Læknablaðið - 15.10.2001, Síða 69
11. Eru óhöpp/slys skráð og rædd?
12. Er tilkynnt um vinnuslys til Vinnueftir-
litsins, eftir settum reglum?
Ofangreindar spurningar eru úr heftinu
Vinnuvernd (4) og tekur ekki nema nokkrar
mínútur að spyrja fólk þeirra. Virkur áróður
lækna fyrir því að slysvarnir séu í hávegum
hafðar er mikilvægur og vil ég hvetja lækna
til að nota Vinnuvemdarvikuna 2001,14. til
20. október til þess að verða upphaf að nýrri
baráttu gegn vinnuslysum undir kjörorðun-
um: Vinnuslys eru engin tilviljun.
Heimildir
1. Froom P, Melamed S, Kristal-Boneh E, Gofer D.
Ribak J. Industrial accidents are related to relative
body weight: the Israeli CORDIS study. Occ Envir
Med 1996; 53:832-5.
2. Webb GR, Redman S, Hennrikus DJ, Kelman GR,
Gibberd RW, Sanson-Fisher RW. The relationships
between high-risk and problem drinking and the
occurrence of work injuries and related absences. J
Stud Alcohol 1994; 55: 434-46.
3. Hsiao H, Simeonov P. Preventing falls from roofs:
a critical review. Ergonomics 2001; 44: 537-61.
4. Bergmann H. Vinnuvernd. 3. útgáfa.
Endurskoðun: Stefánsdóttir HK. Reykjavík:
Vinnueftirlit ríkisins; 2000.
Vancouver-hópurinn lýsir áhyggj-
um af þrýstíngí hagsmunaaðila
á vísindamenn
Eins og flestir lesendur Læknablaðsins
vita lýtur útgáfa vísindarita á sviði læknis-
fræði og lífvísinda ströngum reglum sem
eiga að tryggja áreiðanleika þeirra upplýs-
inga sem þau birta. Þessar reglur eru
kenndar við Vancouver-hópinn en í honum
eiga sæti ritstjórar margra virtustu lækna-
blaða heims. Þeirra á meðal eru ritstjórar
danska og norska læknablaðsins.
Reglurnar sem þessi hópur gefur út
nefnast Uniform Requirements for Manu-
scripts Submitted to Biomedical Journals:
writing and editing for biomedical publi-
cation. Þær eru í stöðugri endurskoðun
og þær reglur sem nú er farið eftir eru frá
því í maí árið 2000. í sumar hefur hópur-
inn unnið að endurskoðun reglnanna og í
september birtist leiðari samtímis í 11
helstu læknablöðum heims þar sem hóp-
urinn lýsir áhyggjum yfir þeirri þróun
sem átt hefur sér stað á sviði rannsókna í
lífvísindum.
Ahyggjuefni hópsins er fyrst og fremst
sá þrýstingur sem fyrirtæki og hags-
munaaðilar beita þá sem standa fyrir víð-
tækum og mikilvægum rannsóknum. Rit-
stjórarnir segjast ekki hafa áhuga á að
birta greinar og niðurstöður rannsókna
nema tryggt sé að rannsakendur hafi not-
ið óskoraðs sjálfstæðis og að þeir hafi
ekki verið beittir þrýstingi frá þeim sem
fjármagna rannsóknirnar.
I leiðaranum er því meðal annars
haldið fram að æ harðari samkeppni há-
skólasjúkrahúsa og rannsóknarstofa hafi
leitt til þess að í mörgum tilvikum hafi
fyrirtæki sem fjármagna rannsóknir getað
sett rannsakendum skilyrði um það
hvernig þeir hagi rannsóknum sínum,
„skilyrði sem ekki eru alltaf í sem bestu
samræmi við hagsmuni vísindamanna og
þátttakenda í rannsóknum eða vísindun-
um til framdráttar. ... Þessi skilyrði mis-
bjóða sjálfsvirðingu vísindamanna, en
margir hafa þó gengið að þeim vitandi að
ef þeir neituðu gætu kostendur fundið
einhverja aðra sem væru tilbúnir að
ganga að skilyrðunum. ... Hér er ekki
einvörðungu um fræðilegan vanda að
ræða því nokkur slík tilvik hafa litið dags-
ins ljós á síðustu árum og okkur grunar
að mun fleiri hafi átt sér stað í kyrrþey,“
segir í leiðaranum.
Þessi leiðari vakti töluverða athygli og
var meðal annars birtur í heild sinni á
forsíðu Washington Post 5. ágúst síðast-
liðinn. Leiðarinn mun birtast í næsta hefti
Læknablaðsins. Þegar nýjar og endur-
skoðaðar reglur liggja fyrir, væntanlega
einhvern tímann á næstu mánuðum,
verða þær einnig birtar hér í blaðinu.
Þeir sem vilja kynna sér störf Van-
couver-hópsins - sem opinberlega ber
heitið The International Committee of
Medical Journal Editors - geta gert það
með því að heimsækja vefsetur hans en
slóðin þangað er: www.icmje.org
-ÞH