Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 77

Læknablaðið - 15.05.2005, Síða 77
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 45 Faraldsfræði í dag Mælingar á gæðum í síðasta pistli var fjallað um gæðavísa almennt og notkun þeirra til gæðaþróunar. Nú tökum við upp þráðinn þar sem frá var horfið og ræðum um nokk- ur praktísk atriði er varða gæðavísa. I fyrsta lagi ræðum við urn helstu flokka gæðavísa. í öðru lagi ræðum við um mælikvarða og mælitæki sem grund- völl gæðavísa og sláum svo botninn í þessa umfjöll- un um gæðavísa með því að fara yfir þá eiginleika er einkenna góðan gæðavísi eða mælikvarða. Gæðavísar eru stundum flokkaðar eftir því hversu stóran hluta heilbrigðisþjónustu þeir endur- spegla. Pá er talað annars vegar um altæka (e. glo- bal) gæðavísa en hins vegar um sértæka (e. specific) gæðavísa. Altækir gæðavísar eiga að endurspegla gæði almennrar heilbrigðisþjónustu, dæmi um slíka gæðavísa er til dæmis meðalævilengd. Sértækir gæðavísar, svo sem tíðni sýkinga í skurðsári eftir lið- skipti eða dánartíðni eftir hjáveituaðgerð, taka hins vegar til gæða tiltekinnar þjónustu eða þjónustu vegna tiltekins sjúkdómsástands. Eins og þegar hefur komið fram eru svokallaðir velgengnisþættir (critical success factors) gjarnan valdir sem gæðavísar út frá hugmyndafræði stefnu- miðaðs árangursmats (e. balanced scorecard). Þá er lagður mælikvarði á velgengnisþættina, en mæli- kvarðinn er eins konar reglustika eða málband sem umfang velgengnisþáttarins er miðað við. Stundum er mælikvarðinn það sama og velgengnisþátturinn, ef við lítum á legulengd sem velgengnisþátt og höfum valið hana sem gæðavísi þá er mælikvarðinn einfaldlega fjöldi legudaga. í öðrum tilfellum er ekki hægt að mæla velgengnisþáttinn með beinum hætti og er þá lagður á hann mælikvarði sem talinn er gefa vísbendingu eða óbeinar upplýsingar um stærð velgengnisþáttarins. Þannig er fjöldi legusára til dæmis einfaldur mælikvarði á gæði hjúkrunar. Mælitæki er enn eitt hugtakið á sviði gæðavísa. Mælitæki er það sem notað er til að mæla og getur verið til dæmis gögn sem lögð eru til grundvallar (oftast rafræn, svo sem úr sjúklingabókhaldi eða atvikaskráningu) eða spurningalistar sem lagðir eru fyrir sjúklinga eða starfsfólk. Góður mælikvarði þarf að hafa nokkra eigin- leika er taldir eru hér á eftir. Mælikvarðinn þarf að vera réttmætur (e. valid) eða hafa sannleiksgildi. Þetta þýðir einfaldlega það að mælikvarðinn mæli það sem hann á að mæla og gefi raunverulega vísbendingu um samband þess sem mælt er (til dæmis dánartíðni) og gæða. Einnig þarf hann að vera áreiðanlegur (e. reliable) þannig að hann gefi sömu niðurstöðu fyrir sömu gögn óháð því hver beitir honum (það er framkvæmir mæling- una). Fyrir samfellda gæðaþróun er mikilvægt að unnt sé að uppfæra niðurstöðu mælikvarðans reglulega með nýjum mælingum. Mælikvarðinn þarf því að vera með þeim hætti að auðvelt sé að beita honum oft og á þeim tíma eða tímabilum er best henta. Góður mælikvarði er nákvæmur (e. accurate), hann gefur nægilega nákvæmar upplýsingar til að hægt sé að túlka þær og bregðast við eftir því sem við á. Ef mælikvarði fjallar um legulengd er ekki nóg að hann gefi þær upplýsingar sem meðalfjölda heilla legudaga heldur verður hann að gefa með- alfjölda með aukastöfum. Að öðrum kosti geta mikilvægar breytingar í legulengd hulist þeim sem á þurfa að halda. Mælikvarðar þurfa að vera bæði næmir og sér- tækir. I þessu tilviki vísar næmi til þess að mæli- kvarðinn geti numið nægilega smáar breytingar í því sem mæla á þannig að unnt sé að bregðast við áður en vandamálið er orðið verulegt. Fivað telst full- nægjandi næmi er að sjálfsögðu háð aðstæðum. Sér- tækur mælikvarði getur greint á milli mismunandi flokkar eða útkoma þannig að hægt sé að túlka þær sem sundurlægar upplýsingar frekar en samfelldar. Spurningalisti um ánægju sjúklinga þarf að skila niðurstöðum á því formi að unnt sé að flokka alla svarendur í hópa sem endurspegla mismikla ánægju með þjónustuna. Síðast en ekki síst er almennt ákjósanlegra að mælikvarðar séu hlutlægir fremur en huglægir. Augljóslega er hlutlægur kvarði áreiðanlegri og auðveldari í samanburði og túlkun en kvarði sem byggist á huglægu mati. Fllutlægir kvarðar eru einn- ig almennt auðveldari í meðförum en þeir huglægu en eiga ekki alltaf við. María Heimisdóttir mariahei@lcindspitali. is María er faraldsfræðingur á Landspítala. Læknablaðið 2005/91 473
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.