Læknablaðið - 15.05.2005, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / EVRÓPSKT SAMSTARF
Verða samtök evrópskra lækna sameinuð?
- Myndi auka áhrif smærri félaga, segir Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ
í byrjun apríl var haldinn fundur í Brussel á
vegum fastanefndar evrópskra lækna - CPME
- þar sem rætt var um skipulagsmál evrópsku
læknasamtakanna. Nú eru starfandi níu slík sam-
tök en þær raddir hafa orðið æ háværari sem spyrja
hvort þörf sé á öllum þessum samtökum og hvort
rödd evrópskra lækna væri ekki styrkari ef hún
hljómaði úr einum stað.
Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknafélags
íslands sat fundinn og sagði í spjalli við
Læknablaðið að þessi umræða væri á byrjunarstigi.
„Mér heyrðist samt tónninn í fulltrúum landsfé-
laganna vera sá að rétt væri að þau sameinuðust í
einu stóru læknafélagi. Menn voru hins vegar ekki
á einu máli um hvað ætti að taka við. Sumir töldu
rétt að breyta CPME og veita því sterkara umboð
til að tala máli evrópskra lækna en aðrir vildu
stofna nýtt félag. Ég hallast að fyrrnefnda kostin-
um því þeim síðarnefnda fylgir sú hætta að gömlu
félögin lifi áfram einhvers konar draugatilveru og
flækist fyrir nýju samtökunum," sagði Sigurbjörn.
Mörg og misjöfn samtök
Samtökin níu sem nú starfa eru afar misjöfn.
Islenskir læknar eiga aðild að fjórum þeirra: LI
starfar innan CPME, UEMO sem eru samtök
heimilislækna og UEMS sem eru samtök annarra
sérfræðinga. Pá starfar Félag ungra lækna innan
PWG sem eru samtök evrópskra unglækna. Auk
þessara fjögurra eru sérhæfðari samtök lækna
sem sinna gæðamálum, siðamálum, fjármögnun
heilbrigðisþjónustu og svo framvegis.
Rökin fyrir því að sameina evrópska lækna
í eitt félag voru þau helst að með því eignuðust
þeir sterkari rödd, kostnaðurinn við þátttöku í
evrópsku samstarfi minnkaði, fundum fækkaði
og minna yrði um tvíverknað sem óhjákvæmilega
er talsvert um í núverandi fyrirkomulagi. Ymsar
spurningar vakna þó við slíka sameiningu, svo sem
hver ætti að sinna hagsmunamálum einstakra hópa
lækna og einnig hvert umboð slfkra samtaka yrði.
„Með því að hafa eitt félag fylgir sú skylda að
menn nái lýðræðislegri niðurstöðu um það sem
þessi sterka rödd segir. Mér fannst á fundinum að
fulltrúar landsfélaganna væru flestir fylgjandi einu
öflugu félagi en fulltrúar þeirra samtaka sem nú
starfa væru heldur letjandi. Það er í sjálfu sér skilj-
anlegt en á endanum verður það á valdi landsfélag-
anna að taka þessa ákvörðun,“ sagði Sigurbjörn.
LÍ úr UEMO og UEMS?
CPME ætlar að eiga frumkvæði að því að kanna
hug læknafélaganna til sameiningar og verða send-
ir út spurningalistar til félaganna í byrjun næsta
árs. Sigurbjörn sagði að þetta væri ferli sem gæti
tekið einhver misseri. Hann sat undir umræðum og
mótaði í huga sér ákveðnar tillögur sem hann ætlar
að leggja fyrir félagsmenn LÍ.
„Ég tel að til greina komi að LÍ ákveði línur
fyrir þetta samstarf á næsta aðalfundi. Þar gæti ég
hugsað mér að yrði samþykkt að við héldum áfram
að starfa innan CPME, auk Norræna læknaráðsins
og Alþjóðafélags lækna, en að aðild að UEMO
og UEMS Ijúki í lok ársins 2006. Ég er á því að
sameining myndi styrkja stöðu smærri félaga eins
og LI. Hingað til höfum við ekki getað sent nema
einn eða tvo menn á hvern fund sem þýðir að þeir
geta ekki tekið þátt í öllum umræðum sem oft fara
fram á mörgum fundum samtímis. Með samein-
ingu gætum við sent fleiri fulltrúa og verið virkari
á fundunum. Það myndi auka áhrif okkar innan
samtakanna.
Tillaga mín hefur þann annmarka að UEMS
hefur verið virkt í símenntunarmálum þar sem við
eigum margt óunnið. Aðildin hefur þó ekki skilað
okkur miklu á því sviði en að þessu þarf að huga
þegar afstaða er tekin. Ég veit að þetta er ögrandi
tillaga en hún er hvatning til þess að menn ræði
kost og löst á evrópsku samstarfi og hvernig því
verður best háttað,“ sagði Sigurbjörn Sveinsson
formaður LI.
Þröstur
Haraldsson
Læknablaðid 2005/91 455