Læknablaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNAFUNDUR LÍ
lagi, heldur ekki einkarekstri í heilbrigðisþjónustu
eða netvæðingarinnar.
Hann vísaði til laga um réttindi sjúklinga þar
sem þeim væri tryggður réttur á upplýsingum. Þar
kvaðst hann kominn að kjarna málsins sem væri
spurningin hvort auglýsing væri það sama og upp-
lýsing. Markmið auglýsingar væri ekki að koma á
framfæri óvilhöllum upplýsingum heldur tiltekn-
um upplýsingum um ákveðna vöru eða þjónustu
sem geta orðið til að auka sölu á henni.
í framhaldi af þessu vitnaði landlæknir til
ákvæðis stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi sem
væri bannað að skerða með örfáum undantekn-
ingum. Spurningin væri þá hvort ekki væri verið
að vernda fólk gegn blekkingum með því að banna
auglýsingar.
í lokin sagði landlæknir að hann teldi gildandi
lög og reglur of þröng. Læknar þyrftu að hafa
meira svigrúm til að veita upplýsingar um starf-
semi sína. Upplýsingar þeirra þyrftu þó að vera
faglegar, látlausar og fjalla um það sem læknar
geta gert, hver árangurinn er af meðferð lækna, vel
að merkja gagnreyndur, hvaða ábendingar eru og
hvaða hættur geta fylgt því sem læknar gera.
Það þarf líka að setja mörk sem taka mið af
virðingu fagsins. „Viljum við heilsíðuauglýsingar í
dagblöðum frá Galdralæknar Group eða frásagnir
af kraftaverkum lækna að hætti Séð og heyrt? Nei,
varla,“ sagði landlæknir. Hann sagði að læknar
þyrftu að ræða þessi mál og móta reglur sem gerðu
greinarmun á auglýsingum og upplýsingum.
Codex í endurskoðun
í umræðunum urðu margir til að þakka Ágústi
Ólafi fyrir að eiga frumkvæði að umræðu um aug-
lýsingar heilbrigðisstétta. Ekki voru þó allir sam-
mála niðurstöðum hans og bentu margir á muninn
á auglýsingum og upplýsingum. Jón Snædal for-
maður siðfræðiráðs LI greindi frá endurskoðun á
Codex sem nú er langt komin og verður á dagskrá
aðalfundar í haust en þar væri meðal annars tekið
á reglum sem snertu upplýsingagjöf lækna.
- Umræðan er rétt að hefjast, sagði Sigurbjörn
formaður á fundinum og væntanlega á eftir að
heyrast meira um það hvort rétt sé að afnema aug-
lýsingabann á heilbrigðisstéttum.
KB ATVINNULÍF
Pantaðu ráðgjöf á kbbanki.is eöa
komdu við í næsta útibúi KB banka.
Sérsniöin þjónusta fyrir lítil og meöalstórfyrirtæki
KB banki býður rekstraraðilum smærri og meðalstórra fyrirtækja
persónulega, faglega og skjóta þjónustu í fjármálum,
hvort heldur er á sviði rekstrar eða einkafjármála.
www.kbbanki.is
II
K B BANKI
- kraftur til þín!