Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 7
RITSTJÚRNARGREIIUAR Læknablaðið í Medline Medline er gagnabanki alríkislæknisfræðibóka- safnsins (National Library of Medicine, NLM) í Bandaríkjunum yfir skráðar tímaritaívitnanir og útdrætti sem tekur til 4500 útgefinna blaða frá Bandaríkjunum og meira en 70 öðrum löndum. Hægt hefur verið að gera tölvuleit í gagnabankan- um frá árinu 1971 og nær hann þá til skráðra greina frá árinu 1966. Medline er hluti af PubMed gagnabanka alríkislæknisfræðibókasafnsins sem er aðgengilegur á netinu. Talið er að út séu gefin um 13.-14.000 tímarit í líf- og læknisfræði í heimin- um þannig að aðeins hluti þeirra er tekinn upp í Medline. Læknablaðið var áður fyrr skráð í Medline en féll út af skránni í kringum 1974. Síðan þá hefur nokkrum sinnum verið sótt um að blaðið yrði skráð aftur. Á síðasta ári var enn send umsókn, en sérstök valnefnd fjallar um umsóknir tímarita um að verða tekin upp í skráningu Medline. I þetta skipti var í umsókninni nákvæmlega skýrður ritrýnisferillinn, sagt frá hvernig ritstjórn vinnur með aðsent efni, hverjir sitja í ritstjórn og að hafðar séu í heiðri staðlaðar reglur alþjóðlegra læknatímarita (1, 2). Umsókninni fylgdu einnig nokkur tölublöð Læknablaðsins. Auk þess voru þrír íslenskir læknar, búsettir í Bandaríkjunum, fengnir til að skrifa stuðningsbréf með umsókninni til valnefndar bókasafnsins enda nefndarmönnum sá vandi á höndum að meta læknablað frá litlu málsvæði. Nú er skemmst frá því að segja að í febrúar síðastliðnum var fundur í valnefndinni sem féllst á að Læknablaðið yrði skráð í Medline ef blaðið gæti uppfyllt ákveðin tæknileg skilyrði sem miða að því að gera skráninguna nánast sjálf- virka. Að þessum skilaboðum fengnum var þegar í stað hafinn undirbúningur að því að leysa þessi tæknilegu atriði og nrun því Læknablaðið formlega birtast á Medline innan skamms. Efni blaðsins sem aðgengilegt verður á Medline eru frumrannsókn- argreinar, leiðarar, aðsend bréf til ritstjórnar og fræðileg innlegg en hér er átt við að hægt verður að leita í gagnagrunninum að höfundum, titlum, árgangi, númeri tölublaðs og blaðsíðum en hvað varðar frumgreinarnar verður einnig leitanlegt í útdráttum og lykilorðum, allt á ensku. Auk þessa mun alríkislæknisfræðibókasafnið gera mögulegt að hægt verði að tengjast beint af PubMed inn á vefútgáfu Læknablaðsins og ná þannig öllum texta ofannefndra greina, auk blaðsins í heild. Skráning blaðsins á Medline hefur rnikla þýð- ingu, ekki einungis fyrir blaðið heldur einnig fyrir eigendur þess, lækna og aðra þá sem í blaðið skrifa. Það tryggir enn víðtækari dreifingu hins fræðilega efnis og eykur hróður íslenskra lækna. Birt efni fær meira fræðilegt vægi en áður. Læknablaðið verður einnig fýsilegri birtingarvettvangur og aðsendum skrifum og greinum mun vafalítið fjölga. Vandi mun eðlilega fylgja vegsemdinni því þetta mun leiða til meira vinnuálags á ritstjórn og starfsmenn blaðsins. Eitt af því sem alríkislæknisfræðibóka- safnið óskaði sérstaklega eftir upplýsingum um var hvort Læknablaðið færi eftir stöðluðum reglum alþjóðlegra læknatímarita um framsetningu og rit- rýnisferil fræðigreina og þær verða því áfram hafð- ar að leiðarljósi. Þessar reglur fjalla meðal annars um auglýsingar í læknablöðum þar sem meðal annars er bent er á að þær megi ekki hafa áhrif á ákvarðanir ritstjórnar, að lesendum blaðanna skuli gert auðvelt að skilja á milli auglýsinga og leiðara- efnis, annað efni og auglýsingar megi ekki vera tengt og læknablöð skuli ekki auglýsa heilsuskað- legar vörur, svo sem tóbak. Á næstunni verða því leiðbeiningar til höfunda fræðilegra greina í Læknablaðið gerðar ítarlegri með frekari vísan til áðurnefndra reglna. Þar verður fjallað um hagsmunaárekstra og hvern- ig sagt skuli frá þeim um leið og efni er sent til blaðsins. Almennt trúnaðartraust ritrýnisferilsins og trúverðugleiki birtra greina hvílir meðal ann- ars á því hvernig tekið er á hagsmunaárekstrum þegar verið er að skrifa, ritrýna og taka ákvarðanir í ritstjórninni. Hagsmunaárekstrar eru til staðar þegar höfundur (eða stofnun/fyrirtæki höfundar), ritrýnir eða ritstjóri hefur fjárhagsleg eða per- sónuleg tengsl sem á óeðlilegan hátt hefur áhrif á (skekkir) viðbrögð viðkomandi. Þessi tengsl geta haft mismunandi þýðingu eða alit frá því að það sé hverfandi möguleiki að þau hafi áhrif yfir í það að vera mjög líkleg til þess að hafa áhrif á afstöðu og mat. Það er ekki svo að öll tengsl leiði til hagsmuna- árekstra. Hugsanlegir hagsmunaárekstrar geta verið til staðar hvort sem viðkomandi einstakling- ur telur að tengslin sem um er að ræða hafi áhrif á eigið vísindalegt mat/skoðun eða ekki. Fjárhagsleg tengsl, svo sem vegna ráðningar, ráðgjafar, hluta- bréfaeignar, þóknunar og sérfræðiálit sem greitt er fyrir, er það sem auðveldast er að þekkja sem hagsmunaárekstra og eru líklegust til þess að grafa undan trausti blaða, höfunda og sjálfum vísindun- um. Árekstar geta einnig orðið af öðrum ástæðum, svo sem einkasambanda, samkeppni innan há- skóla, trúarbragða og fleiri atriða. Við fögnum þeirri viðurkenningu sem skráning Læknablaðsins á Medline felur í sér. Vilhjálmur Rafnsson Höfundur er prófessor í heilbrigðisfræöi við læknadeild Háskóla íslands og ábyrgðarmaður Læknablaðsins. Heimildir 1. www.icmje.org 2. www.laeknabladid.is/ fragangur Læknablaðið 2005/91 403
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.