Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 101
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 101
Turninn í Kópavogi býður upp á glæsilega veislu og fundaraðstöðu fyrir allt að 500 manns í
hæstu byggingu Íslands við Smáratorg í Kópavogi.
TExTi: svava jÓnsdÓTTir / mynd: GEir Ólafsson o.fl.
Þórey Ólafsdóttir sölu og markaðsstjóri segir einn helsta styrk leika þeirra vera frábært aðgengi
sem skipti miklu máli fyrir önn um
kafna viðskiptavini. „Já það er
rétt, við getum státað af góðri
þjónustu og frábærum veit ing
um, vönduðum tækjabúnaði
og síðast en ekki síst góðu
að gengi sem skiptir miklu máli
fyrir viðskiptavini okkar. Tím inn
er mjög mikilvægur í nútíma
þjóð félagi og við teljum mikinn
kost að geta boðið gestum
upp á nóg af bílastæðum, gott
aðgengi að fundarsölum og
að sjálfsögðu framúrskarandi
þjónustu sem sniðin er að
þörf um viðskiptavinarins hverju
sinni. Ekki spillir fyrir að útsýnið
er einstakt og staðsetningin
miðsvæðis á höfuðborgarsvæð
inu. Við bjóðum upp á fimm
veislusali sem hægt er að skipta
niður og getum þannig þjón ust
að smærri sem stærri hópa.“
T20bar vinsæll eftir vinnu
Að sögn Þóreyjar hafa viðskipta
vinir Turnsins lýst ánægju sinni
með aðgengilega fundarpakka
þar sem aðeins er greitt eitt
verð fyrir hvern ráðstefnu eða
fundargest í stað þess að bjóða
flókna verðskrá með salarleigu,
tækjaleigu og veitingum: „Veit
ingar eru síðan valdar með tilliti
til fundartíma og óska viðskipta
vinarins hverju sinni auk þess
sem hægt er að tvinna saman
óvænta uppákomu eða hópefli.
Fyrirtækið rekur einnig hinn
margrómaða veitingastað
Ní tj án du sem hefur skipað sér í
fremstu röð íslenskra veitinga
staða. Þar er boðið upp á
fjölbreytt hlaðborð í hádeginu
og á kvöldin, sem hentar einkar
vel fyrir ráðstefnu og fundar
gesti enda óhætt að fullyrða
að allir finni eitthvað við sitt
hæfi auk þess sem þjónustan
gengur hratt fyrir sig. Að auki
færist sífellt í vöxt að bjóða upp
á svokallaða happy hour að
erlendri fyrirmynd að loknum
vinnudegi á T20bar. Þar gefst
gestum kostur á að ræða verk
efni dagsins, mynda tengsl og
njóta samverunnar í afslöppuðu
umhverfi.“
frábært aðgengi, nóg af bílastæðum og ein-
stakt útsýni í hæstu byggingu landsins
turninn
„Fyrirtækið rekur einnig hinn margrómaða veitingastað Nítjándu sem hefur
skipað sér í fremstu röð íslenskra veitingastaða.“
Þórey Ólafsdóttir, sölu og markaðsstjóri Turnsins í Kópavogi.
Við bjóðum upp á fimm veislusali sem hægt er að skipta niður og getum þannig þjónustað smærri sem stærri hópa.