Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 53

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ / LE Y FISVEITI N G AR hagsmuni í viðhaldsmenntun einstakra lækna. Það er eðlilegt og eftirsóknarvert, að læknar séu upp- lýstir um nýja þekkingu í sambandi við greiningu og meðferð og að þeirri þekkingu sé komið á fram- færi í eðlilegum tengslum við starfsvettvang þeirra. Það er jafn eðlilegt að látið sé alveg af síbylju um gamla þekkingu eða markaðsörvandi fyrirgreiðslu, sem hefur enga skírskotun til hinnar mikilvægu viðhaldsmenntunar læknisins. Það er og mín skoðun, að í endurnýjuðum samn- ingi við lyfjahóp Samtaka verslunarinnar eigi að vera ákvæði um samráðsvettvang um framkvæmd hans en á það hefur skort að mínu mati í þeim samningi, sem nú er starfað eftir. Veitíng lækna- og sérfræðileyfa endurskoðuð Nú er að hefjast endurskoðun á reglugerð um veitingu læknaleyfa og sérfræðileyfa en heilbrigðis- ráðherra skipaði fyrir skömmu nefnd til þess starfs að tilhlutan LÍ og læknadeildar Háskóla íslands. Gildandi reglugerð er frá 1997 en byggð að veru- legu leyti á leiðbeiningum sem Evrópusambandið gaf út árið 1993. Síðan hafa orðið miklar breytingar, ekki síst vegna stækkunar hins sameiginlega vinnu- markaðar til austurs í kjölfar aðildar 10 nýrra ríkja í Austur- og Mið-Evrópu að ESB. Reglugerðin frá 1997 tekur fyrst og fremst mið af því að íslenskir læknar sæki um leyfi til starfa hér á landi. Nú er hins vegar svo komið að 40% umsókna eru frá erlendum ríkisborgunum sem ekki hafa hlotið sérfræðileyfi í landinu þar sem þeir öfluðu sér framhaldsmenntunar. Flestir hafa þessi læknar verið frá Norðurlöndum, einkum Noregi, en nýlega hafa breskir læknar sótt hingað. Ástæðan fyrir þessum umsóknum er sú að reglu- gerðin veitir læknum möguleika á að fá viðurkennd sérfræðiréttindi án þess að uppfylla skilyrði heima- landsins. Til dæmis þurfa bæklunarlæknar í Noregi að Ijúka hálfsárs námi í heila- og taugaskurðlækn- ingum en færri komast í það nám en vilja. Hér á landi er ekki gerð krafa um þetta nám og þetta hefur greinilega kvisast út meðal norskra bæklunarlækna sem sótt hafa um hér á landi. Sömu sögu er að segja af breskum læknum sem sótt hafa um viðurkenn- ingu hér á landi án þess að uppfylla breskar kröfur um framhaldsnám eða hafa lokið sérfræðiprófi. Á sama tíma hefur orðið æ erfiðara að sann- reyna eðli náms í öðrum löndum, ekki síst þar sem íslendingar þekkja lítið til. Þetta eykur hættuna á að einhverjum verði veitt sérfræðileyfi án þess að viðkomandi hafi til þess fullnægjandi menntun og reynslu. Nú er sú skipan á leyfisveitingum að þriggja manna ráðherraskipuð nefnd fer yfir allar umsóknir um sérfræðileyfi. Formaður hennar er Helgi Jóns- son gigtarlæknir sem tilnefndur er af læknadeild HÍ en Óskar Einarsson er tilnefndur af LÍ. Þriðji nefndarmaðurinn er breytilegur og jafnan í forsvari þeirrar sérgreinar sem umsóknin snertir. Nefndar- menn hafa bent á þann vanda sem upp er kominn og varað við því að íslensk sérfræðiviðurkenning verði gengisfelld. Sjö menn eiga sæti í nefndinni sem á að endurskoða reglugerðina. Formaður er Sólveig Guðmundsdóttir yfirlögfræðingur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Sveinn Magnússon skrifstofustjóri, Guðrún W. Jensdóttir og Margrét Erlendsdóttir deildarstjórar í ráðuneytinu, Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir, Ólafur Baldursson fyrir læknadeild HÍ og Óskar Einarsson tilnefndur af LÍ. Óskar Einarsson segir í spjalli við Læknablað- ið að hann telji rétt að erlendir læknar þyrftu að afla sér sérfræðiviðurkenningar í námslandinu og framvísuðu því til staðfestingar hér á landi. Það sem þvældi málið væri hins vegar hversu misjafnar kröfur væru gerðar í Evrópu, bæði til sérfræðiviður- kenningar og til kunnáttu lækna í máli þess lands sem þeir hygðust starfa í. Hugmyndir væru þó á lofti innan Evrópusamtaka sérfræðilækna (UEMS) um samræmdar marklýsingar fyrir sérfræðinám og sam- eiginleg sérfræðipróf, „European Board“ og gæti það kerfi líkst hinu bandaríska sem þykir ágætt. Óskar bætti því við að einnig þyrfti að endur- skoða það kerfi sem haft er á eftirlili með fram- haldsnámi lækna sem fram fer hér á landi. I reglu- gerðinni frá 1997 er kveðið á um að þriggja lækna nefnd leggi reglulega mat á gæði námsins og skili um það skýrslum til læknadeildar og ráðherra. Þetta hefur ekki komist til framkvæmda og því er nauð- synlegt að endurskoða einnig þennan þátt reglu- gerðarinnar. Þröstur Haraldsson Læknablaðið 2005/91 449
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.