Læknablaðið - 15.03.2003, Page 45
FRÆÐIGREINAR / NÝR DOKTOR í LÆKNISFRÆÐI
Mælingar á flæði og flæðigetu
kransæða með Doppler
Gylfi Óskarsson barnahjartalæknir varði doktors-
ritgerð sína við læknadeild háskólans í Lundi þann
31. janúar síðastliðinn. Ritgerðin ber heitið „Doppler
evaluation ofcoronary bloodflow and coronary flow
reserve - Clinical and experimental studiesLeið-
beinandi Gylfa var prófessor Erkki Pesonen og and-
mælandi við vörnina var prófessor Jaakko Hartiala
frá Abo í Finnlandi. I dómnefnd sátu prófessorarnir
Nils-Rune Lundström, Bertil Olsson og Kjell Lind-
ström. Gylfi er fyrstur Islendinga til að ljúka doktors-
prófi á sviði barnahjartalækninga.
Ritgerðin fjallar um beitingu nýrra Doppler-að-
ferða við mælingar á blóðflæði í kransæðum. Við rann-
sóknirnar voru hátíðni Doppler-mælingar gegnum
brjóstvegg og innanæðar-Doppler-mælingar notaðar
við skoðanir á fóstrum, nýburum og börnum.
Hjartasjúkdómar hjá börnum valda oft þykknun
hjartavöðvans, hækkuðum sleglaþrýstingi og lækk-
aðri súrefnismettun í blóði. Þessir þættir geta haft
áhrif á flæði í kransæðum og flæðigetu þeirra. Trufl-
anir á blóðflæði til hjartavöðvans við þessar aðstæður
geti valdið blóðþurrð og jafnvel skyndidauða, en
rannsóknir á börnum hafa verið fáar vegna skorts á
aðferðum.
Niðurstöður rannsóknanna sýna að það er gerlegt
að mæla flæði í vinstri kransæð með Doppler gegnum
brjóstvegg hjá börnum, jafnvel nýburum, þar sem
þvermál vinstri kransæðar er um 1 millimeter. Áreið-
anleiki mælinganna reyndist góður. Meðal þeirra
þátta sem reyndust hafa áhrif á flæði í vinstri kransæð
hjá frískum nýburum voru útfall vinstra slegils og
mýkt hans (diastolic compliance), en flæðið er einnig
aldursháð og eykst með vaxandi þyngd vinstri slegils.
Nýburar með ósæðarlokuþrengsl eiga á hættu
blóðþurrð í hjartavöðva þrátt fyrir að kransæðar séu
eðlilegar. í rannsókninni var í fyrsta sinn sýnt fram á
truflanir í kransæðaflæði hjá þessum hóp. I systolu
reyndist vera bakflæði í vinstri kransæð og í diastolu
var flæðið verulega aukið miðað við það sem er eðli-
legt. Eftir skurðaðgerð á ósæðarlokunni hvarf bak-
flæðið í systolu, og flæðið í diastolu færðist nær því
eðiilega.
Hjá börnum með hjartavöðvasjúkdóm (dilated
cardiomyopathy) reyndist flæði í vinstri kransæð auk-
ið í samanburði við frísk börn. Hins vegar var blóð-
flæði til vinstri slegils, miðað við þyngd hans, minnk-
að, sem gæti bent til að ónóg blóðflæði, sérstaklega
við áreynslu, eigi þátt í að viðhalda skertri starfsemi
vinstri slegils.
Börn með slagæðavíxlun (transposition of the
great arteries) eru meðhöndluð á nýburaskeiði með
aðgerð þar sem tengsl stóru æðanna og kransæðanna
eru leiðrétt. Mælingar voru framkvæmdar með inn-
anæðar-Doppler í hópi barna á aldrinum 4 til 11 ára
sem höfðu gengist undir slíka aðgerð. Reyndist flæði-
geta kransæða (coronary flow reserve) algerlega eðli-
leg, þ.e. bæði svörun við adenosini og nitroglycerini.
Síðasti hluti rannsóknanna byggðist á lambatil-
raunum. Flæðigeta kransæða í frískum nýfæddum
lömbum var mæld með innanæðar-Doppler. Flæði-
getan eftir adenosingjöf var nokkuð lægri en hjá eldri
einstaklingum og er hægt að nota niðurstöðurnar til
samanburðar við niðurstöður hjá nýburum með
hjartasjúkdóma. Einnig voru áhrif fósturköfnunar
(fetal asphyxia) á blóðflæði til hjarta og heila rann-
sökuð í rauntíma. Reyndist blóðflæðið til hjartans
mun betur og lengur varðveitt en blóðflæðið til heil-
ans.
Gylfi lauk prófi frá læknadeild Háskóla íslands
1987. Eftir störf á barnadeildum í Reykjavík 1988-
1990 stundaði hann framhaldsnám við barnadeild há-
skólasjúkrahúsins í Lundi og varð sérfræðingur í al-
mennum barnalækningum 1993. Stundaði sérfræði-
nám í barnahjartalækningum á sama stað og lauk því
í árslok 1995. Sérfræðingur við barnahjartaskor há-
skólasjúkrahússins í Lundi 1996-2000. Frá 2001 hefur
hann gegnt hlutastarfi sérfræðings á Barnaspítala
Hringsins ásamt störfum á eigin læknastofu í Reykja-
vík og hálfu starfi sem staðgengill yfirlæknis við
barnahjartaskor háskólasjúkrahússins í Lundi. Gylfi
er giftur Guðrúnu Sigmundsdóttur smitsjúkdóma-
lækni og eiga þau þrjú börn.
Gylfi Óskarsson.
Læknablaðið 2003/89 221