Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2005, Side 55

Læknablaðið - 15.05.2005, Side 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNAFUNDUR U Formannafundur LÍ Lyfjafyrirtækín eru engin skrímsli - en hversu langt á að ganga í því að setja reglur um samskipti lækna við þau? Það má segja að markaðsmál eða markaðsaf- skipti lækna hafi verið í forgrunni á formannafundi Læknafélags Islands sem haldinn var 15. apríl síðastliðinn. Auk hefðbundinnar skýrslugjafar og umfjöllunar um málefni Lífeyrissjóðs lækna var haldið málþing þar sem rætt var annars vegar um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja og hins vegar hvort læknum og öðrum heilbrigðisstéttum skuli leyft að auglýsa starfsemi sína. Sigurbjörn Sveinsson formaður hafði framsögu um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja og ræddi um samninginn sem í gildi er milli LÍ og lyfjafyrirtækja um samskiptin. Hann kynnti einnig nýgerðan samning norska læknafélagsins við lyfjaiðnaðinn og plagg sem Evrópusamtök lækna og lyfjafram- leiðenda hafa komið sér saman um. í máli hans kom fram að samningur LI og lyfjafyrirtækjanna rennur út um næstu áramót en framtíð hans er nú til umræðu í stjórn LÍ. Á hann að vera óbreyttur eða er rétt að taka inn í hann ný atriði? Sigurbjörn reifaði nokkuð þau lagaákvæði sem gilda um lækna í starfi, ekki síst sem opinbera starfsmenn. Hann ítrekaði það sem hann hefur áður sagt að ekki sé óeðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort læknar geti tekið óvilhalla ákvörðun í þágu sjúklings ef hún hefur áhrif á hag þriðja aðila sem þeir hafa þegið eitthvað frá. Þessu hafi læknar gert sér grein fyrir víða um lönd. „í nýlegum samningi sem gerður var í Noregi er vikið beint að þessum vanda. Þar er skilið á milli þeirrar endurmenntunar sem læknar hafa skuldbundið sig til að sinna og hinnar sem þeim er frjálst að taka þátt í. Þá fyrrnefndu er bannað að fjármagna með stuðningi þriðja aðila. Þessi regla er raunar óskrifuð í Evrópu og Bandaríkjunum og gildir um þá viðbótarmenntun sem læknar leita eftir viðurkenningu á. Það er því alls staðar verið að takast á við þessi mál,“ sagði hann. Öll ný þekking er vel þegin Sigurbjörn ræddi síðan nokkuð endurnýjun samn- ingsins við lyfjafyrirtækin hér á landi og sagði að áhugi lækna á því að gera slíkan samning byggðist á því að þeir vilja varðveita trúnaðarsamband sitt við sjúklinginn og samfélagið, þá tiltrú sem þeir búa við. „Tilgangurinn með svona samningi er að draga fram að þessi samskipti geta leitt til hags- munaárekstra,“ sagði hann. Svipmyndir afformanna- fundi Ll. Hér að ofan eru Hulda Hjartardóttir og Sigríður Ólína Har- aldsdóttir úr stjórn LÍ og Tóntas Guðbjartsson en að baki þeirn er Gunnar Armannssonframkvcemda- stjóri LÍ. Hér til vinstri eru þœr Birna Jónsdóttir gjald- keri LÍog Margrét Georgs- dóttir formaður Félags kvenna í lœknastétt. Sigurbjörn ræddi nokkuð um endurmenntun lækna og hvernig hún skuli fjármögnuð. Þar sagði hann mikilvægt að læknar gerðu þá kröfu til sam- félagsins að það stæði straum af kostnaði við þá endurmenntun sem læknum er skylt að sinna. Opinber stuðningur við endurmenntun tryggði betur jafnræði milli lækna því eins og allir vissu væru sumir læknahópar vinsælli en aðrir í augum lyfjafyrirtækja. „En samskiptin við lyfjaiðnaðinn eru nauðsyn- leg til þess að kynna læknum nýja þekkingu. Þau hafa ekki þann tilgang að hamra á alþekktum stað- reyndum, það er áróður og auglýsingamennska. Öll ný þekking um ný lyf eða nýja notkun eldri lyfja er vel þegin og hana á að setja fram í eðlilegu sam- hengi við starfsvettvang lækna,“ sagði Sigurbjörn og lagði til að komið yrði á fót samstarfsvettvangi um framkvæmd samningsins, ekki til að refsa eða áminna heldur til að ræða um það sem betur iná fara í samskiptum lækna og lyfjafyrirlækja. Þröstur Haraldsson Læknablaðið 2005/91 451

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.