé að stórauka samvinnu sjúkrahúsanna og að það hljóti að vera fyrsta skrefið í átt að aukinni hagræðingu og bættri þjónustu, hvort sem það leiðir til samruna sjúkrahúsanna eða ekki. Til að samvinnuferlið heppnist þurfa allir læknar sjúkrahúsanna að taka þátt í því af jákvæðni, þori og vilja. Þeir þurfa að losna úr viðjum hefðbundins hugs- unarháttar þar sem allt stjómast um of af áþreifan- legum landamærum (húsveggjum, lóðamörkum) og fjarlægðum. Skoða þarf hvort heppilegt sé að flytja ákveðna starfsemi alfarið yfir á annað sjúkrahúsið eða hvort æskilegra sé að halda starfseminni að- skilinni. Sé síðari kosturinn valinn er mikilvægt að auka samvinnu deildanna, til dæmis með sameigin- legum ferilvöktum og einnig með því að læknar vinni að einhverju leyti á báðum sjúkrahúsunum. Mikil- vægt er að í þessu ferli verði annað sjúkrahúsið eða ákveðnar deildir innan þess ekki gerðar að annars flokks þjónustudeild sem auk þess að bitna á sjúk- lingunum myndi lækka faglegan staðal sérfræðilækn- anna sem vinna við deildina. Endurskoða þarf ræki- lega ráðgjafarþjónustu sérfræðilækna, gera hana skil- virkari og óháða landamærum sjúkrahúsanna, sér- staklega í sérgreinum þar sem mikið misvægi er í mönnun á sjúkrahúsunum tveimur. Ég vona að læknar beri gæfu til að vinna heiðar- lega og vel úr núverandi stöðu. Þrátefli síðustu ára verður að heyra sögunni til. Ráðherra hefur tekið ákvörðun um sameiginlegan rekstur sjúkrahúsanna og það er undir læknunum sjálfum komið að finna réttu leikfléttuna til sigurs. Annars verðum við enn einu sinni heimaskítsmát. 126 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.