Þjóðlíf - 01.04.1988, Qupperneq 51

Þjóðlíf - 01.04.1988, Qupperneq 51
VIÐSKIPTI Islenskur knattspyrnukappi í bresku viðskiptalífi Friðrik Ragnarsson, 38 ára Keflvíkingur yfirgaf ættiandið fyrir fimm árum og hefur búið í Englandi síðan og unnið í ferðamála- bransanum. Hann rekur núna, ásamt eigin- konu sinni, Marettu, Manchester Travel Shop. „Petta er 7 daga vinnuvika. Konan mín vann hjá Twickenham Travel, sem var mikið með íslandsferðir, en þegar ég fékk atvinnuleyfi fluttum við hingað til Manchester og opnuð- um í samkrulli við stóra keðju — Owner’s Abroad — flugmiðasölu, Flight World. og seinna bættist við venjuleg ferðaskrifstofa Sun Air. Ýmissa hluta vegna slitnaði upp úr samstarfinu við Owner’s Abroad og síðan í nóvember höfum við starfað sjálfstætt undir nafninu Manchester Travel Shop.“ Áður en þau fluttust til Manchester bjuggu þau í eitt og hálft ár í London, „sem er uppáhaldsborgin mín, en það er allt svo miklu léttara í vöfum hér,“ segir Friðrik, „ódýrara að lifa, minni launa- og fjármagns- kostnaður og konan mín er héðan svo þetta lá beint við. Við eigum stóran vina- og kunn- ingjahóp hérna, og fólkið hér minnir mig að mörgu leyti á íslendinga. Kunningjahópur- inn er mjög breiður, frá gallhörðum komm- um, upp í æsta Thatcher-sinna og allt þar á milli. og svo nokkrir úr þotuliðinu.” Friðrik glottir. „Ég fer oft á Old Trafford að sjá Manchester United og á þar sæti í yfir- byggðri forstjórastúku.” Það hýrnar yfir honum þegar knattspyrn- una ber á góma. Ffann var margfaldur ís- lands- og bikarmeistari með ÍBK, „lék allar stöður nema í marki og keppti oft í Evrópu- keppni með liðinu. Petta var gullaldarliðið í Keflavík, þarna voru m.a. Guðni Kjartans- son, Þorsteinn Ólafsson og Ólafur Júlíusson. Það gekk þannig í nokkur ár, að það árið sem við vorum ekki íslandsmeistarar vorum við bikarmeistarar, og eina árið sem við unnum ekki titil, vorum við nógu ofarlega til að tryggja okkur UEFA-sæti. Við fórum í margar minnisstæðar keppnisferðir, keppt- um m.a. við Hamburg, Real Madrid. Tott- enham og Everton. Leikurinn á móti Ever- ton á Goodison Park var held ég hápunktur- inn á mínum ferli. Við vorum 1-0 yfir fyrsta hálftímann en leikslok urðu 6-2 Everton í vil og ég skoraði bæði mörk ÍBK. I liði Everton voru m.a. kappar eins og Alan Ball og Howard Kendall, sem seinna tók við liðinu og vann bæði bikarinn og deildina. Það var líka gaman að skora á móti Tott- enham, Pat Jennings stóð í marki og Ólafi Júlíussyni tókst að skora heima í Keflavík en á White Hart Lane, heimavelli Tottenham var þetta ekki alveg eins hagstætt, við töpuð- um víst 9-0,“ segir Friðrik kímileitur. „Jú ég sakna Islands oft,“ svarar hann að- Friðrik, Maretta og tíkin Kiri fyrir utan M.T.S, i hK wk 1 I* | spurður, „einkum er maður meyr um jólin og áramótin. Ég á þrjú börn af fyrra hjónabandi heima, og auðvitað sakna ég þeirra, en þau hafa heimsótt mig. Það er eitt sem ég á erfitt með að sætta mig við en það er þessi glæpa- alda sem ríður yfir um þessar mundir hér í Englandi og það að börn skuli ekki vera óhult úti um hábjartan daginn. Að öðru leyti er ég mjög ánægður hér. Það er að sjálfsögðu meira framboð af af- þreyingu hér og við förum mikið á tónleika og út að borða og við höfum verið svo heppin að komast í ódýr ferðalög þegar okkur hent- ar. Að vísu komumst við ekki mikið í burtu frá því í janúar og fram í aprfl, því þá eru allir að huga að sumarfríinu og mjög mikið að gera, en í nóvember og desember getum við farið í lengri ferðir. Við erum með traust starfsfólk hér á skrifstofunni og getum áhyggjulaust farið frá þegar minna er að §era. Við höfum m.a. farið til Ástralíu og Israel og dvalið í 3-4 vikur í senn. En minnisstæðasta ferðin var brúðkaups- ferðin okkar. Við flugum til New York með viðkomu á íslandi og sigldum með „Gull- fossi“ Breta, Queen Elizabeth II. um Karab- íska hafið í tíu daga. Þarna í skipinu voru tvær sundlaugar og fimm restaurantar, svo nokkuð sé nefnt, allt kyrfilega stéttskipt á breska vísu, og maður þurfti ekki að láta sér leiðast þarna.“ Friðrik Ragnarsson virðist hafa aðlagast ensku mannlífi vel og íslenskan hreim er varla að merkja þegar hann talar enskuna. „Ég vann á Keflavíkurflugvelli og talaði þá upp á amerískan máta, síðan náði ég Lund- úna-enskunni ágætlega, og nú stríða gamlir vinir í London mér á því að ég sé eini Eski- móinn sem talar Mancunian, Manchester- mállýskuna. Jú, það er rétt, ég er sveigjan- legur og laga mig að aðstæðum, en maður gleymir því ekki hvað það er að vera íslend- ingur og ræturnar eru alltaf fastar í íslenskri jörð.“ Einar Einarsson/Manchester 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.