Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 16

Læknablaðið - 15.03.2003, Page 16
FRÆÐIGREINAR / ÞÉTTNI KALKKIRTLAHORMÓNS Inngangur Kalkkirtlahormón (parathyroid hormone, PTH) er 84 amínósýru peptíð sem framleitt er í kalkkirtlunum og leikur stórt hlutverk í stjórnun á kalk- og bein- efnaskiptum líkamans. Beint og óbeint eykur það styrk jónaðs kalsíums í utanfrumuvökvanum og örv- ar myndun l,25-(OH)2-vítamín D í nýrum. Seytun og framleiðslu PTH er hins vegar stjórnað af kalsíum og l,25-(OH)2-vítamín D með neikvæðri afturvirkni (1). Virkt form PTH í blóði er 1-84 peptíðið, PTH(1- 84), með helmingunartíma um tvær mínútur. Niður- brotsefni af mismunandi lengd verða annaðhvort til vegna niðurbrots á virka forminu inni í kalkkirtlun- um eða úti í vefjum líkamans og er eitt formið PTH (7-84). Deilt hefur verið um hvort hin ýmsu niður- brotsefni PTH hafi einhverja líffræðilega virkni (2-8). Nýlegar rannsóknir á rottum benda til að PTH(7-84) hamli eða mótvirki PTH(l-84) (9, 10) þó enn sé óljóst með hvaða hætti og hvort það sé einnig í mönn- um (11). Niðurbrotsefnin síast út í gauklum nýrna og eru brotin niður í amínósýrur í píplunum. Skert nýrnastarfsemi getur því haft áhrif á uppsöfnun þess- ara brota (12-14). Ýmsar rannsóknir hafa sýnt fram á hækkun PTH með aldri og versnandi nýrnastarfsemi (15) en hins vegar hefur ekki verið kannað hvort það er virka formið sem eykst eða ekki. Einnig höfum við og aðrir sýnt fram á jákvæða fylgni PTH við þyngd (15,16). Fyrir 1988 voru mælingar á PTH mjög ónákvæm- ar. Auk þess að mæla PTH(l-84) mældu þær líka mjög mikinn hluta niðurbrotsefna þess. Um það leyti komu fram nýjar ónæmisfræðilegar aðferðir sem not- ast við tvö mismunandi mótefni (17-20). Annað binst karboxýlenda PTH ásamt epitópum í miðhlutanum og hitt binst amínóendanum. Dæmi um bindistaði einnar hefðbundinnar mæliaðferðar er svæði sem svarar til amínósýra 55-64 og annað sem svarar til amínósýra 26-32. Þessar aðferðir voru taldar greina eingöngu PTH(l-84) og kallaðar heildar-PTH (intact PTH) aðferðir. Nú hefur hins vegar verið sýnt fram á að þessar mæliaðferðir greina líklega ýmis stærri um- brotsefni PTH, að öllum líkindum mest PTH(7-84) (9,13,14,21). Mismunandi heildar-PTH mælingarað- ferðir virðast einnig greina mismikið af niðurbrots- efnum PTH(l-84) (13). Ný aðferð hefur nú komið fram sem er talin mæla aðeins PTH(l-84) og nefnd virkt-PTH (whole PTH). Notuð eru tvö mótefni eins og áður, annað binst svæði 39-84 og hitt svæði 1-4 (14, 22). Tilgangur þessarar rannsóknar var að bera saman eina hefðbundna aðferð sem mælir heildar-PTH og nýja aðferð sem mælir virkt-PTH. Athugað var hvort þessar tvær mæliaðferðir væru sambærilegar með til- liti til aldurs, fituhlutfalls og nýrnastarfsemi. Efniviður og aðferðir Um var að ræða þversniðsrannsókn. Rannsóknar- hópurinn var valinn með slembiúrtaki úr íbúaskrá Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaganna úr fyrir- fram ákveðnum aldurshópum sem hlupu á fimm ára millibili, sá elsti fæddur 1916 og sá yngsti fæddur 1961, samtals líu hópar. Stefnt var að því að hver hóp- ur innihéldi að minnsta kosti 50 einstaklinga af hvoru kyni. Gert var ráð fyrir um 70% mætingu og að ákveðinn fjölda yrði að útiloka vegna sjúkdóma og lyfjatöku. Úr hverjum aldurshópi voru því boðaðar 144 konur og 96 karlar, samtals 2400 einstaklingar, sem kallað yrði í á 24 mánaða tímabili frá og með febrúar 2001. Allir einstaklingamir svöruðu spurn- ingalistum um heilsufar og lyfjanotkun, tekin var blóðprufa, þeir skiluðu þvagprufu og fóru í bein- þéttnimælingu. Einnig voru hæð og þyngd skráð. Rannsóknin var samþykkt af Vísindasiðanefnd og Persónuvernd. Fyrir núverandi rannsókn voru notuð gögn frá fyrstu 12 mánuðunum og útilokaðir þeir einstakling- ar sem haldnir voru alvarlegum sjúkdómum eða voru á lyfjum sem hafa áhrif á kalkbúskap, svo sem þíazíð- um, bisfosfónötum, kvenhormónum eða barksterum. Blóðrannsóknir Öll blóðsýni voru tekin milli klukkan 08:00 og 10:00 til að forðast dægursveiflu og voru einstaklingarnir allir fastandi. Blóðsýnin voru skilin innan klukku- stundar og fryst við -80 °C fram að mælingu. PTH var mælt í plasma með tveimur mismunandi aðferðum. Annars vegar með heildar-PTH mælingu, PTH elec- sys (Roche Diagnostics Corporation, USA, viðmið- unarmörk 10-65 pg/ml, mælibreytileiki [%CV] 4- 7%), sem er ElectroChemiLuminescence Immuno- Assay (ECLIA). Hins vegar var notuð ný virkt-PTH aðferð, PTH cap (Scantibodies Laboratory, Inc., USA, viðmiðunarmörk 7-39 pg/ml, mælibreytileiki [%CV] 4-7%), sem er ImmunuoRadioMetric Assay (IRMA). 25-(OH)-vítamín D var mælt með Radio- Immuno Assay (RIA, DiaSorin, USA) sem mælir bæði vítamín D2 (ergocalciferól) og vítamín D3 (chol- ecalciferól). Cystatín C (mælikvarði á nýmastarf- semi) var mælt með gruggmælingu (Dako, Dan- mörk). Heildarmagn kalsíum, fosfór og kreatínín, alkalískir fosfatasar og magnesíum voru mæld í sermi með þurrkemíu aðferðum (Vitros-Autoanalyser). Jónað kalsíum var mælt með radiometric aðferð (Ortho-Clinical Diagnostics, USA). Úrvinnsla gagna og tölfrœði Þyngdarstuðull (BMI) var reiknaður út frá hæð og þyngd (kg/m2). Fylgni milli PTH mælinganna var könnuð með Pearsons fylgnistuðli. Samræmið milli þeirra var mælt með Kappa tölfræði (k>0,75 = mjög gott samræmi, 0,4<k>0,75 = gott samræmi, k<0,4 = ekki mikið samræmi) og miðað var við efri viðmiðun- 192 Læknablaðið 2003/89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.