Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 56

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNAFUNDUR LÍ Þrýstingurinn hefur áhrif Að framsögu formannsins lokinni urðu nokkrar umræður. Þar kom í ljós að sumum fundarmanna þótti sú umræða sem fram hefur farið í fjölmiðl- um og á alþingi hafa verið fremur einlit. Eins og gengur voru menn ekki sammála í öllum atriðum og þótti sumum gildandi samningur nógu góður meðan aðrir vildu skerpa á ákvæðum hans. Þeir sem töldu samninginn nægjanlegan bentu á að lög landsins og Codex Ethicus tækju við þar sem honum sleppti. Óráðlegt væri að setja svo strangar reglur að menn færu ekki eftir þeim. Betra væri að treysta læknum til að gæta heiðurs stéttarinnar sjálfir. Læknar hefðu vissulega þörf fyrir samskipti við lyfjafyrirtækin en þau hefðu miklu meiri þörf fyrir samkeppni við lækna. Á hinn bóginn var bent á að norrænir læknar færu enn eftir reglunum þótt þær hefðu verið hertar. Fram kom að á Norðurlöndum væru menn komnir í vandræði með sum læknaþing því það vantaði peninga til að halda þau. í Svíþjóð er í gangi dómsmál gegn nokkrum læknum fyrir meinta mútuþægni og sænskir læknar gættu þess mjög vel að halda sig fjarri öllu því sem lyktar af lyfjaiðnaðinum. Landlæknir blandaði sér í þessa umræðu og varaði við því að menn gerðu lyfjafyrirtækin að einhverju skrímsli. Menn yrðu þó að vera á varð- bergi því rannsóknir sýndu að samskipti lækna og lyfjafyrirtækja hefðu áhrif á lyfjaávísanir lækna. Það væri hollt að setja sig í spor sjúklings sem velti því fyrir sér hvers vegna læknirinn væru einmitt að gefa honum tiltekið lyf og hvort þrýstingur frá lyfjafyrirtæki hefði komið þar við sögu. Hann sagði að boltinn væri á vallarhelmingi lækna, meira að segja rétt upp við marklínuna. Á hinn bóginn taldi hann ekki rétt að grípa til refsinga en læknar þyrftu að vera vakandi í umræðunni um þessi samskipti. Eins og margoft hefur verið sagt þá er ekkert til sem heitir ókeypis málsverður. Hver er munurinn á auglýsingu og upplýsingu? Umræður á formannafundi um hvort rétt sé að afnema bann á auglýsingum heilbrigðisstétta Sigríður Dóra Magnús- dóttir heilsugœslulœknir á Seltjarnarnesi, Ólafur Hergill Oddsson heimil- islœknir á Akureyri og Óskar Einarsson formað■ ttr LR. Að loknum umræðum um samskipti lækna og lyfja- fyrirtækja var tekið til við að ræða hvort læknar og aðrar heilbrigðisstéttir og jafnvel heilbrigðis- stofnanir eigi að fá leyfi til að auglýsa starfsemi sína og þjónustu. Tilefni umræðunnar var tillaga til þingsályktunar sem þingmaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson hefur lagt fram á alþingi og var hann mættur til að úlskýra mál sitt. Ágúst rakti þær reglur sem gilda um auglýsing- ar heilbrigðisstétta en þær eru afar þröngar hér á landi. Meginreglan væri sú að læknir mætti ein- ungis auglýsa með efnislegum og látlausum hætti þrívegis ef hann hefur störf eða ef breyting verður á starfsemi hans eða viðtalstíma. Þetta er tilgreint í læknalögum en í lögum og reglum um aðrar heil- brigðisstéttir er oft vísað til þessa ákvæðis í lækna- lögum. Auk þess væru í siðareglum ýmissa stétta ákvæði sem takmarka svigrúm viðkomandi stéttar til auglýsinga. Þetta taldi hann vera í ósamræmi við þróun þjóðfélagsins þar sem auglýsingar og önnur upp- lýsingagjöf léki æ stærra hlutverk í leit fólks að þjónustu. Tilkoma netsins hefði líka breytt miklu enda væru margir heilbrigðisstarfsmenn og stofn- anir nú komnir með heimasíður þar sem þeir veittu upplýsingar um það sem þar er í boði. „Með auglýsingabanninu er hins vegar komið í veg fyrir að heilbrigðisstéttir og -stofnanir geti kynnt þjónustu sína almenningi með fullnægjandi hætti. Svo virðist sem sjúklingar verði að treysta á umtal eða ímynd þegar þeir velja sér heilbrigðis- þjónustu," sagði þingmaðurinn. Hann nefndi dæmi af tannlæknum, lýtalæknum, augnlæknum og fleirí stéttum sem bjóða þjónustu sína í samkeppnisum- hverfi en gætu ekki auglýsl hana. 452 Læknahlaðið 2005/91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.