Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 15

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 15
FRÆÐIGREINAR / OFVIRKNIRÖSKUN um. Fundist hefur stökkbreyting í þessu geni hjá fólki með ofvirkniröskun (37). Heildarniðurstaðan í þessari upptalningu er sú að þó erfðir tengdar dópamíni hafi mest verið rannsakaðar koma mörg boðefni við sögu. Genin sem rannsökuð hafa verið hafa sýnt auknar líkur á ofvirkniröskun með hlutfallslíkum (odds ratio) á bilinu 1,2-1,5 (24). Þessar lágu hlutfallslíkur benda til þess að mörg gen þurfi að koma saman til að valda röskuninni. Reykingar á meðgöngu. Reykingar móður á meðgöngu virðast vera áhættuþáttur fyrir ofvirkni- röskun. Til dæmis hafa niðurstöður rannsókna sýnt að um 2,1-2,7 sinnum meiri líkur eru á því að barn móður sem reykir á meðgöngu greinist með ofvirkniröskun en ef móðirin reykir ekki á með- göngunni (38, 39). Aukningin er marktæk og hún helst, þó leiðrétt sé fyrir félagslegum þáttum (soc- ioeconomic status), greindarfari foreldra og of- virkniröskun foreldra (40). Niðurstaðan í nýlegri yfirlitsgrein var að reykingar móður á meðgöngu auka líkur á að barnið greinist með ofvirknirösk- un. Sumar rannsóknir sýndu auknar líkur eftir því sem reykingarnar voru meiri (41). Áfengisnotkun á meðgöngu. Áfengisnotkun á meðgöngu skilgreind sem dagleg drykkja eða túradrykkja hefur sýnt 2,5 falda hækkun á tíðni ofvirkniröskunar hjá barni (39). Einnig hefur áfengisnotkun á meðgöngu verið marktækt tengd einbeitingarerfiðleikum og minnistruflunum barns- ins í réttu hlutfalli við innbyrt magn áfengis á með- göngunni (42). í þessu sambandi má nefna að allt að 73% einstaklinga sem eru með alkóhól heilkenni fósturs uppfylla greininguna athyglisbrest með ofvirkni (44). Rannsóknir hafa þó ekki sýnt með óyggjandi hætti að áfengisneysla sé orsakaþáttur fyrir ofvirkniröskun. Ein afturvirk rannsókn (43) sýndi að þau tengsl sem komu fram milli ofvirkni- röskunar og áfengisneyslu á meðgöngu (og reyndar reykinga) hurfu þegar leiðrétt var fyrir öðrum þátt- urn svo sem alkóhólisma í fjölskyldu. Lág fæðingarþyngd og lengd meðgöngu. Vegna framfara á sviði fæðinga- og barnalækninga halda fleiri og smærri fyrirburar lífi en áður, en fyrirburar eru í áhættuhópi varðandi ofvirkniröskun. Börn fædd fyrir 37. viku meðgöngu eru 2,6 sinnum líklegri til að greinast með ofvirkniröskun en önnur börn (45). Varðandi fæðingarþyngd eru börn með of- virkniröskun um þrisvar sinnum líklegri til að hafa fæðst undir 2500 grömmum en önnur börn (46). Það virðist sem líkurnar séu meiri ef barnið vegur rninna en 1500 grömm (47) og þannig voru börn með mjög lága fæðingarþyngd um fjórum sinnum líklegri til að greinast með ofvirkniröskun en önnur börn (48). í einni rannsókn þar sem skoðuð voru 87 börn með fæðingarþyngd undir 1000 grömmum voru 24% með ofvirkniröskun. Af þessum léttburum voru áhættuþættir í fæðingu ekki tíðari hjá þeim börnum sem voru greind með ofvirkniröskun fyrir utan að sá hópur hafði aukna tíðni af blæðingu í heilaholi (intraventricular blæðingu) (49). Fæðingaráverki. Ein tilgátan um tengsl fæðing- aráverka og ofvirkniröskunar er að barnið verði fyrir súrefnisskorti sem síðan valdi truflunum á starfsemi dópamínkerfa í heila (21). Þannig hafa sést tengsl við ofvirkniröskun ef barnið hefur þurft öndunarhjálp með belg strax eftir fæðingu og einn- ig ef einnar mínútu Apgar er 6 eða lægri eða ef fimm mínútna Apgar er 8 eða lægri (50). Mæður barna með ofvirkniröskun lýstu álagseinkennum hjá fóstri (fetal distress) í 17% fæðinga en mæður annara barna lýstu því sama í 8% fæðinga. Löng fæðing, 13 klukkustundir eða meira, var einnig áhættuþáttur í sömu rannsókn (51). Ekki hafa allar rannsóknir sýnt tengsl ofvirkniröskunar og fæðing- aráverka (21). Aðrir þættir Aldur móður Sumar rannsóknir sýna aukningu í tíðni ofvirkniröskunar eftir því sem móðir er yngri við fæðingu barns (51). Tilvísanir á meðferð- arstofnanir vegna ofvirkni eru algengari í þeim tilfellum sem móðir hefur verið undir 25 ára við fæðingu barnsins (50). Obirtar íslenskar niður- stöður sýna auknar líkur á að ungar mæður eignist ofvirk börn (51). Erfðasjúkdómar og fleira Ofvirkniröskun er al- gengari hjá fólki með ýmsa erfðasjúkdóma eins og Velofacial heilkenni og fragile-X heilkenni (53). Þessi heilkenni eru þó það sjaldgæf að ekki er talið réttlætanlegt að skimað sé fyrir þeim hjá börnum með ofvirkniröskun (53). Phenylketonurea og enc- ephalopathia hafa verið nefnd sem orsakaþættir (54). Fíkniefnanotkun á meðgöngu Auknar líkur eru á ofvirkniröskun hjá börnum mæðra sem eru virkir heróínfíklar á meðgöngu (55). Þau börn sem höfðu alist upp hjá mæðrum sínum voru með aukna tíðni ofvirkniröskunar miðað við þau börn sem voru ætt- leidd og bendir þetta til umhverfisáhrifa. Margar mæðranna reyktu einnig tóbak og höfðu sjálfar ofvirknieinkenni sem gætu skekkt þessa niður- stöðu. Þá hefur ofvirkniröskun einnig verið tengd kókaínneyslu mæðra á meðgöngu, sérstaklega þegar mótþróaþrjóskuröskun eða hegðunarröskun greinast sem fylgiraskanir ofvirkninnar (56). Læknablaðið 2005/91 411
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.