Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2000, Síða 54

Læknablaðið - 15.02.2000, Síða 54
UMRÆÐA & FRÉTTIR / PERSÓNUVERND Persónuvernd leysirTölvunefnd af hólmi Stjórnar- frumvarp um persónu- vernd og meðferð persónu- upplýsinga lagt fram rétt fyrir jól Skömmu áður en Alþingi fór í jólafrí lagði Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra fram stjórnarfrum- varp til laga um persónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga. Ekki náðist að mæla fyrir frumvarpinu og bíður því nánari kynning og umræða þess að þing komi saman að nýju sem verður nú í febrúar. En ljóst er að efni frumvarpsins boðar veigamiklar breytingar á allri umgjörð þeirrar starfsemi sem háð er leyfi Tölvunefndar. Forsaga þessa frumvarps er sú að í október 1995 gaf Evrópusambandið út nýja tilskipun um skrán- ingu og meðferð persónuupplýsinga. Snemma árs 1996 skipaði dómsmálaráðherra þrjá fulltrúa í nefnd til að endurskoða lög nr. 121/1989 um skrán- ingu og meðferð persónuupplýsinga en þeir voru: Þorgeir Örlygsson þáverandi formaður Tölvu- nefndar, Sigrún Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Tölvunefndar og Porsteinn A. Jónsson þáverandi skrifstofustjóri í Dómsmálaráðuneytinu. Auk þess var Kristján Andri Stefánsson deildarstjóri skipað- ur af Forsætisráðuneytinu. Nefndin lauk störfum 1. október 1998 og af- henti dómsmálaráðherra tillögur sínar í frumvarpi sem er í öllum meginatriðum samhljóða því sem nú hefur verið lagt fram. Sjálfstæð ríkisstofnun Ljóst er að frumvarpið hefur í för með sér verulegar breytingar á öllu eftirliti með skráningu persónuupp- lýsinga og meðferð þeirra. í stað Tölvunefndar sem starfað hefur undir forsjá Dómsmálaráðuneytisins verður til ný stofnun, Persónuvernd, sem hefur fullt sjálfstæði eins og aðrar ríkisstofnanir. í öðru lagi eru gerðar breytingar á gildissviði laganna. Hugtakið persónuupplýsingar felur nú í sér „sérhverjar persónugreindar eða persónu- greinanlegar upplýsingar, það er upplýsingar sem tengja má beint eða óbeint við einstakling“. Frum- varpið nær einnig til „sérhverrar rafrænnar vinnslu persónuupplýsinga án tillits til þess hvort afmörk- uðum upplýsingum er safnað í skipulagsbundna heild eða ekki, en tekur hins vegar því aðeins til handunninnar meðferðar persónuupplýsinga að þær séu eða eigi að verða hluti af skrá,“ eins og segir í skýringum með frumvarpinu. í þriðja lagi verður sú grundvallarbreyting á vinnubrögðum að í stað þess að sá sem hyggur á vinnslu persónuupplýsinga sæki um leyfi til Tölvu- nefndar skal hann að lögunum samþykktum til- kynna hinni nýju stofnun hvað hann hyggist fyrir. í tilkynningunni eiga að koma fram allar upplýsing- ar um það hvernig hann hyggst haga vinnslunni. Persónuvernd tekur síðan afstöðu til þess hvort og þá hvernig stofnunin mun fylgjast með vinnslunni. Með þessu móti er ábyrgð þess sem vinnur með persónuupplýsingar aukin og honum gert að við- hafa innra eftirlit sem tryggi öryggi og gæði þeirra upplýsinga sem unnið er með. Persónuvernd getur stöðvað vinnsluna ef stofnunin telur að ekki sé far- ið rétt að og jafnvel beitt dagsektum ef ábyrgðar- aðili fer ekki að fyrirmælum hennar. Einnig er gert ráð fyrir að „Persónuvernd gegni þýðingarmiklu hlutverki við að leiðbeina þeim um persónuvernd sem ráðgera að vinna með persónuupplýsingar eða þróa kerfi fyrir slíka vinnslu. Er í því sambandi m.a. haft í huga að stofnunin aðstoði við gerð starfs- og siðareglna fyrir einstaka hópa og starfsstétt- ir...,“ eins og segir í greinargerð. Aukinn réttur hins skráða í frumvarpinu eru mörg ný ákvæði sem ætlað er að auka réttindi hins skráða og gera hann færari um að gæta réttar síns. Þetta er gert með þrennum hætti: „í fyrsta lagi með því að ábyrgðaraðila er að eigin frumkvæði gert skylt að framkvæma ýmsar ráðstafanir sem hafa það að markmiði að tryggja að hinn skráði geti nýtt sér réttindi sín samkvæmt lögunum. Dæmi um þetta eru ákvæði ... þar sem sú skylda er lögð á ábyrgðaraðila að veita hinum skráða fræðslu um tiltekin atriði þegar safnað er upplýsingum um hann. í öðru lagi eru hinum skráða veitt nokkur ný eða rýmkuð réttindi sem hann verður sjálfur að hafa frumkvæði að nýta sér ... í þriðja lagi felst í því réttaröryggi fyrir almenn- ing að Persónuvernd skal... halda skrá yfir alla þá vinnslu sem henni er tilkynnt um ... og vinnslu sem hún heimilar ... skrá þessi skal vera aðgengileg al- menningi. Er það Persónuverndar að ákveða hvernig það verður gert og kemur mjög til álita að skráin verði m.a. aðgengileg á netinu,“ segir í greinargerð. Ljóst er að hér eru lagðar til umtalsverðar breytingar á öllu starfsumhverfi þeirra sem vinna með persónuupplýsingar. í þeim hópi eru allir sem vinna að læknisfræðirannsóknum og er því full ástæða til að hvetja lækna til að fylgjast vel með umræðum sem verða munu um þetta frumvarp á vormánuðum. -ÞH Stjórnarfrumvarpiö um persónuvernd og meðferð persónuupplýs- inga má nálgast á vefsíðu Alþingis: www.althingi.is 128 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.