Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2005, Qupperneq 71

Læknablaðið - 15.05.2005, Qupperneq 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNABLAÐIÐ Karl Andersen (lil vinstri) og Hannes Petersen áfundinum í Reykholti. Jóhannes Björnsson í afmœlishófi blaðsins í nóvember 2004. Védís Skarphéðinsdóttir, Vilhjálmur Rafnsson og Brynja Bjarkadóttir. stærsti gagnagrunnurinn í líf- og lækn- isfræði, svo miklu munar. NLM gaf út prentútgáfu, Index Medicus, sem margir kannast við, frá 1879 til ársloka 2004. Frá og nteð síðustu áramótum er aðgengið eingöngu rafrænt. fíver er staðan varðandi innihald vís- indagreina? Sé grein inni á Medline er þá tryggt að hún sé innihaldslega „rétt“? Medline tekur enga ábyrgð á trúverð- ugleika innihalds vísindagreina í gagna- grunninum. Við kynntumst því engu að síður í umsóknarferlinu að NLM reynir til hins ítrasta að tryggja vísindaleg gæði þeirra fræðirita sem hleypt er inn í gagnagrunninn. Það var gert með því að krefjast nákvæmra greinargerða um inntak birtra greina, allt ritstjórnarferlið, þar með talin ritrýni, menntun og vísinda- bakgrunn ritstjórnar og svo framvegis. Ekkert af þessu getur þó tryggt rétt og heiðarleg vinnubrögð rannsakenda, eins og fræg dæmi frá þekktum vísindaritum sanna. Hvað telur þú að Itaft vegið þyngst við inngönguna í Medline núna? Ég held að sú vinna sem við lögðurn í umsóknarferlið hafi skipt mestu máli. Við gáfum eins ítarlegar og nákvæmar upplýsingar um inntak vísindagreina í Læknablaðinu og við gátum, sömuleiðis um allt ritrýni- og ritstjórnarferlið. Það sem helst stóð í NLM var smæð mál- svæðis íslenskunnar. Ég held að þarna hafi tvennt hjálpað til, annars vegar sú staðreynd að ágrip innsendra greina eru undantekningarlítið ítarleg og skrifuð á góðri ensku og eins hilt, að við fengum til liðs við okkur íslenska vísindamenn í Vesturálfu, sem allir starfa við þekktar háskólastofnanir, til þess að leggja fram ítarlegar greinargerðir um Læknablaðið. Mér er kunnugt unr að NLM átti síðan í bréfaskriftum við þá með tilteknar spurningar um blaðið, þannig að oft var um smáatriði að ræða. Sérðu í hendi þér breytingar á blað- inu í kjölfar Medline-inngöngu? Hverjtt breytir þetta fyrir lesendur, höfunda, rit- rýna, LÍ? Mér finnst ekki ólíklegt að viðhorf lesenda Læknablaðsins breytist þegar ljóst er að við höfum smogið í gegnum þetta nálarauga. Fram til þessa hefur inntak greina nánast ekkert borist út fyrir íslenskt málsamfélag. Það mun nú breytast þótt vafalaust fari hægt. Ég held líka að þessi áfangi verði hvatn- ing fyrir íslenska vísindamenn að birta oftar en áður frumsamdar greinar í Læknablaðinu. Jafnframt aukast gæða- og nákvæmnikröfur til höfunda og ekki síst ritrýna og ritstjórnar. Framvegis verðum við líklega að fá að minnsta kosti tvo ritrýna urn hverja frumsanrda grein. Ég held að við getum öll verið stolt af þessum áfanga, sérstaklega þegar þess er gætt hversu lítið málsamfélagið er. 1. Rafnsson V. Læknablaðið í Medline. Læknablaðið 2005; 91:403. Læknablaðjð 2005/91 467
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.