Læknablaðið - 15.03.2003, Page 41
FRÆÐIGREINAR / FLEIÐRUSÝNATAKA
Table III. Final diagnosis in those who underwent
closed pieural biopsy.
Causes of pleural fluid Number %
Cancer 55 46
Idiopathic 32 27
Pneumonia 12 10
Congestive heart failure 6 5
Trauma 5 4
Tuberculosis 4 3
Subphrenic abscess 2 2
Pulmonary embolism 1 1
Rheumatoid effusion 1 1
Post CABG* surgery 1 1
Ovarian hyperstimulation syndrome 1 1
Total 120 100
* Coronary artery bypass grafting
Table V. Cause of death in study patients.
Cause of death Number %
Lung cancer 23 31
Ischemic heart disease 19 25
Breast cancer 7 9
Pneumonia 5 7
Ovarian cancer 3 4
Mesothelioma 3 4
Gastric cancer 2 3
Pancreas cancer 2 3
Colon cancer 2 3
Lymphoma 2 3
Peritoneal cancer 2 3
Renal cancer 1 1
Oral cavity cancer 1 1
Small bowel cancer 1 1
Leukemia 1 1
HIV* 1 1
Total 55 100
* Human immunodeficiency virus
lingum sýndi annað fleiðrusýni krabbamein og hjá
þeim eina einstaklingi sem tekin voru hjá þijú sýni
var þriðja sýnið með krabbameinsgreiningu. I einu af
þessum tilvikum var þegar búið að sýna fram á ill-
kynja sjúkdóm með frumurannsókn á vökva.
Frumurannsókn á vökva var athuguð með tilliti til
krabbameins (tafla II) og var hún jákvæð í 26 tilfell-
um. Við nánari skoðun kom í ljós að í einu tilfelli var
um falskt jákvætt svar að ræða þar sem við krufningu
fundust engin merki um illkynja vöxt. Sá einstakling-
ur var með fleiðruvökva vegna lungnabólgu en hann
hafði verið með smáfrumukrabbamein í lunga fyrir
12 árum sem svarað hafði meðferð á þeim tíma. Ekk-
ert benti til endurkomu smáfrumukrabbameins við
krufninguna.
Við lestur á sjúkraskýrslum og göngudeildarnót-
um var reynt að komast nær orsökum vökvasöfnun-
ar, ef vefjasýni tekin með nál gáfu ekki greiningu, og
þá með hvaða hætti greining var gerð. Samantekt á
því leiddi í ljós að 55 af þeim 120 sem í rannsókninni
voru reyndust vera með krabbamein sem orsök fyrir
Table IV. Origin ofcancer in pleura.
Origin of cancer Number %
Lung 24 44
Breast 7 13
Pleura 4 7
Ovary 3 5
Lymph nodes 3 5
Kidney 2 4
Stomach 2 4
Pancreas 2 4
Peritoneum 2 4
Colon 2 4
Small bowel 1 2
Bone marrow 1 2
Oral cavity 1 2
Adrenals 1 2
Total 55 100
vökvasöfnuninni. Hjá 32/120 var ekki hægt að sýna
fram á með vissu hver ástæðan fyrir vökvasöfnuninni
var. Lungnabólga og hjartabilun voru aðrar algengar
orsakir (tafla III). Af þeim sent ekki fannst skýring á
vökvasöfnuninni hjá eru tíu látnir, níu úr hjarta- og
æðasjúkdómum og einn úr lungnabólgu. Ein kona
var með heilkenni ofurseytris-eggjastokka sem stafar
af hormónagjöf sem gefin er til undirbúnings eggja-
töku fyrir gervifrjóvgun. Hormónagjöfin leiðir til
vökvasöfnunar í kviðar- og fleiðruholi sem gengur
yfirleitt yfir án eftirkasta (6).
Uppruni æxlis var athugaður (tafla IV) og einnig
dánarorsök þeirra 75 einstaklinga sem látnir voru í
febrúar árið 2002 (tafla V). Lungnakrabbamein er
bæði algengasta krabbameinið og einnig algengasta
dánarorsökin. Árið 2002 voru fjórir enn á lífi sem
greinst höfðu með krabbamein í fleiðru en þeir voru
með upprunastað krabbameins í nýra, lunga, eggja-
stokk og í fleiðru (mesothelioma). Einn greindist árið
1992, tveir árið 1996 og einn árið 1999 og er því eftir-
fylgnitími þessara einstaklinga orðinn nokkur. Einn
sjúklingur var með alnæmi og lést af þeim sökum en
hann var einnig með eitlakrabbamein sem orsakaði
fleiðruvökvann.
Hjá 85 einstaklingum greindist fleiðrubólga eða
bandvefsaukning í fyrsta sýni en af þeim reyndust 33
vera með illkynja sjúkdóm sem orsök fyrir vökva-
söfnuninni við nánari uppvinnslu. Hjá 25/85 fannst
engin skýring á vökvasöfnuninni þrátt fyrir ítarlega
uppvinnslu en aðrar ástæður, eins og lungnabólga,
áverki og hjartabilun, voru sjaldgæfari (tafla VI).
Með lokuðu fleiðrusýni var sýnt fram á krabba-
mein hjá 15 einstaklingum við fyrstu sýnatöku en
frumurannsókn á vökva gaf greiningu hjá 25 einstak-
lingum. Með fleiðrusýni er unnt að greina illkynja
vöxt þar sem frumurannsókn nær ekki að sýna fram á
hann og öfugt. í sumum tilfellum geta bæði fleiðru-
sýnataka og frumurannsókn á vökva greint krabba-
mein. Með þessum tveim rannsóknaraðferðum var
því hægt að sýna fram á krabbamein í fleiðru hjá 31,
Læknablaðið 2003/89 217