Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2005, Page 22

Læknablaðið - 15.05.2005, Page 22
FRÆÐIGREINAR / LÍ F FÆ R AG J A FI R 527 sjúklingar létust á gjörgæslu- deild í Fossvogi 1992-2002 68 greindir látnir samkvæmt skilmerkjum um heiladauða (13% látinna) Orsök andláts við heiladauöa Heilablæöing 43% Höfuöáverki - umferóarslys 42% - fall 33% - annaö 25% 37% Heilablóöfall 9% Hjartastopp 9% Hár innankúpu- þrýstingur 3% Aðstandendur spurðir um leyfi til líffæratöku í 50 tilvikum (74% látinna samkvæmt skilmerkjum um heiladauða) Leyfi veitt í 30 tilvikum (60% sem leyfis var leitað hjá) Meginorsök andláts á gjörgæslu 1992-2002 Hjarta 43% Heili 16% Sýking/bólga 15% Slys 13% Æóakerfi 7% Lungu 5% Meltingarfceri 2% 18 sem hugsanlega hefðu getað orðið líffæra- gjafar (3% látinna) Ekki sótt um leyfi í 18 tilvikum (26% látinna samkvæmt skilmerkjum um heiladauða) Ekki gefið leyfi í 20 tilvikum (40% sem leyfis var leitað hjá) Líffæri tekin hjá 26 (38% látinna 4 reyndust ekki hæfir samkvæmt skilmerkjum um heiladauða) líffæragjafar Mynd 1. Yfirlit yfir tii- högurt við líffœragjafir á gjörgœsludeild í Fossvogi 1992-2002. færabilun síðar (2) er talið æskilegast að sem flest líffæri komi frá látnum einstaklingum (3, 4). Vegna skorts á líffærum hefur þó verið talið siðferðislega réttlætanlegt að leita til lifandi líffæragjafa til að bjarga lífi alvarlegra veikra sjúklinga, til að bæta árangur líffæraígræðslunnar og til að stytta biðlista eftir líffærum (5). Nær undantekningarlaust er um að ræða einstaklinga sem eru tengdir sjúklingnum ættar- eða vinaböndum. Árið 1991 tóku gildi lög á íslandi um skilgrein- ingu á heiladauða (6) og brottnám líffæra (7) sem gerðu landsmönnum kleift að verða líffæragjafar eftir andlát sitt, væru þeir skilgreindir látnir sam- kvæmt skilgreiningu um heiladauða (6). Frarn að þeim tíma höfðu íslendingar þegið nálíffæri frá öðrum þjóðum án þess að leggja nokkuð til sjálfir. Svo hægt sé að nema brott líffæri úr einstaklingi sem skilgreindur hefur verið heiladáinn þarf að liggja fyrir samþykki hans, en ef því er ekki til að dreifa þarf að leita samþykkis nánasta aðstandanda (7) sent þarf þá að gera sér í hugarlund afstöðu hins látna, Heiladauði hefur verið skilgreindur sem óaft- urkræf stöðvun á allri starfsemi heila og heilastofns. Heiladauði er lokastig skemmda á heilavef sem orsaka svo háan þrýsting inni í höfuðkúpu að blóð- flæði til heilans og heilastofns hættir. Algengustu orsakir fyrir þessu eru sjúkdómar í heilaæðum (heilablæðing eða heilablóðfall), áverkar á höfði vegna slysa og almennur súrefnisskortur í heila vegna truflunar á öndun eða hjartslætti (8). Þetta ástand, heiladauði, birtist fyrir um 40 árum við þróun gjörgæslumeðferðar, þegar hægt var að viðhalda öndun með stuðningi véla. Heiladauði getur komið fram á nokkrum klukkustundum eða dögum, allt eftir alvarleika upphaflegu skemmd- anna og svörun við meðferð. Einstaklingur sem er skilgreindur heiladáinn er látinn samkvæmt lækn- isfræðilegum og lagalegum skilningi en öndun og jafnvel blóðrás má viðhalda með vélum þannig að önnur líffæri fá nægt súrefni (9). Islendingar voru frá árinu 1972 þiggjandi aðilar hjá norrænu ígræðslustofnuninni Scandiatransplant. Með lagasetningunni 1991 gátu íslendingar farið að leggja sitt af mörkum til samstarfsins með líf- færagjöfum. Árið 1992 var gerður samningur við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg um ígræðslu nálíffæra og brottnám ígræðslulíffæra. Fyrsta líf- færatakan varð svo árið 1993. Frá 1997 hefur verið slíkur samningur verið í gildi við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn (10). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna til- högun við líffæragjafir á gjörgæsludeild í Fossvogi fyrsta áratuginn eftir að þessi starfsemi hófst (á tímabilinu sem litið er til hefur gjörgæsludeildin í Fossvogi tilheyrt Borgarspítalanum 1992-1994, Sjúkrahúsi Reykjavíkur 1995-2000 og Landspítala eftir það). Einnig var markmiðið að athuga hversu margir líffæragjafar hefðu verið á landinu öllu á tímabilinu og þörf íslendinga fyrir líffæri. Aðferðir Að fengnu leyfi siðanefndar Landspítala og Per- sónuverndar var farið yfir gögn allra sem létust á gjörgæsludeild í Fossvogi á tímabilinu 1992-2002. Leitað var eftir dánarorsök, fjölda þeirra sem úrskurðaðir voru látnir samkvæmt skilmerkjum um heiladauða, tilvikum þar sem farið var fram á líffæragjöf og hversu margir urðu líffæragjafar. Einnig var kannaður fjöldi þeirra sem hugsanlega hefðu getað orðið líffæragjafar en urðu ekki. Þá var upplýsinga aflað unt líffæragjafa á öðrum deildum/sjúkrahúsum á landinu. Leitað var til líffæraflutninganefndar heilbrigðis- °g tryggingamálaráðuneytis um upplýsingar um hve margir íslendingar höfðu verið á biðlistum eftir líf- færum og hversu margir þáðu líffæri á tímabilinu. Niðurstöður eru sýndar sem fjöldi, hlutfall af fjölda og miðgildi ásamt fyrsta og þriðja fjórðungi (25. og 75. hundraðsmarki). 418 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.