Læknablaðið - 15.10.2001, Page 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR L R
Vetrarstarf Læknafélags Reykjavíkur 2001 -2002
Ólafur Þór
Ævarsson
Höfundur er sérfræðingur í
geðlækningum og formaður
Læknafélags Reykjavíkur.
Samningagerð og samvinna við
Tryggingastofnun ríkisins
Samninganefnd Læknafélags Reykjavíkur (LR)
hefur starfað ötullega undir forystu Þórðar Sverris-
sonar augnlæknis og er stöðugt í mikilli samvinnu við
samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og
starfsmenn heilbrigðis- og fjármálaráðuneyta. Veru-
legur árangur hefur náðst í kjaramálum en auk hefð-
bundinnar samningagerðar hefur skapast góð sam-
vinna LR og TR um skipulagningu þessa mikilvæga
hluta heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Þessi starf-
semi tekur sífellt breytingum eftir þörf sjúklinga,
með breyttum meðferðarmöguleikum og nýjungum í
læknisfræði. Hlustað hefur verið á fagleg rök og
ráðleggingar læknanna í samninganefndinni og
einnig hefur verið haft samráð við lækna úr hinum
ýmsu sérgreinum. Vekur það athygli innan stjórn-
kerfisins hve vel starfsemi sérfræðinga utan spítala er
skipulögð og kostnaðargreining skýr. Samstarf þetta
hefur vaxið stig af stigi síðustu árin og hefur verið far-
sælt og kemur það ekki á óvart þar sem læknamir
sjálfir sem starfa í þessu kerfi og best þekkja til starf-
seminnar hafa í vaxandi mæli haft áhrif til að skipu-
leggja þjónustuna. Mikilvægt er að tryggja áfram-
haldandi faglegt samstarf milli veitenda og greiðanda
heilbrigðisþjónustunnar með þessum hætti og leyfa
þessu einstaka samstarfi að þroskast áfram því hér er
um spennandi nýjung að ræða við skipulagningu í
heilbrigðiskerfinu sem líkleg er til að tryggja fagleg
gæði og jafnframt hagkvæmni í rekstri.
Fræðsla fyrir almenning
Síðastliðna tvo vetur hafa læknar LR boðið almenn-
ingi til fræðslu um margvísleg heilsufarsvandamál.
Hátturinn hefur verið sá að almenningi hefur verið
boðið í húsakynni lækna í Hlíðasmára 8 og fær þar
tækifæri til að ræða við sérfræðing og leggja fyrir
hann spurningar. Margir læknar hafa tekið þátt í
fræðslunni og haldið vönduð erindi sem gestirnir
hafa kunnað vel að meta. Þó hafa gestirnir verið
ánægðastir með umræður og fyrirspurnir. Þessir
fundir verða að jafnaði tvisvar í mánuði í vetur á
fimmtudagskvöldum kl. 20. Ástæða er til að hvetja
læknanema og heilbrigðisstéttir til að mæta. Sérstaka
ánægju vekur að í vetur verður samvinna við sjón-
varpsstöðina Skjá einn og Sigríði Arnardóttur sem
stýrir hinum vinsæla sjónvarpsþætti Fólk með Sirrý á
miðvikudagskvöldum. í þætti sínum fjallar hún oft
um heilsufarsvandamál og mun fá til sín lækna til
viðræðna en þeir fjalla síðan um efnið á fræðslufundi
LR kvöldið eftir.
Fjölmidlaþjálfun lækna
Læknar þurfa að geta greint frá fræðum sínum á
skiljanlegan hátt og segja frá niðurstöðum vísinda-
rannsókna. Þá þurfa þeir stundum að greina frá líðan
sjúklinga. Einnig er mikilvægt að læknar taki þátt í
umræðu um heilbrigðismál á opinberum vettvangi og
í fjölmiðlum. Stjórn LR telur mikilvægt að auka
leikni meðal lækna til að koma fram í fjölmiðlum og
hefur því fengið hina þekktu fjölmiðlakonu Elínu
Hirst til að halda námskeið fyrir lækna og þjálfa þá.
Námskeið fyrir lækna um fundarsköp
Læknasamtökin eru fjölmenn, lýðræðisleg samtök og
mikilvægir þættir félagsstarfsins, svo sem stefnu-
mörkun og ákvarðanir í veigamiklum málum, eru af-
greiddir á fundum. Nauðsynlegt er fyrir félagsmenn
að hafa góða færni í fundarsköpum. Stjórn LR mun
standa fyrir námskeiðum í fundarsköpum og fundar-
stjórn fyrir félagsmenn sína í vetur.
Fræðslu- og skemmtikvöld LR fyrir lækna og
maka þeirra
Fræðslu- og skemmtikvöld hafa verið haldin á vegum
LR síðastliðna þrjá vetur, að jafnaði einu sinni á
misseri. Þau eru þannig skipulögð að fyrst er fræðsla
um læknisfræðilegt efni. þá fróðleikur um eitthvað
alveg ótengt læknisfræðinni og að lokum samvera og
máltíð. Síðastliðið vor var farið í heimsókn á Heilsu-
gæslustöð Miðbæjar þar sem Margrét Georgsdóttir
yfirlæknir tók á móti og kynnti starfsemi stöðvarinn-
ar. Síðan var gengið um miðborgina undir leiðsögn
og skoðaðar fornminjar og hús. Loks var sest til borðs
á krá og áttu þar læknar á öllum aldri og úr hinum
ólíkustu sérgreinum góða stund saman ásamt mök-
um. Skapast hefur sú hefð að sá læknir sem stendur
fyrir fræðslu kvöldsins skorar á þann sem næst á að
fræða. Margrét skoraði á Runólf Pálsson nýrnasér-
fræðing að kynna nýjustu tækni gervinýrans. Ánægju-
legt er að eldri læknar sem hættir eru störfum hafa
verið duglegir að mæta og gaman væri ef fleiri ung-
læknar kæmu með.
Til íhugunar
Stjórn LR vill beita sér fyrir umræðu meðal lækna og
víðar um eftirfarandi mál í vetur. Fulltrúar félagsins
munu meðal annars leggja fram ályktunartillögur og
vekja umræðu á þessunt málum á aðalfundi LÍ dag-
ana 12.-13. október.
1. Frá sameiningu sjúkrahúsanna hefur myndast
tímabil sem einkennst hefur af óvissu og skorti á
faglegri forystu. Mikilvægt er að fagleg ábyrgð og
820 Læknablaðið 2001/87