Læknablaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNAFUNDUR U
Formannafundur LÍ
Lyfjafyrirtækín eru engin skrímsli
- en hversu langt á að ganga í því að setja reglur um samskipti lækna við þau?
Það má segja að markaðsmál eða markaðsaf-
skipti lækna hafi verið í forgrunni á formannafundi
Læknafélags Islands sem haldinn var 15. apríl
síðastliðinn. Auk hefðbundinnar skýrslugjafar og
umfjöllunar um málefni Lífeyrissjóðs lækna var
haldið málþing þar sem rætt var annars vegar um
samskipti lækna og lyfjafyrirtækja og hins vegar
hvort læknum og öðrum heilbrigðisstéttum skuli
leyft að auglýsa starfsemi sína.
Sigurbjörn Sveinsson formaður hafði framsögu
um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja og ræddi um
samninginn sem í gildi er milli LÍ og lyfjafyrirtækja
um samskiptin. Hann kynnti einnig nýgerðan
samning norska læknafélagsins við lyfjaiðnaðinn
og plagg sem Evrópusamtök lækna og lyfjafram-
leiðenda hafa komið sér saman um. í máli hans
kom fram að samningur LI og lyfjafyrirtækjanna
rennur út um næstu áramót en framtíð hans er nú
til umræðu í stjórn LÍ. Á hann að vera óbreyttur
eða er rétt að taka inn í hann ný atriði?
Sigurbjörn reifaði nokkuð þau lagaákvæði sem
gilda um lækna í starfi, ekki síst sem opinbera
starfsmenn. Hann ítrekaði það sem hann hefur
áður sagt að ekki sé óeðlilegt að fólk velti því fyrir
sér hvort læknar geti tekið óvilhalla ákvörðun í
þágu sjúklings ef hún hefur áhrif á hag þriðja aðila
sem þeir hafa þegið eitthvað frá. Þessu hafi læknar
gert sér grein fyrir víða um lönd.
„í nýlegum samningi sem gerður var í Noregi
er vikið beint að þessum vanda. Þar er skilið á
milli þeirrar endurmenntunar sem læknar hafa
skuldbundið sig til að sinna og hinnar sem þeim er
frjálst að taka þátt í. Þá fyrrnefndu er bannað að
fjármagna með stuðningi þriðja aðila. Þessi regla
er raunar óskrifuð í Evrópu og Bandaríkjunum
og gildir um þá viðbótarmenntun sem læknar leita
eftir viðurkenningu á. Það er því alls staðar verið
að takast á við þessi mál,“ sagði hann.
Öll ný þekking er vel þegin
Sigurbjörn ræddi síðan nokkuð endurnýjun samn-
ingsins við lyfjafyrirtækin hér á landi og sagði að
áhugi lækna á því að gera slíkan samning byggðist
á því að þeir vilja varðveita trúnaðarsamband sitt
við sjúklinginn og samfélagið, þá tiltrú sem þeir
búa við. „Tilgangurinn með svona samningi er að
draga fram að þessi samskipti geta leitt til hags-
munaárekstra,“ sagði hann.
Svipmyndir afformanna-
fundi Ll. Hér að ofan
eru Hulda Hjartardóttir
og Sigríður Ólína Har-
aldsdóttir úr stjórn LÍ og
Tóntas Guðbjartsson en
að baki þeirn er Gunnar
Armannssonframkvcemda-
stjóri LÍ.
Hér til vinstri eru þœr
Birna Jónsdóttir gjald-
keri LÍog Margrét Georgs-
dóttir formaður Félags
kvenna í lœknastétt.
Sigurbjörn ræddi nokkuð um endurmenntun
lækna og hvernig hún skuli fjármögnuð. Þar sagði
hann mikilvægt að læknar gerðu þá kröfu til sam-
félagsins að það stæði straum af kostnaði við þá
endurmenntun sem læknum er skylt að sinna.
Opinber stuðningur við endurmenntun tryggði
betur jafnræði milli lækna því eins og allir vissu
væru sumir læknahópar vinsælli en aðrir í augum
lyfjafyrirtækja.
„En samskiptin við lyfjaiðnaðinn eru nauðsyn-
leg til þess að kynna læknum nýja þekkingu. Þau
hafa ekki þann tilgang að hamra á alþekktum stað-
reyndum, það er áróður og auglýsingamennska. Öll
ný þekking um ný lyf eða nýja notkun eldri lyfja er
vel þegin og hana á að setja fram í eðlilegu sam-
hengi við starfsvettvang lækna,“ sagði Sigurbjörn
og lagði til að komið yrði á fót samstarfsvettvangi
um framkvæmd samningsins, ekki til að refsa eða
áminna heldur til að ræða um það sem betur iná
fara í samskiptum lækna og lyfjafyrirlækja.
Þröstur
Haraldsson
Læknablaðið 2005/91 451