Læknablaðið - 15.03.2003, Page 30
FRÆÐIGREINAR / FJÖLÓMETTAÐAR FITUSÝRUR OG LÆKNINGAR
vinnri blóðskilunarmeðferð. Oft er æðaaðgengið
myndað með ísetningu gerviæðargræðlings sem teng-
ir saman slagæð og bláæð. Meira en 75% slíkra græð-
linga lokast vegna segamyndunar á fyrsta ári (125).
Nýleg, lyfleysustýrð rannsókn á sjúklingum í blóð-
skilunarmeðferð sem fengu gerviæðargræðling sýndi
að tíðni opinna græðlinga eftir eitt ár var 76% hjá hópi
sjúklinga sem var meðhöndlaður með 4 g af 80%
etýlestraþykkni ómega-3 fjölómettaðra fitusýra á dag
en 15% hjá samanburðarhópnum (126). Þennan ávinn-
ing má ef til vill rekja til myndunar tríenóískra prosta-
nóíða sem draga úr kekkjunarhæfni blóðflagna, beinna
áhrifa á æðaþelsfrumur eða minni myndunar bólgu-
og vaxtarhvetjandi frumuboðefna. Ef þessi stórkost-
iegu áhrif af meðhöndlun með ómega-3 fjölómettuð-
um fitusýrum verða staðfest í öðrum rannsóknum
gæti þetta valdið byltingu fyrir blóðskilunarsjúklinga
með gerviæðaraðgengi.
Ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur
og miðtaugakerfið
I miðtaugakerfi heilbrigðra einstaklinga er ríkulegt
magn fjölómettaðra fitusýra. Mest er af arakídónsýru
og DHA en þessar tvær fitusýrur eru um það bil 20%
af þurrþyngd heilans (5,127,128) og DHA er allt að
40% fitusýra í sjónhimnu (5,127). Þessar löngu fjöló-
mettuðu fitusýrur eru því mikilvægar byggingarein-
ingar frumuhimna taugakerfisins og líklegt að þær
hafi áhrif á boð milli taugafrumna og virkni himnu-
bundinna viðtækja, jónaganga og ensíma (5,127,129).
Ahrif á taugaþroska
Ymislegt bendir til að fyrirburar og nýburar geti ekki
myndað nægilega mikið af arakídónsýru og DHA
þrátt fyrir fullnægjandi magn forstiganna línólsýru og
ot-línólensýru í fæðu (6,130,131). Hafa sumir dregið
þá ályktun að arakídónsýra og DHA séu í raun lífs-
nauðsynlegar fyrir yngstu börnin og því eigi að bæta
þeim í þurrmjólk sem þeim er ætluð (132). Þetta hef-
ur einnig leitt til nokkuð víðtækra rannsókna á tengsl-
um mataræðis og fitusýruinnihalds heila og tauga-
þroska ungbarna þar sem vitað er að brjóstamjólk
inniheldur allar þær fitusýrur sem barnið þarfnast en
óbætt þurrmjólk og kúamjólk innihalda hvorki arakí-
dónsýru né DHA (5,133).
Rannsóknir á heilavef barna sem dóu vöggudauða
innan fjögurra mánaða aldurs sýndu að marktækt
meira var af DHA í heila þeirra barna sem nærst
höfðu á bijóstamjólk en í samanburðarhópi sem nærst
hafði á óbættri þurrmjólk (134) og staðfesta þannig
afgerandi áhrif næringar á fitusýruinnihald í heilavef
ungbarna.
Fjölrannsóknagreiningar á áhrifum DHA-uppbót-
ar í þurrmjólk á sjónskerpu hraustra fullbura annars
vegar og hins vegar fyrirbura á aldrinum eins til 12
mánaða, benda einnig eindregið til þess að sjón þeirra
barna sem nærðust á DHA-bættri þurrmjólk þroskist
fyrr en hjá þeim sem ekki fengu hana en langtíma-
áhrif á sjón eru ekki þekkt (135,136).
Niðurstöður einstakra rannsókna sem beinst hafa
að nauðsyn DHA og arakídónsýru fyrir almennan
taugaþroska hafa þó ekki verið einhlítar. Eldri rann-
sóknir sýndu að taugaþroski tveggja ára barna sem
nærðust á brjóstamjólk var meiri en barna sem nærð
voru með þurrmjólk (137) en nýlegar rannsóknir
hafa gefið nokkuð misvísandi niðurstöður. Til dæmis
birtust nýlega tvær ítarlegar rannsóknir og sýndi önn-
ur fram á jákvæð áhrif á taugaþroska fyrirbura með
fæðingarþyngd undir 1250 g þegar þeim var gefin
DHA- og arakídónsýrubætt þurrmjólk allt fyrsta árið
(138) en hin rannsóknin sem gerð var á fullburða
börnum sýndi engin áhrif á taugaþroska við 14 mán-
aða aldur (139). Þá sýndi rannsókn á fullburða börn-
um ekki mun á taugaþroska við 18 mánaða aldur
meðal barna sem fengu DHA- og arakídónsýrubætta
þunmjólk samanborið við böm sem fengu ýmist hefð-
bundna þurrmjólk eða brjóstamjólk fyrstu sex mán-
uði ævinnar (140). I annarri rannsókn sem gerð var á
fullburða börnum fékk einn hópur DHA-bætta þurr-
mjólk, annar fékk DHA- og arakídónsýrubætta þurr-
mjólk, þriðji hópurinn hefðbundna þurrmjólk og sá
fjórði brjóstamjólk í 12 mánuði frá fæðingu (141).
Ekki reyndist munur á taugaþroska barnanna í þess-
um hópum við 12 mánaða aldur. Við 24 mánaða ald-
ur kom þó í ljós að börn sem nærst höfðu á brjósta-
mjólk höfðu þroskast marktækt betur en ekki var
munur á hinum hópunum. Loks sýndi bandarísk rann-
sókn að Vitsmunaþroskavísir Baleys (Baley’s Mental
Developmental Index) við 18 mánaða aldur var mark-
tækt hærri hjá börnum sem fengu DHA- eða DHA-
og arakídónsýrubætta þurrmjólk í fjóra mánuði frá
fæðingu en hjá samanburðarhópi sem fékk venjulega
þurrmjólk (142). Langtímaáhrif slíkrar meðferðar á
heildarþroska og vöxt ungbarna sem fengið hafa nær-
ingu bætta með ómega-3 fjölómettuðum fitusýrum
hafa þó ekki verið könnuð með fullnægjandi hætti.
Þó niðurstöður séu ekki einhlítar hefur nefnd sér-
fræðinga á vegum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna mælt með því að þurrmjólk sem ætluð er
fullburða börnum innihaldi 3,5% fitu þar sem 0,38%
fitunnar er DHA (20 mg/kg/líkamsþyngdar á dag) og
þurrmjólk sem ætluð er fyrirburum innihaldi 4% fitu,
þar af 0,60% DHA (40 mg/kg/líkamsþyngdar á dag)
(136). Á íslandi fæst þurrmjólk sem er bæði DHA-
og arakídónsýrubætt en ekki er völ á kúamjólk sem
bætt er með þessum fitusýrum.
Geðsjúkdómar
Á undanförnum árum hafa verið gerðar margar
rannsóknir á sambandi ómega-3 fjölómettaðra fitu-
sýra og geðhvarfaveiki, þunglyndi og geðklofa (127,
128, 143-145) og hafa komið fram sterk tengsl milli
206 Læknablaðið 2003/89