Þjóðlíf - 01.04.1988, Síða 48
„Estragon: Förum.
Vladimir: Við
getum það ekki.
Estragon: Því þá
ekki9
Vladimir: Við
erum að bíða eftir
Godot.u
Sögur, leikrit, ljóð eftir
Samuel Beckett. Þýðing
og umsjón. Arni Ibsen
308 bls. Verð kr. 2.390.-
Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöfunda
þessarar aldar og hefur ef til vill öörunt freniur
stuðlað aö róttækum breytingum á skáld-
sagnagerð og leikritun eftir seinni heims-
styrjöld. Beckett. sent hlaut bókmenntaverölaun
Nóbels áriö 1969. er áleitinn höfundur. einstakur
og frumlegur. en stendur jafnframt nær hinni
klassísku evrópsku bókmenntahefð en flestir
aðrir nútímahöfundar.
Hann skilgreinir hlutskipti mannsins á guð-
lausri atómöld. lýsir leitinni að tilvist og
samastað í veröld sem er á mörkum lífs og
dauða. þar sem tungumálið hevr varnarstríð við
þögnina. Prátt fyrir nær fullkomið getuleysi.
niðurlægingu og algera örbirgð ntannskepnunnar
er henni lýst með miklum húmor og af
ómótstæðilegri ljóðrænni fegurð.
í þessari bók eru sjö leikrit. sex sögur og
fjórtán Ijóð frá fimmtíu ára ferli. þar á meðal
þekktasta verk Becketts. leikritið Beðið eftir
Godot, í nýrri þýðingu. og eitt nýjasta snilldar-
verkið, hin stutta og magnaða skáldsaga
Félagsskapur. frá 1980. Þýðandinn er Árni Ibsen
sem hefur um árabil kannað verk þessa
alvörugefna írska húmorista og liann skrifar
jafnframt inngang og skýringar. Þetta er í fyrsta
skipti sem verk Samuels Beckett eru gefin út í
íslenskri þýðingu.
VIÐSKIPTI
viðmælenda Pjóðlífs sagði svefnplássin 122 í
hinu nýja skipi fráleit sem fjárfestingu; víst
sé, að ef þau yrðu verðlögð í samræmi við
tilkostnað myndu fáir eða engir notfæra sér
þau.
Hagsmunir
Eimskipafélagsins
Meginmunurinn á nýja skipinu og hinu
gamla felst þó í aukningu flutningarýmis.
Áætlað er, að flutningageta hins nýja skips
verði tvöföld á við það gamla, þannig að
skipið geti sinnt nær öllum vöruflutningum
tilEyja. NúsiglaEimskip, Ríkisskipog Sam-
bandið til Eyja, hvert einu sinni í viku. Víst
er, að Eimskipafélagið myndi sjá sér hag í því
að fengin yrði ný og stærri ferja til sigling-
anna, sem annað gæti öllum vöruflutningum
til Vestmannaeyja, en hætta sjálft siglingum
þangað á stórum og óhentugum skipum. Pá
myndi fyrirtækið sjálft sjá um flutning á
vöru, m.a. frystum fiski, frá Porlákshöfn til
Reykjavíkur og lesta skip sín þar, sem er
miklu ábatavænlegra fyrir fyrirtækið en sigla
til Vestmannaeyja og lesta þar. Þess má geta,
að aðalráðgjafi Herjólfsmanna við hönnun
hins nýja skips var Þorkell Sigurlaugsson,
starfsmaður Eimskipafélagsins, og er hann
einnig höfundur að skýrslu, þar sem metin er
hagkvæmni þess að smíða nýtt skip og flutn-
ingaþörf þess.
Að sögn Þorkels er það ljóst, að núverandi
Herjólfur hafi verið úreltur frá upphafi og
mikilvægt sé að svipuð mistök verði ekki
gerð á ný. „Mér er til efs, að nokkurt sam-
göngumannvirki á íslandi hafi verið jafn vel
undirbúið og þetta nýja skip,“ sagði Þorkell í
samtali við Þjóðlíf.
Eimskip keyra til
Þorlákshafnar
Tengsl Eimskipafélagsins við útgerðarfé-
lagið Herjólf eru nokkur. Til dæmis sinna
Eimskip áðurnefndum flutningi á gámum og
svonefndum trailer-vögnum frá Reykjavík
að skipshlið í Þorlákshöfn og öfugt. í samtali
við Þjóðlíf vildi Magnús Jónasson fram-
kvæmdastjóri Herjólfs ekki nefna þá upp-
hæð, sem Eimskip fá fyrir þennan flutning,
en samkvæmt heimildum Þjóðlífs nemur hún
verulegum hluta af þeim 23 þúsundum, sem
Herjólfsmenn taka fyrir flutning trailer-
vagns frá Reykjavík til Vestmannaeyja.
Eimskipafélagið ekur ekki á eigin bílum til
Þorlákshafnar heldur semur við undirverk-
taka. Samkvæmt upplýsingum Þorkels Sig-
urlaugssonar reynir fyrirtækið eftir mætti að
semja við aðra verktaka um aksturinn.
Samkvæmt heimildum Þjóðlífs tekur Eim-
skipafélagið nokkurt gjald fyrir hlutverk sitt
sem milliliðar og því vaknar sú spurning
hvers vegna Herjólfsmenn semji ekki sjálfir
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra.
Samgöngur í kjördæminu viðkvæmt mál.
Þolir hann synjun?
beint við vörubílstjóra. Hvers vegna Eim-
skip þurfi að vera milliliður þar? Þorkell Sig-
urlaugsson segir, að það sé hagur Herjólfs,
að Eimskip sjái um bílflutningana. Þá sé
betri „samnýting" á starfsliði möguleg og
komi það tvímælalaust öllum til góða.
Sömuleiðis vilja Herjólfsmenn ekkert tjá
sig um þá upphæð, sem Eimskipafélagið
greiðir fyrir flutning á almennri vöru með
Herjólfi. Nokkuð mun vera um, að vara,
sem Eimskipafélagið flytur til landsins, sé
flutt áfram til Þorlákshafnar og þaðan til
Vestmannaeyja og tollafgreidd þar.
Báðir heildsalarnir í
stjórninni
Útgerðarfélagið Herjólfur er hlutafélag og
á Vestmannaeyjabær 51%, Ríkissjóður 46%
en einkaaðilar 3%. Stjórnarformaður fyrir-
tækisins er Guðmundur Karlsson, fyrrum
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurland-
skjördæmi. Meðal annarra stjórnarmanna
eru báðir heildsalarnir í Vestmannaeyjum,
Heiðmundur Sigurmundsson og Kristmann
Karlsson. Hefur verið bent á, að ef til vill fari
ekki saman hagsmunir heildsalanna, sem
flytja sjálfir mikið til Eyja og hagsmunir
Herjólfs hf.
Einn viðmælenda Þjóðlífs, Friðrik Ósk-
arsson, sem stundaði rekstur skipaafgreiðslu
í Vestmanneyjum á árunum 1977-86 telur
afskipti Eimskipafélagsins af málefnum
Herjólfs óæskileg: „Það er óþolandi að Eim-
skip sé með puttana í þessum málum, og ég
tel algjöran óþarfa, að nýja skipið taki að sér
svo mikinn hluta af vöruflutningunum. Þetta
skip ætti fyrst og fremst að vera farþega- og
bílaskip og gott sem slíkt.“